Bændablaðið - 10.09.2015, Page 21
21Bændablaðið | Fimmtudagur 10. september 2015
heimalandi. Benti hann jafnframt á
að þá þegar væru um 20% af besta
ræktarlandinu í höndum stórfyrir-
tækja í gegnum langtíma leigusamn-
inga.
Einn stærsti
kornframleiðandi heims
Samkvæmt tölum FAO var Úkraína
mesti kornframleiðandi Evrópu
1990 og í fjórða sæti á heimsvísu,
næst á eftir Bandaríkjunum, Kína
og Kanada. Árið 2013 var kornfram-
leiðsla landsins talin vera sú þriðja
mesta í heiminum og var landið í
sjötta sæti hvað hveitiuppskeru
varðar. Árið 2013 voru úkraínskir
bændur samt aðeins taldir skila 60%
uppskeru á hvern hektara í saman-
burði við bandaríska kollega sína og
í því telja menn felast mikla vaxt-
armöguleika. Er þar ekki síst horft
til ræktunar á erfðabreyttu korni frá
bandaríska fyrirtækinu Monsanto
sem nú virðist einmitt vera farið að
hasla sér völl í Úkraínu.
Í kreppunni í kjölfar falls
Sovétríkjanna varð ákveðin upplausn
sem olli því að uppskera í Úkraínu
dróst verulega saman. Sem dæmi
þá gaf hver hektari af sér um 3.510
kg af korni árið 1990, en uppskeran
var komin niður í 1.930 kg á hektara
árið 1999. Heildar kornframleiðsla
landsins árið 1990 var rúmlega 51
milljón tonna en var komin í tæplega
25 milljónir tonna árið 1999. Þann 1.
ágúst 2015 var kornuppskeran aftur
komin á skrið og í rúmlega 29 millj-
ónir tonna. Það er heldur meira en á
sama tíma í fyrra og uppskerutíman-
um langt í frá lokið. Búist er við að
uppskeran verði því vel ríflega 62
milljónir tonna í ár, en hún var 39
milljónir tonna árið 2010.
Milljónir búfjár
Í Úkraínu voru rúmlega 4,4 millj-
ónir nautgripa þann 1. júlí 2015 og
rúmlega 7,7 milljón svín. Kindur
og geitur voru samtals tæplega 1,8
milljónir og alifuglar rúmlega 245,5
milljónir talsins samkvæmt tölum
hagstofu Úkraínu.
Þá var kjötframleiðslan frá janúar
til júlí 2015 komin í nærri 1,8 millj-
ónir tonna. Mjólkurframleiðslan var
komin í rúmlega 6,3 milljónir tonna
og er þetta hvorutveggja heldur lak-
ari framleiðsla en í fyrra.
Miklir hagsmunir í húfi
Miklir hagsmunir eru í húfi þegar
kemur að yfirráðum yfir þessu dýr-
mæta landi. Það varðar aðgengi að
matvælaframleiðslu, fæðuöryggi
þjóða og peningahagsmuni fjárfesta.
Það er því ekkert skrítið að samfara
aukinni eftirspurn eftir góðu rækt-
arlandi skuli Úkraína vera orðinn
miðdepill átaka.
Hvaða „prinsipp“
er verið að tala um?
Á Íslandi og víðar í Evrópu hefur
verið dregin upp sú einfalda mynd
af stöðunni að átökin snúist eingöngu
um pólitík og hugmyndafræðilegan
ágreining ráðamanna í Rússlandi og
á Vesturlöndum. Einnig persónulegt
valdapot Pútíns, forseta Rússlands.
Þá er mikið talað um það „prinsipp“
að Rússar virði landamæri sjálf-
stæðra ríkja.
Sams konar rök voru notuð þegar
ákveðið var að ráðast inn í hið olíu-
ríka land Írak. Í bakhöndinni höfðu
menn árás Íraka á Kúveit sem
afsökun. Bæði Rússar og vestur-
lönd hafa með álíka rökum barist
um Afganistan sem vitað er að býr
yfir gríðarlegum auðlindum í formi
málma. Menn pössuðu sig þó mjög
á að nefna aldrei að efnahagslegir
hagsmunir hafi verið undirrót átak-
anna. Átökin í báðum þessum lönd-
um snerust gjörsamlega í höndum
innrásarherja. Sömu sögu er að segja
af Líbíu og Sýrlandi.
Hlaðið var undir öfgasinnaða
hryðjuverkahópa á báða bóga sem
hvorki vesturlönd né Rússar hafa
lengur nokkra stjórn á. Afleiðingin er
hrein skelfing og uppgangur hryðju-
verkahópa eins og Isis. Örvinglaðir
flóttamenn flýja nú ógeðið hundr-
uðum þúsunda saman frá þessum
svæðum og inn í Evrópu. Sér engan
veginn fyrir endann á þeim vanda
sem það getur skapað.
