Bændablaðið - 10.09.2015, Side 21

Bændablaðið - 10.09.2015, Side 21
21Bændablaðið | Fimmtudagur 10. september 2015 heimalandi. Benti hann jafnframt á að þá þegar væru um 20% af besta ræktarlandinu í höndum stórfyrir- tækja í gegnum langtíma leigusamn- inga. Einn stærsti kornframleiðandi heims Samkvæmt tölum FAO var Úkraína mesti kornframleiðandi Evrópu 1990 og í fjórða sæti á heimsvísu, næst á eftir Bandaríkjunum, Kína og Kanada. Árið 2013 var kornfram- leiðsla landsins talin vera sú þriðja mesta í heiminum og var landið í sjötta sæti hvað hveitiuppskeru varðar. Árið 2013 voru úkraínskir bændur samt aðeins taldir skila 60% uppskeru á hvern hektara í saman- burði við bandaríska kollega sína og í því telja menn felast mikla vaxt- armöguleika. Er þar ekki síst horft til ræktunar á erfðabreyttu korni frá bandaríska fyrirtækinu Monsanto sem nú virðist einmitt vera farið að hasla sér völl í Úkraínu. Í kreppunni í kjölfar falls Sovétríkjanna varð ákveðin upplausn sem olli því að uppskera í Úkraínu dróst verulega saman. Sem dæmi þá gaf hver hektari af sér um 3.510 kg af korni árið 1990, en uppskeran var komin niður í 1.930 kg á hektara árið 1999. Heildar kornframleiðsla landsins árið 1990 var rúmlega 51 milljón tonna en var komin í tæplega 25 milljónir tonna árið 1999. Þann 1. ágúst 2015 var kornuppskeran aftur komin á skrið og í rúmlega 29 millj- ónir tonna. Það er heldur meira en á sama tíma í fyrra og uppskerutíman- um langt í frá lokið. Búist er við að uppskeran verði því vel ríflega 62 milljónir tonna í ár, en hún var 39 milljónir tonna árið 2010. Milljónir búfjár Í Úkraínu voru rúmlega 4,4 millj- ónir nautgripa þann 1. júlí 2015 og rúmlega 7,7 milljón svín. Kindur og geitur voru samtals tæplega 1,8 milljónir og alifuglar rúmlega 245,5 milljónir talsins samkvæmt tölum hagstofu Úkraínu. Þá var kjötframleiðslan frá janúar til júlí 2015 komin í nærri 1,8 millj- ónir tonna. Mjólkurframleiðslan var komin í rúmlega 6,3 milljónir tonna og er þetta hvorutveggja heldur lak- ari framleiðsla en í fyrra. Miklir hagsmunir í húfi Miklir hagsmunir eru í húfi þegar kemur að yfirráðum yfir þessu dýr- mæta landi. Það varðar aðgengi að matvælaframleiðslu, fæðuöryggi þjóða og peningahagsmuni fjárfesta. Það er því ekkert skrítið að samfara aukinni eftirspurn eftir góðu rækt- arlandi skuli Úkraína vera orðinn miðdepill átaka. Hvaða „prinsipp“ er verið að tala um? Á Íslandi og víðar í Evrópu hefur verið dregin upp sú einfalda mynd af stöðunni að átökin snúist eingöngu um pólitík og hugmyndafræðilegan ágreining ráðamanna í Rússlandi og á Vesturlöndum. Einnig persónulegt valdapot Pútíns, forseta Rússlands. Þá er mikið talað um það „prinsipp“ að Rússar virði landamæri sjálf- stæðra ríkja. Sams konar rök voru notuð þegar ákveðið var að ráðast inn í hið olíu- ríka land Írak. Í bakhöndinni höfðu menn árás Íraka á Kúveit sem afsökun. Bæði Rússar og vestur- lönd hafa með álíka rökum barist um Afganistan sem vitað er að býr yfir gríðarlegum auðlindum í formi málma. Menn pössuðu sig þó mjög á að nefna aldrei að efnahagslegir hagsmunir hafi verið undirrót átak- anna. Átökin í báðum þessum lönd- um snerust gjörsamlega í höndum innrásarherja. Sömu sögu er að segja af Líbíu og Sýrlandi. Hlaðið var undir öfgasinnaða hryðjuverkahópa á báða bóga sem hvorki vesturlönd né Rússar hafa lengur nokkra stjórn á. Afleiðingin er hrein skelfing og uppgangur hryðju- verkahópa eins og Isis. Örvinglaðir flóttamenn flýja nú ógeðið hundr- uðum þúsunda saman frá þessum svæðum og inn í Evrópu. Sér engan