Bændablaðið - 10.09.2015, Side 48

Bændablaðið - 10.09.2015, Side 48
48 Bændablaðið | Fimmtudagur 10. september 2015 Við flytjum í Holt árið 2001 og byrjum að búa þar með rúmlega 300 kindur sem við kaupum af for- eldrum mínum. Síðan þá höfum við verið að fjölga smátt og smátt. Árið 2004 breyttum við fjósinu í lausagöngufjós og 2007 tókum við inn einn Lely-mjaltaþjón og svo núna sumarið 2014 tókum við inn tvo nýja Lely-mjaltaþjóna og stækk- uðum fjósið svo að núna rúmar það rúmlega 100 kýr. Býli: Holt á Ásum. Staðsett í sveit: Í Húnavatnshreppi í Austur-Húnavatnssýslu. Ábúendur: Maríanna Þorgrímsdóttir og Vilhjálmur Jónsson. Fjölskyldustærð (og gæludýra): Við eigum þrjú börn, Eyþór 23 ára, Jón Margeir, 17 ára og Svövu Björk, 14 ára – og tengdadóttur, Önnu, 24 ára, ásamt hundinum Drífu og hvolpinum Loka. Stærð jarðar? Um 300 ha. Gerð bús? Við erum með fjárbú. Fjöldi búfjár og tegundir? Við erum með um 500 kindur og 20 hross og 3 geitur. Hvernig gengur hefðbundinn vinnudagur fyrir sig á bænum? Við vinnum bæði utan bús og sinnum búinu utan vinnutíma, þ.e. snemma á morgnana og síðan seint á kvöldin. Skemmtilegustu/leiðinlegustu bústörfin? Allt er gaman ef við gerum það saman en girðingavinna verður nú samt seint talin mjög skemmtileg. Hvernig sjáið þið búskapinn fyrir ykkur á jörðinni eftir fimm ár? Mjög svipað og hann er í dag, von- andi fleira fé. Hvaða skoðun hafið þið á félags- málum bænda? Þau eru í fínum málum. Hvernig mun íslenskum landbún- aði vegna í framtíðinni? Vonandi bara vel. Hvar teljið þið að helstu tæki- færin séu í útflutningi íslenskra búvara? Með því að flytja út ferskt kjöt og sýna fram á hreinleika afurðanna. Hvað er alltaf til í ísskápnum? Ostur, mjólk, skinka, ávextir og grænmeti. Hver er vinsælasti maturinn á heimilinu? Lambalæri með öllu tilheyrandi og pitsa. Eftirminnilegasta atvikið við bústörfin? Þegar þakið fauk af hlöðunni í vetur. Líf og lyst BÆRINN OKKAR Sushi, bleikja og kleinuhringir í eftirrétt Við Íslendingar eigum fjölbreytt og gott fiskmeti. Við sushigerð er mikilvægt að vanda val á hráefni og þar gildir að hafa það sem allra ferskast. Það er líka hægt að nota t.d. grafinn eða reyktan lax og annan fisk sem ekki er beinlínis nýveiddur. Ég elska að nota bleikju, mjúk áferð er frábær fyrir grill eða á heita pönnu, stökkt og gott bleikjuroð er ómótstæðilegt. Það ætlaði allt um koll að keyra í höfuðstaðnum á dögunum þegar ný verslun með ameríska kleinu- hringi var opnuð á Laugaveginum. Nýjungagirni landans á engin tak- mörk og langar biðraðir voru dag eftir dag. Þeir sem eiga ekki heimangengt og vilja gera sína eigin kleinuhringi ættu að lesa Matarkrókinn til enda. Sushi-kúlur - Temari Sushi › ½ blað af nori-þangi › Sashimi-fiskur (þunnt skorinn fiskur) › Lax að eigin vali, grafinn eða ferskur › Bleikja › Eða ferskar stórar rækjur, reyktur lax eða annað ferskmeti Sushi-grjón › 1,5 bolli sushi-hrísgrjón › 2 bollar vatn › 6 matskeiðar hrísgrjónaedik › 2,5 msk. sykur › 2 tsk. salt Skolið hrísgrjón í vatni þar til vatnið verður tært. Þá er það þurrkað í sigti í 1 klst. Setjið hrísgrjón í pott með