Athygli vekur að ekki skuli vera
sett viðskiptabann á Sádi-Arabíu
sem fullyrt hefur verið að styðji Isis-
samtökin fjárhagslega. Það skyldi þó
aldrei vera að ríkir olíuhagsmunir
risafyrirtækja og ríkja á vesturlönd-
um spili þar stóra rullu?
Viðskipti með land í Úkraínu
auðvelduð með aðstoð ESB
Nú er svo komið að umtalsvert
úkraínskt ræktarland er komið undir
yfirráð útlendinga, oftast annarra
en Rússa. Þar með eru komin rök
fyrir afskiptum erlendra ríkja. Að
sjálfsögðu eykst um leið krafan á
að þessir fjárhagslegu hagsmunir
verði varðir með hervaldi ef ekki
vill betur. Þar njóta menn væntanlega
stuðnings úkraínskra þjóðernissinna.
Á sama tíma horfa Rússar fram á að
missa aðgengi að þessu mikilvæga
ræktarlandi.
Evrópusambandið hefur komið
með beinum hætti að borðinu sam-
kvæmt frétt EU CO-OPERATION
NEWS. Er það gert í gegnum sér-
stakt verkefni sem kallað er „Aðstoð
við þróun opins og gagnsæs mark-
aðar með land í Úkraínu“. Það mun
væntanlega stuðla að enn frekari
innkomu erlendra fjárfesta á rækt-
arlandi á svæðinu. Verkefnið hófst
í september 2014 og átti að ljúka
í september 2015. Undirtónninn í
þessari aðstoð er að bæta efnahag
Úkraínu og tryggja fæðuöryggi og
þá væntanlega um leið að tryggja
aðgengi ESB-landanna að brauð-
körfunni góðu.
Gríðarlegar fjárfestingar
Samkvæmt tölum hagstofu Úkraínu
námu beinar erlendar fjárfestingar
í landinu frá janúar til júlí 2015
samtals rúmlega 42.851 milljón
dollara, eða sem nemur rúmlega
5,5 billjónum íslenskra króna (5,5
milljón milljónum kr.). Athygli vekur
að hlutfallslega mesta fjármagnið
rennur í gegnum Kýpur eða rúmlega
12.274 milljónir dollara, en Kýpur er
einmitt þekkt skattaskjól áhættufjár-
festa af ýmsum toga sem fela vilja
slóð sína.
Næstmest fjárstreymið kom
frá Þýskalandi eða 5.489 milljónir
dollara. Síðan kom Holland með
5.108 milljónir og Rússland með
tæplega 2.686 milljónir dollara.
Undanskildar eru fjárfestingar á
Krímskaga sem Rússar telja nú sitt
land og hagstofan kallar „tímabundið
yfirtekið sjálfstætt lýðveldi á Krím“.
Ekki er auðvelt að finna upplýs-
ingar í gögnum hagstofu Úkraínu
í hversu miklum mæli þessar fjár-
festingar tengjast kaupum eða leigu
á ræktarlandi.
Í tölum um fjárfestingar
Úkraínumanna erlendis kemur fram
að í heild var fjárfest fyrir rúmlega
6.254 milljónir dollara. Vekur athygli
að megnið af því fé hefur runnið í
gegnum Kýpur eða nærri 5.818 millj-
ónir dollara.
Snýst um milljónir hektara
Á síðasta ári greindi Okland Institute
frá því að vel yfir 1,6 milljónir hekt-
ara ræktarland í Úkraínu væri þá
komið í hendur aðila sem væru með
höfuðstöðvar í öðrum ríkjum. Var þá
talið að kaup eða leiga útlendinga á
ræktarlandi væru enn meiri eða nær
2,2 milljónum hektara.
Í frétt Okland um málið var greint
frá því að fjárfestar á bak við þessa
leigutöku eða landakaup kæmu frá
ýmsum löndum. Til dæmis væri
Trigon Agri í Danmörku með tök
á 52.000 hekturum, en fyrirtækið er
skráð á verðbréfamarkaði NASDAQ
í Stokkhólmi. Er fyrirtækið sagt hafa
byggt upp sjóð til þessara kaupa með
finnsku áhættufjármagni. Stærstu
hluthafarnir á bak við þetta félag
voru þá JPM Case í Bretlandi með
9,5%, Swedbank með 9,4%, UB
Securities í Finnlandi með 7,9%,
Euroclear Bank í Belgíu með 6,6%
og JP Morgan Clearing Corp í
Bandaríkjunum með 6,2%.
Fyrirtækið á einnig stærsta kúabú
í Eistlandi með miklu landi og vel á
annað þúsund mjólkurkýr. Þá keypti
fyrirtækið 36 þúsund hektara land í
Penza í Rússlandi í fyrra.
