Bændablaðið - 10.09.2015, Page 42

Bændablaðið - 10.09.2015, Page 42
42 Bændablaðið | Fimmtudagur 10. september 2015 Dagana 21.-30. júlí sl. fór hópur ungra bænda í fagferð til Evrópu en tilgangur ferðarinnar var að halda upp á útskrift hópsins frá Hvanneyri. Líkt og oft er með ferðir sem þessar var um blandaða ferð að ræða, þ.e. bæði var áhersla lögð á faglegar heimsóknir á sviði land- búnaðar en einnig hugað að því að næra sálina með annars konar afþreyingu en helstu viðkomu- staðir ferðarinnar voru stórborg- irnar Hannover, Köln, Koblenz, Lúxemborg og Brüssel. Alls voru 8 bú heimsótt í ferðalaginu ásamt því að farið var á landbúnaðar- sýninguna Libramont í Belgíu, en greint var frá þeirri landbúnaðar- sýningu í síðasta Bændablaði. Kóki heimsóttur Fyrsti dagurinn var í raun mest ferðadagur en flogið var árla morguns frá Íslandi og lent í Hamborg. Þaðan var svo ekið til Hannover, þar sem gist var í tvær nætur. Fyrsta faglega heimsóknin var svo farin til hins heimsfræga hestamanns Kóka en þrátt fyrir að hann og allir starfsmenn hans væru á haus í undirbúningi fyrir aðkomu TopReiter að heimsmeistaramóti íslenskra hesta í Danmörku, þá gaf hann sér góðan tíma til þess að sýna hópnum búgarðinn og hina umsvifamiklu starfsemi sem þar fer fram. Farið í Claas-verksmiðju Frá Kóka var haldið á ný til Hamborgar og nýttu margir sér tækifærið í Hannover að gera góð innkaup í mörgum af helstu verslunarkeðjum heimsins sem þar eru, en aðrir fóru í hinn þekkta dýragarð Erlebnis sem er 150 ára í ár eða tóku bara lífinu með ró. Þriðja daginn var haldið til bæjar- ins Koblenz en á leiðinni þangað var komið við í verksmiðju Claas í Harsewinkel þar sem hópurinn fékk afar greinargóða kynningu á starfsemi Claas. Frá Harsewinkel var áð í stórborginni Köln þar sem ein mikilfenglegasta dóm- kirkja heims er, en hún er m.a. á heimsminjaskrá UNESCO. Gist var í Koblenz í tvær nætur en borgin iðar af mannlífi og ferða- fólki enda einkar áhugaverður stað- ur fyrir ferðafólk, borgin stendur við ármótin þar sem Mósel og Rín renna saman. „Víndalurinn“ Þriðja faglega heimsókn ferðarinn- ar var á vínbúgarð Adolf Störzel við bæinn Rüdesheim, sem stend- Hús tekið á evrópskum bændum – fyrri hluti Utan úr heimi Neðansjávargarðyrkja: Matjurtir ræktaðar í stórum blöðrum Út af ströndum Norður-Ítalíu er verið að gera tilraunir með að rækta matjurtir í litlum gróður- húsablöðrum neðansjávar. Verkefnið kallast Nemógarðarnir. Blöðrunnar eða gróðurhúsin eru fest við sjávarbotninn þannig að þau haldast á um átta metra dýpi eftir að dælt hefur verið í þau lofti. Verkefnið sem kallast Nemógarðarnir er unnið í samvinnu kafara og garðyrkju- fræðinga. Verkefnið var sett á laggirnar árið 2012 og í dag eru ræktunarblöðrurn- ar sjö og í þeim eru ræktuð jarðarber, kryddjurtir og salat. Þar sem verk- efnið er enn á tilraunastigi er ekki um neina stórræktun að ræða enda ekki pláss fyrir nema 22 plöntur í hverri blöðru. Í fyrstu fór langur tími í að hanna blöðrurnar og velja hvaða efni ætti að nota í þær. Núverandi hönnun lofar góðu og segja talsmenn tilraun- anna að kominn sé tími til að stækka þær og auka þannig ræktunina. Rannsóknir sýna að plöntur, að þörungum undanskildum, þurfa ljós af ákveðinni bylgjulengd sem eyðist út neðan við tíu metra dýpi í sjó. Hugmyndin um að nota blöðrur fyrir ræktun neðansjávar er því byltingar- kennd og leysir það vandamál að þurfa að notast við raflýsingu. Aðstandendur tilraunarinnar segja að þær lofi góðu og ekki leiki nokkur vafi á að neðansjávargarð- yrkja eigi eftir að aukast í framtíðinni á sama tíma og fólki fjölgar og land til ræktunar minnkar. /VH Fornleifarannsóknir: Stonehenge stærra en talið hefur verið Fornleifafræðingar á Bretlands- eyjum telja sig vera búna að finna leifar af steinagerði sem bendir til þess að minjarnar við Stonehenge séu mun stærri en áður hefur verið talið. Með jarðsjá hefur tekist að greina tæplega hundrað bautasteina sem eru allt að 4,5 metrar að lengd. Steinarnir sem liggja á hliðinni mynda svo reglulega röð að ómögulegt er annað en að menn hafi komið þeim fyrir. Til aðgreiningar frá því steinagerði sem þekkist í dag er farið að kalla nýja fundinn ofurgerðið vegna stærðar þess. Síðastliðin fimm ár hefur verið unnið að því að skanna stórt svæði nálægt Stonehenge með jarðsjá og verið er að teikna það upp með steinafundunum merktum inn. Stór hluti ofurgerðisins liggur skammt frá Stonehenge, í um þriggja kílómetra fjarlægð, og er það talið vera hluti af helgu svæði sem tengist steina- gerðinu fræga. Reynist rétt vera að um ofurgerði sé að ræða er það stærsta steina- gerði sem fundist hefur í Evrópu og væntanlega munu rannsóknir á því veita nýja innsýn í sögu og tilgang Stonehenge. /VH Við ána Rín er hver fermetri nýttur fyrir vínvið enda með gjöfulli svæðum til slíkrar framleiðslu. Myndir / SS Hinn alþekkti hestamaður Kóki (Herbert Ólason) með einn af glæsilegri hnökkum frá fyrirtæki sínu, Top Reiter. Þessi hnakkur er m.a. gerður úr krókódílaskinni.

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.