Bændablaðið - 10.09.2015, Side 25
25Bændablaðið | Fimmtudagur 10. september 2015
tíma datt mér ekki í hug að þessi
hugmynd mín, sem átti nú bara að
vera heimasmíðuð lausn fyrir okkur
Hröfnu, myndi vinda svona upp á sig
eins og raun ber vitni,“ segir Eyrún.
Fékk byr undir báða vængi
Hún hafði verið á Punktinum og kon-
urnar þar hvöttu Eyrúnu til að taka
þátt í Atvinnu- og nýsköpunarhelgi í
Háskólanum á Akureyri í fyrravor og
vinna þar með hugmynd sína.
„Ég lét til leiðast og skráði mig
eftir svolitlar fortölur, ég hafði á
þeim tíma sjálf ekki mikla trú á að
eitthvað yrði úr þessu,“ segir Eyrún.
Skemmst er frá því að segja að hug-
mynd hennar hreppti þriðja sætið og
200 þúsund króna peningaverðlaun
til að þróa hana áfram. „Það gaf mér
byr undir báða vængi, ég fór þá fyrst
að meðtaka það að eitthvert vit var í
þessu hjá mér,“ segir hún.
Eyrún fór í framhaldinu til
forsvarsmanna Tjald- og seglaþjón-
ustunnar og ræddi við þá um hugsan-
legt samstarf við þróun vörunnar. Vel
var tekið í erindið og tóku starfsmenn
fyrirtækisins þátt í þróunar- og fram-
leiðsluferlinu strax í upphafi.
Hönnun hefur tekið breytingum
„Við höfðum að leiðarljósi að
sætið þyrfti að vera lítið og þægilegt
fyrir barnið að sitja í því,“ segir hún.
Hönnunin hefur tekið breytingum
á því ári sem unnið hefur verið að
verkefninu, það á við bæði um útlit
og lögun og einnig urðu festingarnar
einfaldari. Eyrún segir að alls hafi
verið gerðar sjö prufur þar til niður-
staða fékkst.
Sætið sjálft er samsett úr skel
úr trefjagleri, setan er úr minn-
issvampi og það er klætt með leðri
að ofanverðu. Undirlagið er klætt
rúskinni, sem gerir það stamt og lítt
hreyfanlegt. Einnig eru stillanlegir
púðar undir sætinu sem stilla það af
á hnakknum. Belti fylgir með sem
festir barnið við knapann, hann er því
sjálfur með lausar hendur til að stýra
hestinum. Sætið er fest á einum stað
með reim sem gengur undir hnakkinn
og aftur í reiðafestinguna, þannig að
auðvelt er að festa það og taka af.
Dregur ekki milljónir upp úr
vasanum sjálfur
Næsti áfangi í ferlinu varð í desem-
ber síðastliðnum þegar Eyrún hlaut
styrk úr Vaxtasamningi Eyjafjarðar.
Lokaáfangi þess samnings er nú senn
á enda og annar tekur við, en Eyrún
hlaut einnig styrk frá Atvinnumálum
kvenna á liðnu vori og er hann um
það bil að hefjast. Sá styrkur verður
nýttur til markaðsstarfs.
„Það má segja að boltinn hafi
heldur betur farið að rúlla, því auðvit-
að dregur maður sjálfur ekki milljónir
upp úr vasanum til að sinna verkefni
á borð við þetta. Þetta er dýrt og það
er ómetanlegt að fá þann stuðning
sem ég hef fengið. Ég er afskaplega
þakklát fyrir þann velvilja sem verk-
efni mínu hefur verið sýndur,“ segir
hún. Framleiðsla á Krummusæti er
þegar hafin og sala hefst innan tíðar.
Eyrún segir að einungis eigi eftir að
fara í gegnum öryggisprófanir hjá
Miðstöð slysavarna barna og að þeim
loknum geti sala hafist.
Á heimsmeistaramótinu í Herning
Eyrún hefur þegar kynnt Krummu-
sætið á gömlum heimaslóðum
fyrir austan, m.a. á Hornafirði og
Breiðdalsvík, og hlaut góðar við-
tökur. Þá er hún að undirbúa ferð
í Skagafjörð, Húnavatnssýslur og á
höfuðborgarsvæðið. Þaðan lá leiðin
á Heimsmeistaramótið í Herning í
Danmörku en þar hefur Eyrún staðið
vaktina í liðinni viku.
„Viðtökur hafa verið mjög góðar
og jákvæðar, það líst öllum mjög vel
á þetta og það er virkilega ánægju-
legt. Ég finn fyrir miklum áhuga.“
Og af því Eyrún er komin út fyrir
landsteinana ætlar hún einnig að fara
með Krummusætið til Noregs og
koma við bæði í Osló og Þrándheimi.
/MÞÞ
„Við höfðum að leiðarljósi að sætið
þyrfti að vera lítið og þægilegt fyrir
barnið að sitja í því,“ segir Eyrún
Huld.
Vatnagörðum 24 - 26 • Reykjavík • Sími 520 1100 • www.bernhard.iswww.honda.is
Erum með fullkomið þjónustu-
verkstæði fyrir öll Honda fjórhjól
• Honda 5-speed DCT sjálfskipting
og ESP rafmagnsskipting
• Rafstýrt aflstýri „Powersteering“
• Sjálfstæð afturfjöðrun
með 216mm stillanlegri dempun
• AP Suretrac™ mismunadrif sem tryggir
léttari eiginleika og minni snúningsradíus
• TraxLok® 2/4WD drif.
TRX 500FA
KR. 1.766.000 án vsk
kr. 2.190.000 með vsk
wd
2/4
®
HI
LO
VANDAÐUR
vinnufatnaður
frá BULLDOG
á góðu verði
Hafðu samband og kynntu þér
vöruúrvalið og þjónustuna
Öryggisskór
Sýnileikafatnaður
Vinnufatnaður
Vinnuvettlingar
www.isfell.is
Ísfell ehf • Óseyrarbraut 28 • 220 Hafnarfjörður • Sími 5 200 500 • isfell@isfell.is