Bændablaðið - 10.09.2015, Side 24

Bændablaðið - 10.09.2015, Side 24
24 Bændablaðið | Fimmtudagur 10. september 2015 Eyrún Huld Ásvaldsdóttir með Hröfnu, dóttur sinni, stundum kölluð Krumma, sem situr í sínu sæti, Krummusætinu. „Þetta hefur verið strembið, en líka mjög skemmtilegt. Það er gaman að sjá hugarfóstur sitt komið svona langt, verða til úr nán- ast engu og að fullunninni vöru,“ segir Eyrún Huld Ásvaldsdóttir, hugmyndasmiðurinn á bak við svonefnt Krummusæti. Þarna er um að ræða aukasæti framan á hnakki, sérstaklega hann- að fyrir börn sem fara á hestbak með fullorðnum. Nafnið dregur sætið af dóttur Eyrúnar, Hröfnu Lilju, sem stundum er kölluð Krumma. Eyrún kynnti Krummusætið á Heimsmeistaramóti íslenska hests- ins í Herning í Danmörku og segir viðtökur hafa verið afskaplega góðar. „Við erum mjög ánægð með þá athygli sem við höfum fengið hér úti, það er virkilega gaman hversu vel hefur gengið,“ segir Eyrún Huld. Fyrsta minningin úr reiðtúr með pabba Eyrún ólst upp á Hömrum ofan Akureyrar þar sem nú er Úti- lífsmiðstöð og tjaldsvæði. Foreldrar hennar voru þar með búskap, kýr, svín og hesta. „Fyrsta minning mín er að ég fór á hestbak með pabba og týndi öðru stígvélinu mínu,“ segir hún en áhugi fyrir hestamennskunni kviknaði strax á unga aldri. Frá Hömrum lá leið fjölskyldunnar austur í Álftafjörð en á unglingsárum slitnaði þráðurinn um skeið og var ekki tekinn upp á ný fyrr en Eyrún flutti með eiginmanni sínum, Baldri Jónassyni, að Bæ III, skammt norðan við Drangsnes. Þar fékk hún sér hesta aftur, alls þrjá, og flutti tvo þeirra með sér þegar fjölskyldan fluttist til Akureyrar árið 2011. Sú stutta varð fljótt hænd að hestunum Dóttir Eyrúnar og Baldurs var þá eins árs, fæddist árið 2010. Hún fór fljótt að fylgja mömmu sinni í hesthúsið og að bregða sér með henni á bak. „Hún sýndi strax mikinn áhuga á hestamennskunni, varð hænd að hrossunum og við byrjuðum á að teyma undir henni. Svo vildi hún ólm koma með mér á bak, fara í fullorðinsreiðtúr. Það er ekki gott, hvorki fyrir knapann né barnið, að setja það framan á hnakkinn svo ég fór að skoða hvað væri í boði,“ segir Eyrún. Tempurkoddi, belti og axlabönd Byrjaði hún á að leita á netinu, en fann ekkert sem hentaði og hún hafði hugsað sér. Einungis voru til tvö- faldir hnakkar og barnahnakkar til að festa aftan við venjulegan hnakk. Þá greip hún til þess ráðs að reyna að útbúa sæti fyrir Hröfnu. „Ég byrjaði bara sjálf að fikra mig áfram. Það fyrsta sem ég gerði var að taka tempurkodda og skera hann aðeins til og festi okkur mæðgur svo saman með belti af Baldri og það þróaðist svo út í axlabönd með áföstu belti sem fór utan um okkur báðar. Þetta var allt heimagert og það efni sem tiltækt var notað. Þetta var betra en að nota bara hnakkinn en alls ekki nógu gott þannig að ég hélt áfram að velta þessu fyrir mér. Á þeim Snjöll heimasmíðuð lausn fyrir börn á hestbaki varð að fullunninni markaðsvöru: Krummusæti fyrir börn − Eyrún Huld Ásvaldsdóttir kynnti hönnun sína á Heimsmeistaramótinu í Herning Krummusætið hefur fengið mikla og jákvæða athygli á Heimsmeistaramótinu í Herning í Danmörku. Hér er unnið við að gera kynningarbásinn kláran. S ætið sjálft er samsett úr skel úr trefjagleri, se- tan er úr minnissvampi og það er klætt með leðri að ofanverðu. Undirlagið er klætt rúskinni, sem gerir það stamt og lítt hreyfanlegt. Einnig eru stillanlegir púðar undir sætinu sem stilla það af á hnakknum.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.