Þá var greint frá því að United
Farmers Holding Company sem er í
eigu fjárfesta í Sádi-Arabíu, réðu yfir
33.000 hektara ræktarlandi í Úkraínu
í gegnum fyrirtækið Continental
Farmers Group PLC.
Eins hafði fyrirtækið Agro
Generation í Frakklandi keypt
33.000 hektara land í Úkraínu, en
6% hlutur í því félagi var í eigu fjár-
festingafélagsins Sigma Bleyzer í
Texas í Bandaríkjunum.
Eftirlaunasjóðurinn NCH Capital
í Bandaríkjunum var sagður vera
með hald á 450.000 hekturum í
fyrra, en sjóðurinn hóf að ásælast
land í Úkraínu 1993, strax eftir fall
Sovétríkjanna.
Fjárfest í gegnum innlenda leppa
Erlendir fjárfestar hafa líka fjárfest í
gegnum félög með úkraínskri stjórn.
Sum þeirra eru talin undir stjórn
nýríkra úkraínskra oligarka sem fela
slóðir sínar í erlendum skattapara-
dísum.
Þá hefur verið bent á, m.a. í
Russia Insider, að úkraínskir emb-
ættismenn hafi verið að nýta aðstöðu
sína í landakaupamálum. Er þar t.d.
bent á Yury Kosyuk, eiganda MHP,
eins stærsta landbúnaðarfyrirtækis-
ins í landinu hafi verið yfirmaður í
forsætisráðuneytinu 2014 og barist
fyrir afléttingu á sölubanni lands til
útlendinga.
Í skoðanakönnun sem Ukraine
Agribusiness Club lét gera í maí síð-
astliðnum kom fram að 70% bænda
í Úkraínu voru á móti afléttingu
landsölubanns til útlendinga 2016.
Um 56% þeirra voru á móti slík-
um áformum um alla framtíð.
Andvígastir slíkum áformum voru
þeir bændur sem skuldsettastir voru.
Roman Topolyuk, landbúnaðar-
sérfræðingur hjá Concord Capital,
bendir á að það séu einkum stórfyr-
irtæki með mikil ítök í landbúnaði
vegna veðsetninga sem vildu aflétta
banninu.
Monsanto veðjar á Úkraínu
Í grein eftir Vlatimir Platov í New
Estern Outlook í lok apríl á þessu
ári var greint frá því að bandaríska
risafyrirtækið Monsanto væri farið
að fjárfesta í stórum stíl í úkraínskum
landbúnaði. Monsanto er lang öflug-
ast á heimsvísu í framleiðslu á erfða-
breyttu korni sem það á jafnframt
einkarétt á. Bandaríska fyrirtækið
Cargill Agrarian Holding er líka að
hasla sér þar völl sem og DuPont
Chemical Concern.
Frederic Mousseau, yfirmaður
Oakland Institute í Kaliforníu, segir
að það sem er að gerast í Úkraínu
megi jafna við að vestræn fyrirtæki
séu hreinlega að kaupa upp landið.
Vestrænir bankar og sjóðir hafa lánað
miklar fjárfúlgur til stjórnvalda í
Úkraínu og fái væntanlega í stað-
inn breytingar á strangri landbúnað-
arlöggjöf, m.a. hvað varðar bann við
ræktun á erfðabreyttum matvælum
og notkun skordýraeiturs.
Á vefsíðu Oriental Review fyrr á
þessu ári var greint frá því að banda-
ríska landbúnaðarrisafyrirtækið
Monsanto væri um það bil að ná fót-
festu í Úkraínu. Hafi fyrirtækið róið
að þessu öllum árum ásamt fyrirtækj-
unum DuPont, Pioneer og John Deer
sem öll hafi verið að reyna að koma
sér inn á þennan stærsta landbúnað-
armarkað í Austur-Evrópu.
„Þetta mun fljótlega gjörbreyta
framboði á landbúnaðarvörum innan
ESB-landanna og landbúnaðarfram-
leiðslu og eyðileggja stöðu evrópskra
bænda,“ segir í umfjölluninni.
Í nóvember 2013 lagði bandalag
akuryrkjufyrirtækja í Úkraínu fram
uppkast að lögum sem heimila áttu
notkun erfðabreyttra korntegunda.
Bændur í samtökum úkraínskra
kornframleiðenda virðast uggandi
yfir stöðunni, en OR vitnar í tilkynn-
ingu frá þeim. Þar segir m.a. að leyf-
um til beitingar líftækni í landinu
muni fjölga á komandi árum sam-
kvæmt samkomulagi Bandaríkjanna
og ESB (Article 404). Það hafi
ESB samþykkt í blindni sem bestu
lausnina hvað varðar landbúnaðar-
stefnuna. Það mun gera úkraínska
bændur háða kornafbrigðum frá
Bandaríkjunum. Það sé afleiðing af
óvæginni herferð fyrir innleiðingu á
líftækninni (GMO) á innri markaði
ESB.