veginn fyrir endann á þeim vanda sem það getur skapað. Athygli vekur að ekki skuli vera sett viðskiptabann á Sádi-Arabíu sem fullyrt hefur verið að styðji Isis- samtökin fjárhagslega. Það skyldi þó aldrei vera að ríkir olíuhagsmunir risafyrirtækja og ríkja á vesturlönd- um spili þar stóra rullu? Viðskipti með land í Úkraínu auðvelduð með aðstoð ESB Nú er svo komið að umtalsvert úkraínskt ræktarland er komið undir yfirráð útlendinga, oftast annarra en Rússa. Þar með eru komin rök fyrir afskiptum erlendra ríkja. Að sjálfsögðu eykst um leið krafan á að þessir fjárhagslegu hagsmunir verði varðir með hervaldi ef ekki vill betur. Þar njóta menn væntanlega stuðnings úkraínskra þjóðernissinna. Á sama tíma horfa Rússar fram á að missa aðgengi að þessu mikilvæga ræktarlandi. Evrópusambandið hefur komið með beinum hætti að borðinu sam- kvæmt frétt EU CO-OPERATION NEWS. Er það gert í gegnum sér- stakt verkefni sem kallað er „Aðstoð við þróun opins og gagnsæs mark- aðar með land í Úkraínu“. Það mun væntanlega stuðla að enn frekari innkomu erlendra fjárfesta á rækt- arlandi á svæðinu. Verkefnið hófst í september 2014 og átti að ljúka í september 2015. Undirtónninn í þessari aðstoð er að bæta efnahag Úkraínu og tryggja fæðuöryggi og þá væntanlega um leið að tryggja aðgengi ESB-landanna að brauð- körfunni góðu. Gríðarlegar fjárfestingar Samkvæmt tölum hagstofu Úkraínu námu beinar erlendar fjárfestingar í landinu frá janúar til júlí 2015 samtals rúmlega 42.851 milljón dollara, eða sem nemur rúmlega 5,5 billjónum íslenskra króna (5,5 milljón milljónum kr.). Athygli vekur að hlutfallslega mesta fjármagnið rennur í gegnum Kýpur eða rúmlega 12.274 milljónir dollara, en Kýpur er einmitt þekkt skattaskjól áhættufjár- festa af ýmsum toga sem fela vilja slóð sína. Næstmest fjárstreymið kom frá Þýskalandi eða 5.489 milljónir dollara. Síðan kom Holland með 5.108 milljónir og Rússland með tæplega 2.686 milljónir dollara. Undanskildar eru fjárfestingar á Krímskaga sem Rússar telja nú sitt land og hagstofan kallar „tímabundið yfirtekið sjálfstætt lýðveldi á Krím“. Ekki er auðvelt að finna upplýs- ingar í gögnum hagstofu Úkraínu í hversu miklum mæli þessar fjár- festingar tengjast kaupum eða leigu á ræktarlandi. Í tölum um fjárfestingar Úkraínumanna erlendis kemur fram að í heild var fjárfest fyrir rúmlega 6.254 milljónir dollara. Vekur athygli að megnið af því fé hefur runnið í gegnum Kýpur eða nærri 5.818 millj- ónir dollara. Snýst um milljónir hektara Á síðasta ári greindi Okland Institute frá því að vel yfir 1,6 milljónir hekt- ara ræktarland í Úkraínu væri þá komið í hendur aðila sem væru með höfuðstöðvar í öðrum ríkjum. Var þá talið að kaup eða leiga útlendinga á ræktarlandi væru enn meiri eða nær 2,2 milljónum hektara. Í frétt Okland um málið var greint frá því að fjárfestar á bak við þessa leigutöku eða landakaup kæmu frá ýmsum löndum. Til dæmis væri Trigon Agri í Danmörku með tök á 52.000 hekturum, en fyrirtækið er skráð á verðbréfamarkaði NASDAQ í Stokkhólmi. Er fyrirtækið sagt hafa byggt upp sjóð til þessara kaupa með finnsku áhættufjármagni. Stærstu hluthafarnir á bak við þetta félag voru þá JPM Case í Bretlandi með 9,5%, Swedbank með 9,4%, UB Securities í Finnlandi með 7,9%, Euroclear Bank í Belgíu með 6,6% og JP Morgan Clearing Corp í Bandaríkjunum með 6,2%. Fyrirtækið á einnig stærsta kúabú í Eistlandi með miklu landi og vel á annað þúsund mjólkurkýr. Þá keypti fyrirtækið 36 þúsund hektara land í Penza í Rússlandi í fyrra. Þá var greint frá því að United Farmers