Bændablaðið - 10.09.2015, Síða 44

Bændablaðið - 10.09.2015, Síða 44
44 Bændablaðið | Fimmtudagur 10. september 2015 Mynd / Gígja Einarsdóttir Kynbótasýningar hrossa 2015: Mörg eftirminnileg hross sýnd á árinu Nú er kynbótasýningum lokið á Íslandi árið 2015. Mörg afar eftir- minnileg hross voru sýnd á árinu og undan nýjum afkvæmahestum sem spennandi verður að fylgjast með til framtíðar. Í þessari saman- tekt verður farið yfir sýningaárið, efstu hross í hverjum flokki og litið til ýmissa þátta. Í ár voru kveðnir upp alls 1.197 dómar á Íslandi en það er nokkur fækkun frá fyrri árum. Til saman- burðar voru dómarnir alls 1.752 í fyrra. Þessi fækkun er að mörgu leyti skiljanleg þar sem ekki var landsmót í ár en einnig hafa markaðsmál eflaust eitthvað að segja. Afar verð- mætt er að árlega komi mikill fjöldi hrossa til dóms en þetta er sá grunnur sem ræktunarstarfið byggist á. Þá er mikilvægt á hverjum tíma að þróa sýningarhaldið í því augnamiði að auka áhuga hrossaræktenda á að mæta með hross til dóms. Nú liggur fyrir á næstu misserum að endurskoða dómskalann og fram- kvæmd kynbótasýninga sem leiðir vonandi til enn betra mats, aukinna upplýsinga til handa hrossaræktend- um og þess að hrossaræktendur sjái sér ávinning í því að mæta með fleiri hestgerðir til dóms. Í ár færðist sýningarhaldið enn meira fram í júní og til miðsumars en fá hross voru sýnd í maí. Þetta er þróun sem við eigum líklega eftir að sjá til framtíðar; að miðsumarssýn- ingar verði meira nýttar á árunum á milli landsmóta enda hrossin best á hásumri. Einnig væri til bóta að geta nýtt júní betur til dómsstarfa á landsmótsárum og halda landsmótin því seinna í júlí en verið hefur. Þetta er ekki síst mikilvægt í árum þegar vorar seint. Sýningar voru haldnar vítt og breitt um landið eins og vant er, eða á alls 11 stöðum. Stærsta sýn- ingin í ár var Miðsumarssýningin á Gaddstaðaflötum með 218 hrossum. Einnig má nefna að nýr sýningar- staður var tekinn til notkunar í ár en það var félagssvæði Spretts og gefur sú reynsla góð fyrirheit með sýningar á því svæði. Á árinu var haldið Fjórðungsmót á Austurlandi þar sem 33 kynbóta- hross komu fram. Þau voru fá en frambærileg og upp í stórmagnaða gæðinga. Heimsleikar voru haldnir í Danmörku í ár en þangað fór full- skipað lið kynbótahrossa frá Íslandi sem stóðu sig öll með miklum sóma. Efstu kynbótahross á árinu Efsti fjögurra vetra stóðhestur- inn á Íslandi í ár var Trausti frá Þóroddsstöðum. Þetta er hestur sem verður spennandi að fylgjast með til framtíðar, fínlegur og léttbyggð- ur hestur með verðmætt mýktar ganglag. Hann er undan Þresti frá Hvammi og Aronsdótturinni Snót frá Þóroddsstöðum en það er með eindæmum eftirtektarvert hvað mýkt og gegnumflæði í hreyfingum ein- kennir mörg þau hross sem hafa þá feðga Óð frá Brún og Aron frá Strandarhöfði í bakættum. Efsta hryssan í fjögurra vetra hópnum var Þökk frá Árbæjarhjáleigu II, undan Jarli frá Árbæjarhjáleigu II og Þernu frá Skarði. Þetta var sérstaklega bráð- þroska og heilsteypt hross, bæði hvað varðar ganglag og geðslag og gefur góð fyrirheit hvað Jarl varðar sem kynbótahest en þetta er fyrsta hrossið sem kemur til dóms undan honum. Í fimm vetra hópi stóð- hesta stóð efstur Andvari frá Auðsholtshjáleigu undan Gára og Fold frá Auðsholtshjáleigu en hann var einnig efstur í sínum flokki á Heimsleikum. Fríður og afar fallega byggður hestur, reistur og flugvakur. Efsta fimm vetra hryssan var svo Hrafna frá Hrafnkelsstöðum, undan Aronssyninum Hrafnari frá Auðsholtshjáleigu sem er alhliða gæðingur og Svartsdótturinni Skyggnu frá Hrafnkelsstöðum. Hrafna hefur mjúka og öfluga byggingu og er alhliða mýktarhross eins og hún á ættir til. Í sex vetra flokki stóðhesta stóð efstur Skaginn frá Skipaskaga, undan Álfi frá Selfossi og Meiðsdótturinni Össu frá Akranesi. Skaginn er með glæsilegri hestum með 9.0 fyrir háls, herðar og bóga og 9.5 fyrir sam- ræmi. Þá er hann fasmikill hestur með burð, léttleika og fallegar hreyf- ingar. Í sex vetra flokki var hæst dæmda hryssan Garún frá Árbæ, undan Aroni frá Standarhöfði og Glás frá Votmúla. Garún er stórfalleg og fjöl- hæf alhliða hryssa en hún stóð efst í sínum flokki á Heimsleikum og hlaut sinn hæsta dóm þar. Sú hryssa sem var hæst dæmd í þessum flokki á Íslandi og vert er að minnast á er Nípa frá Meðalfelli en hún hlaut 8.90 fyrir hæfileika. Nípa er undan Orra frá Þúfu og Esju frá Meðalfelli og er því skyldleikaræktuð út af Adam frá Meðalfelli. Nípa er tignarlegur alhliða gæðingur, með gangskil og mikinn burð á hægu tölti og stökki. Þá hefur hún hreyfingar sem oft erfast frá Adam sem einkennast af mjúku spori og mikilli bóghreyf- ingu. Efsti hesturinn í elsta flokki stóðhesta, á Íslandi og einnig á Heimsleikum, var Glóðfeykir frá Halakoti. Glóðafeykir er undan Rökkva frá Hárlaugsstöðum og Glóð frá Grjóteyri og er skrefmikill alhliða gæðingur og fór yfir níu fyrir hæfileika, á vorsýningu og einnig á Heimsleikum. Efst í elsta flokki hryssna var síðan Sending frá Þorlákshöfn en hún er undan Álfi frá Selfossi og Koltinnu frá Þorlákshöfn. Sýningin á þessari hryssu var afar eftirminnileg en hún hlaut þá einstöku einkunn tíu fyrir tölt enda með sérstaka skrefa- stærð, taktöryggi og jafnvægi á þeirri gangtegund. Þá er hún heilsteypt klárhross með 8.70 fyrir hæfileika og býr yfir óvanalegri framgöngu og útgeislun. Það er skemmtilegt að minnast á Mynd / Fjölnir Þorgeirsson Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins Þorvaldur Kristjánsson Ábyrgðarmaður í hrossarækt thk@bondi.is Mynd / Óðinn Örn Jóhannsson

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.