Í grein OR er sagt að Monsanto
veðji á stóraukna ræktun á erfða-
breyttu korni í Úkraínu. Þar muni
fyrirtækið beita fyrir sig áhrifum
í gegnum lánastarfsemi. Alþjóða
gjaldeyrissjóðurinn með aðstoð
Alþjóðabankans og annarra fjár-
málastofnana tryggi nú öll sín lán
í veðum í úkraínsku landi. Þá séu
heimabankar farnir að skilyrða lán til
bænda með því að þeir noti eingöngu
ákveðin kornafbrigði í sinni ræktun.
Það vilji bara svo einkennilega til að
framleiðandi þeirra kornafbrigða sé
enginn annar en Monsanto.
Bandarískir fjárfestar róa á þessi
sömu mið. Þannig var greint frá því
fyrr á þessu ári að þeir hafi keypt 50%
hlut í fjárfestingasjóðnum Siguler
Guff & Co í úkraínsku borginni
Illichivsk. Sjóðurinn sérhæfir sig í
útflutningi landbúnaðarafurða.
Monsanto hefur sýnt áhuga á að
flytja höfuðstöðvar sínar til Bretlands
eða Sviss af skattalegum ástæðum
og væntanlega líka til að fá beinan
aðgang að Evrópumarkaði. Þann 15.
ágúst síðastliðinn bárust fréttir af því
að yfirtökutilboði Monsanto á sviss-
neska landbúnaðar- og líftæknifyrir-
tækinu Syngenta upp á 47 milljarða
dollara hafi verið hafnað. Syngenta
er með gríðarleg ítök í landbúnaði
og á þar fjölda einkaleyfa og um
allan heim. Þá hefur það fjárfest
gríðarlega í margvíslegri akuryrkju,
m.a. í Brasilíu, Zambíu, Arentínu,
Kína, Indónesíu, Jövu, Þýskalandi,
Póllandi, Svíþjóð og í fjölda annarra
landa.
Falleg markmið á pappírunum
Í desember 2013 greindi fulltrúi
Monsanto frá því á US-Ukraine-
ráðstefnu í Washington að fyrirtæk-
ið teldi mikilvægt að skapa jákvætt
andrúmsloft í Úkraínu og hvetti
til fjárfestinga og frekari þróunar í
landbúnaði. Sett var í gang svokallað
alþýðlegt þróunarverkefni í landinu
sem kallað var „Kornkarfa framtíðar-
innar (Grain Basket of the Future’)“.
Var verkefnið sniðið fyrir íbúa dreif-
býlisins „svo þeir fengju að kynnast
því hvernig þeir geti bætt stöðu sína
sjálfir í stað þess að bíða eftir ölm-
usu“. Sannarlega falleg markmið til
að flagga opinberlega.
Fréttamiðillinn NOVOROSSIA
Today (Nýja-Rússland) sagði að
þessi „stuðningur“ væri hins vegar
augljóslega miðaður við að koma
stóru bandarísku landbúnaðarris-
unum til góða. Það yrði í gegnum
skilyrt lán Alþjóða gjaldeyrissjóðs-
ins (IMF) og Alþjóðabankans sem
ætlað væri að lyfta banni af sölu
jarða til einkageirans og útlendinga.
Til gamans má geta þess að nafnið
Novorossiya var eitt sinn notað yfir
það landsvæði sem nú heitir Úkraína.
Áhyggjur − en samt ekki
Þýskir embættismenn hafa, vegna
innleiðingar heimildar til að nota
erfðabreytt afbrigði í Úkraínu, viðrað
ótta sinn um að þannig muni erfða-
breytt matvæli koma bakdyramegin
inn í Þýskaland í gegnum þýskt
eignarhald í úkraínskum landbún-
aði. Þar yrðu Þjóðverjar í veruleg-
um vanda því opinberlega er mikil
andstaða þar í landi við ræktun og
nýtingu á erfðabreyttu korni. Þetta er
m.a. einn helsti ásteytingarsteinninn
í viðræðum um fríverslunarsamning
við Bandaríkin. Stjórnvöld í Kiev
eru samt sögð hafa litlar áhyggjur
af þessu. Ekki er heldur annað að
sjá en að með afstöðu sinni „kói“
Íslendingar með án mikillar íhugunar
á öllu því sem þarna er að gerast.
Passi þar fyrst og fremst að ganga í
takt við ESB, Bandaríkin, svokallað-
ar vinveittar þjóðir á vesturlöndum
og um leið fjölþjóðleg stórfyrirtæki.
Gallinn er, að ekki er víst að það fari
endilega saman við íslenska þjóðar-
hagsmuni. /HKr.
Heimild: Ukrain native Languages Census