þéttu loki og bætið tveimur bollum af vatni til viðbótar. Yfir miðlungs hita, látið sjóða í um 2 mínútur. Dragið af hitanum og látið krauma í aðrar 5 mínútur. Lækkið hitann og sjóðið í um 15 mínútur, eða þar til vatnið hefur farið inn í grjónin. Fjarlægið úr hita, takið lokið af og setjið handklæði yfir pottinn. Lokið er sett á og látið standa í 10 til 15 mínútur. Blandið í bolla 3 msk. hrísgrjónaediki, einni msk. af sykri og hálfri teskeið af salti. Setjið vökvann stuttlega í örbylgjuofn til að leysa upp sykurinn. Hellið yfir bolla af soðnum sushi-hrísgrjónum og hrærið varlega. Látið hrísgrjónin kólna að stofuhita á diski. Skerið hrísgrjón með spaða í gegn til að aðskilja hrísgrjónin. Bætið edikblöndu eins mikið og nauðsyn- legt er (hrísgrjónin ættu ekki að vera klístruð). Skerið sneiðar af fisk í litla ferninga. Setjið smá lax fyrst, þá lítinn bolta af hrísgrjónum og setjið fiskinn ofan á. Lyftið hornum og klípið rétt saman. Herðið með plastfilmu og snúið boltanum, þannig herðist á með filmunni. Ef þú hefur áhyggjur af útlitinu getur þú látið lítinn ferning af nori- þangi undir hverja sneið af laxi. Síðan er filman tekin og skreytt með laxahrognum, dilllaufum eða rjómaosti. Berið fram með sýrðum engifer, wasabi og sojasósu og kryddið að eigin vali. Stökksteikt bleikja með nýju grænmeti › 4 bleikjuflök (beinlaus með roði) › ½ búnt blandað spínat eða annað úr garðinum › 3 litlar radísur (sneiðar) › ólífuolía › salt og pipar Gremolata (kryddgrunnur) › 1 sítróna (börkur og safi) › ½ bolli steinselja (söxuð) › 1 msk. hvítlaukur (smátt saxaður) › ¼ búnt graslaukur (saxaður) › ¼ bolli ólífuolía › salt og pipar Skerið í roðið á bleikjuflökunum og kryddið með salti og pipar. Hitið ofninn í 175 gráður. Setjið grænmeti í skál með 2 tsk. af ólífuolíu, salti og pipar. Setjið fiskinn á sjóðandi heita grillpönnu og látið hana í ofn- inn. Bakið í 5–10 mínútur eða þar til fiskur dettur í sundur. Fyrir gremolata, blandið öllu inni- haldsefni í skál. Framreiðið með fisknum og fersku grænmetinu. Kleinuhringir › 750 g hveiti › 60 g sykur › 10 g salt › 20 g þurrger › 40 g af vatni › 7 stk. heil egg › 1 tsk. lyftiduft › 250 g smjör Aðferð Vinnið hráefnið saman með spaða í hrærivél. Hveiti, salt, sykur, ger, vatn og egg á litlum hraða þar til deigið kemur vel saman í um 2 til 5 mínútur. Bætið smjörinu í litlum teningum og hrærið þar til smjörið er komið saman við deigið. Látið hefast í 45 mínútur. Kýlið niður og dreifið á smjörpappír með hveiti stráð á. Gott að láta hvíla yfir nótt í kæli. Rúllið deigið út í um 3 cm þykkt. Stingið úr í hringi og skerið út litl- ar holur með minna útstungujárni. Djúpsteikið í 170–190 °C heitri olíu. Snúið við og steikið á hinni hliðinni. Látið kólna og skreytið með glassúr með bragðefni að eigin vali (glassúr er bara flórsykur með ögn af vökva). Prófið til dæmis ávaxtasafa eða kakóduft. Hægt er að setja matarliti og kökuskraut til að fullkomna lista- verkið. MATARKRÓKURINN – BJARNI GUNNAR KRISTINSSON MATREIÐSLUMEISTARI Holt Sushi-kúlur – Temari Sushi. Bleikja.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.