Holding Company sem er í eigu fjárfesta í Sádi-Arabíu, réðu yfir 33.000 hektara ræktarlandi í Úkraínu í gegnum fyrirtækið Continental Farmers Group PLC. Eins hafði fyrirtækið Agro Generation í Frakklandi keypt 33.000 hektara land í Úkraínu, en 6% hlutur í því félagi var í eigu fjár- festingafélagsins Sigma Bleyzer í Texas í Bandaríkjunum. Eftirlaunasjóðurinn NCH Capital í Bandaríkjunum var sagður vera með hald á 450.000 hekturum í fyrra, en sjóðurinn hóf að ásælast land í Úkraínu 1993, strax eftir fall Sovétríkjanna. Fjárfest í gegnum innlenda leppa Erlendir fjárfestar hafa líka fjárfest í gegnum félög með úkraínskri stjórn. Sum þeirra eru talin undir stjórn nýríkra úkraínskra oligarka sem fela slóðir sínar í erlendum skattapara- dísum. Þá hefur verið bent á, m.a. í Russia Insider, að úkraínskir emb- ættismenn hafi verið að nýta aðstöðu sína í landakaupamálum. Er þar t.d. bent á Yury Kosyuk, eiganda MHP, eins stærsta landbúnaðarfyrirtækis- ins í landinu hafi verið yfirmaður í forsætisráðuneytinu 2014 og barist fyrir afléttingu á sölubanni lands til útlendinga. Í skoðanakönnun sem Ukraine Agribusiness Club lét gera í maí síð- astliðnum kom fram að 70% bænda í Úkraínu voru á móti afléttingu landsölubanns til útlendinga 2016. Um 56% þeirra voru á móti slík- um áformum um alla framtíð. Andvígastir slíkum áformum voru þeir bændur sem skuldsettastir voru. Roman Topolyuk, landbúnaðar- sérfræðingur hjá Concord Capital, bendir á að það séu einkum stórfyr- irtæki með mikil ítök í landbúnaði vegna veðsetninga sem vildu aflétta banninu. Monsanto veðjar á Úkraínu Í grein eftir Vlatimir Platov í New Estern Outlook í lok apríl á þessu ári var greint frá því að bandaríska risafyrirtækið Monsanto væri farið að fjárfesta í stórum stíl í úkraínskum landbúnaði. Monsanto er lang öflug- ast á heimsvísu í framleiðslu á erfða- breyttu korni sem það á jafnframt einkarétt á. Bandaríska fyrirtækið Cargill Agrarian Holding er líka að hasla sér þar völl sem og DuPont Chemical Concern. Frederic Mousseau, yfirmaður Oakland Institute í Kaliforníu, segir að það sem er að gerast í Úkraínu megi jafna við að vestræn fyrirtæki séu hreinlega að kaupa upp landið. Vestrænir bankar og sjóðir hafa lánað miklar fjárfúlgur til stjórnvalda í Úkraínu og fái væntanlega í stað- inn breytingar á strangri landbúnað- arlöggjöf, m.a. hvað varðar bann við ræktun á erfðabreyttum matvælum og notkun skordýraeiturs. Á vefsíðu Oriental Review fyrr á þessu ári var greint frá því að banda- ríska landbúnaðarrisafyrirtækið Monsanto væri um það bil að ná fót- festu í Úkraínu. Hafi fyrirtækið róið að þessu öllum árum ásamt fyrirtækj- unum DuPont, Pioneer og John Deer sem öll hafi verið að reyna að koma sér inn á þennan stærsta landbúnað- armarkað í Austur-Evrópu. „Þetta mun fljótlega gjörbreyta framboði á landbúnaðarvörum innan ESB-landanna og landbúnaðarfram- leiðslu og eyðileggja stöðu evrópskra bænda,“ segir í umfjölluninni. Í nóvember 2013 lagði bandalag akuryrkjufyrirtækja í Úkraínu fram uppkast að lögum sem heimila áttu notkun erfðabreyttra korntegunda. Bændur í samtökum úkraínskra kornframleiðenda virðast uggandi yfir stöðunni, en OR vitnar í tilkynn- ingu frá þeim. Þar segir m.a. að leyf- um til beitingar líftækni í landinu muni fjölga á komandi árum sam- kvæmt samkomulagi Bandaríkjanna og ESB (Article 404). Það hafi ESB samþykkt í blindni sem bestu lausnina hvað varðar landbúnaðar- stefnuna. Það mun gera úkraínska bændur háða kornafbrigðum frá Bandaríkjunum. Það sé afleiðing af óvæginni herferð fyrir innleiðingu á líftækninni (GMO) á innri markaði ESB. Í grein OR er sagt að Monsanto veðji á stóraukna ræktun á erfða- breyttu korni í Úkraínu. Þar muni fyrirtækið beita fyrir sig áhrifum í gegnum lánastarfsemi. Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn með aðstoð Alþjóðabankans og annarra fjár- málastofnana tryggi nú öll sín lán í veðum í úkraínsku landi. Þá séu heimabankar farnir að skilyrða lán til bænda með því að þeir noti eingöngu ákveðin kornafbrigði í sinni ræktun. Það vilji bara svo einkennilega til að framleiðandi þeirra kornafbrigða sé enginn annar en Monsanto. Bandarískir fjárfestar róa á þessi sömu mið. Þannig var greint frá því fyrr á þessu ári að þeir hafi keypt 50% hlut í fjárfestingasjóðnum Siguler Guff & Co í úkraínsku borginni Illichivsk. Sjóðurinn sérhæfir sig í útflutningi landbúnaðarafurða. Monsanto hefur sýnt áhuga á að flytja höfuðstöðvar sínar til Bretlands eða Sviss af skattalegum ástæðum og væntanlega líka til að fá beinan aðgang að Evrópumarkaði. Þann 15. ágúst síðastliðinn bárust fréttir af því að yfirtökutilboði Monsanto á sviss- neska landbúnaðar- og líftæknifyrir- tækinu Syngenta upp á 47 milljarða dollara hafi verið hafnað. Syngenta er með gríðarleg ítök í landbúnaði og á þar fjölda einkaleyfa og um allan heim. Þá hefur það fjárfest gríðarlega í margvíslegri akuryrkju, m.a. í Brasilíu, Zambíu, Arentínu, Kína, Indónesíu, Jövu, Þýskalandi, Póllandi, Svíþjóð og í fjölda annarra landa. Falleg markmið á pappírunum Í desember 2013 greindi fulltrúi Monsanto frá því á US-Ukraine- ráðstefnu í Washington að fyrirtæk- ið teldi mikilvægt að skapa jákvætt andrúmsloft í Úkraínu og hvetti til fjárfestinga og frekari þróunar í landbúnaði. Sett var í gang svokallað alþýðlegt þróunarverkefni í landinu sem kallað var „Kornkarfa framtíðar- innar (Grain Basket of the Future’)“. Var verkefnið sniðið fyrir íbúa dreif- býlisins „svo þeir fengju að kynnast því hvernig þeir geti bætt stöðu sína sjálfir í stað þess að bíða eftir ölm- usu“. Sannarlega falleg markmið til að flagga opinberlega. Fréttamiðillinn NOVOROSSIA Today (Nýja-Rússland) sagði að þessi „stuðningur“ væri hins vegar augljóslega miðaður við að koma stóru bandarísku landbúnaðarris- unum til góða. Það yrði í gegnum skilyrt lán Alþjóða gjaldeyrissjóðs- ins (IMF) og Alþjóðabankans sem ætlað væri að lyfta banni af sölu jarða til einkageirans og útlendinga. Til gamans má geta þess að nafnið Novorossiya var eitt sinn notað yfir það landsvæði sem nú heitir Úkraína. Áhyggjur − en samt ekki Þýskir embættismenn hafa, vegna innleiðingar heimildar til að nota erfðabreytt afbrigði í Úkraínu, viðrað ótta sinn um að þannig muni erfða- breytt matvæli koma bakdyramegin inn í Þýskaland í gegnum þýskt eignarhald í úkraínskum landbún- aði. Þar yrðu Þjóðverjar í veruleg- um vanda því opinberlega er mikil andstaða þar í landi við ræktun og nýtingu á erfðabreyttu korni. Þetta er m.a. einn helsti ásteytingarsteinninn í viðræðum um fríverslunarsamning við Bandaríkin. Stjórnvöld í Kiev eru samt sögð hafa litlar áhyggjur af þessu. Ekki er heldur annað að sjá en að með afstöðu sinni „kói“ Íslendingar með án mikillar íhugunar á öllu því sem þarna er að gerast. Passi þar fyrst og fremst að ganga í takt við ESB, Bandaríkin, svokallað- ar vinveittar þjóðir á vesturlöndum og um leið fjölþjóðleg stórfyrirtæki. Gallinn er, að ekki er víst að það fari endilega saman við íslenska þjóðar- hagsmuni. /HKr. Heimild: Ukrain native Languages Census

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.