Bændablaðið - 10.09.2015, Síða 22

Bændablaðið - 10.09.2015, Síða 22
22 Bændablaðið | Fimmtudagur 10. september 2015 Erna Kristín Hauksdóttir er hótel- stjóri á Hótel Kjarnalundi, nýju hóteli sem opnað var fyrir gestum 22. júní síðastliðinn í Kjarnaskógi við Akureyri. „Það hefur gengið mjög vel hjá okkur frá því við opnuðum og það er ekki síst að þakka góðum og samhentum hópi starfsfólks. Það er mikið lán að hafa á að skipa svo frábæru starfsfólki, hér er valinn maður í hverju rúmi og það skiptir sköpum,“ segir Erna. Starfsemin fer vel af stað, hót- elið er vel bókað út sumarið. „Staðsetningin skapar okkur nokkra sérstöðu, við erum umvafin fallegri náttúru sem gestir kunna vel að meta, þeir endurnærast á sál og líkama í námunda við afslappað umhverfi skógarins.“ Erna Kristín flutti til Akureyrar á liðnu vori til að taka að sér stjórn hins nýja hótels. Segja má að hún sé að leita í heimaslóðir á nýjan leik eftir nokkurra ára fjarveru, en hún ólst upp á Skeiði, næst innsta bænum í Svarfaðardal. Þar var í hennar barnæsku rekið loðdýrabú, bæði með refi og minka. Samhliða því var einnig rekið sauðfjárbú eða þar til riðuveiki kom upp í dalnum sem olli því að fé var skorið niður, m.a. á Skeiði, og bændur þar tóku upp nýja búgrein, loðdýrarækt. Síðar þegar halla fór undan fæti í þeirri grein brugðu foreldrar hennar búi og fluttu til Dalvíkur. Beið ekki skaða af dvölinni á heimavistinni „Þegar ég horfi til baka var þetta yndislegur tími og ég er þakklát fyrir að hafa alist upp í sveit, en man samt að mér þótti það ekki sérlega skemmtilegt á miðju gelgjuskeiði. Þá fannst manni þetta dálítið of afskekkt,“ segir Erna Kristín. Á þeim tíma sem hún var að alast upp sóttu börnin grunnskólanám í Húsabakkaskóla. Heimavist var þá enn við lýði og börnin dvöldu í skólanum frá mánudegi til föstu- dags. „Ótrúlegt en satt, flestir komu heilir út úr þeirri vist,“ segir hún, en heimavistir hafa nú verið aflagðar alls staðar á landinu. „Mér líkaði bara vel að vera á heimavist og hlaut ekki skaða af, þvert á móti kenndi það mér margt, eins og að fylgja reglum og taka tillit til annarra, það er ágætt að læra það ungur.“ Með bleikt naglalakk í fæðingarorlofið Erna Kristín segir að hún hafi sterkar taugar til sveitarinnar. „Það blundar alltaf í mér svolítil sveitastelpa, ég velti því oft fyrir mér að gaman væri að prófa á ný að búa í sveit. Besta vinkona mín býr í Reykjadal og þangað kemst ég á hverju vori í fæðingarorlof eins og við köllum það þegar ég mæti í sauðburðinn. Háannatíminn í sauð- fjárbúskap, sauðburður, göngur og réttir er tími sem ég kann vel að meta og reyni hvað ég get að taka þátt í. Síðasta vor mætti ég í hótelgallanum með bleikt naglalakk og svissaði mér beint inn í fjárhús eftir að hafa skipt um föt. Það er mjög hressandi og endurnærir hvern mann sem tækifæri hefur á að vera með.“ Flestir krakkar úr Svarfaðardal fóru í 10. bekk til Dalvíkur, en sá bekkur var ekki kenndur í Húsabakkaskóla. Erna Kristín valdi hins vegar að ljúka grunn- skólagöngunni austur á Laugum í Reykjadal, en þá leið hafði bróðir hennar áður valið. Þar tók hún einnig fyrsta árið í framhaldsskóla, en lauk stúdentsprófi frá Framhaldsskólanum á Húsavík árið 1995. „Mig langaði að prófa eitthvað nýtt, flestir fór til Dalvíkur og þaðan til Akureyrar í skóla, en með því að fara austur má segja að ég hafi hoppað yfir Akureyri og hef aldrei átt þar heima fyrr en ég flutti núna í vor. Mér líkaði vel á Húsavík, þetta voru frábær ár, við leigðum saman nokkrir krakkar og skemmtum okkur prýðilega öll framhaldsskólaárin,“ segir Erna Kristín. Lærði bæði mannfræði og sálfræði Eftir stúdentspróf vann hún eitt ár í Reykjavík, en hafði lítið haft af höfuðborginni að segja fram að því, farið þangað í heimsóknir 4–5 sinnum áður. Erna Kristín skráði sig síðan í nám í mannfræði við Háskóla Íslands og lauk BA-prófi í greininni. „Mannfræðin er áhugaverð og skemmtileg grein, en ég vissi alltaf að ég myndi ekki starfa við hana, hún er hins vegar ágætis veganesti út í lífið,“ segir hún. Því tók hún þá ákvörðun að læra líka sálfræði og sá fyrir sér að starfa sem sálfræðingur. „Ég ætlaði að opna stofu, mér fannst það heillandi tilhugsun að reka eigin sálfræðistofu og vinna frá 10 til 2,“ segir hún og brosir við tilhugsunina. Eftir að hafa einnig lokið BA-prófi í sálfræði fór Erna Kristín í meistaranám í félagssálfræði í Amsterdam í Hollandi. „Ég sótti þar um, fékk inngöngu, pakkaði niður og fór út,“ segir hún, en þetta var árið 2007. Allt á uppleið og búið að fullvissa hana um að næg verkefni á hennar sviði biðu á Íslandi að námi loknu. Það fór á annan veg, efnahagshrun haustið 2008 hafði í för með sér að hvarvetna var skor- ið niður og fátt um atvinnutækifæri fyrir nýútskrifaða sálfræðinga. „Menn hvöttu mig nú bara til að halda mig úti, vera ekki að koma heim, þangað væri ekkert að sækja. Ég fór eftir þeim ráðum og leitaði að vinnu úti,“ segir hún en m.a. starfaði Erna Kristín Hauksdóttir, hótelstjóri á Hótel Kjarnalundi: Spennandi verkefni að byggja upp nýtt hótel „Ég er alsæl með að vera komin norður aftur, þannig að betra gerist það varla, að vera í skemmtilegri vinnu með frábæru fólki og hafa fjölskylduna í næsta nágrenni. Þetta er bara draumur í dós,“ segir Erna Kristín sem stendur hér við afgreiðsluborðið á Kjarnalundi. Myndir / MÞÞ „Þetta er spennandi verkefni og ég er þakklát fyrir það tækifæri sem bauðst við að byggja upp þennan hótelrekstur frá grunni,“ segir Erna Kristín hótelstjóri.

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.