Þjóðmál - 01.12.2006, Blaðsíða 8
6 Þjóðmál VETUR 2006
Miklu nær væri fyrir þessa fjölmiðla að
verja meira rými í að kynna nýútkomnar
bækur en að básuna yfir þjóðina einstakl-
ingsbundnum sleggjudómum um þær.
Á aðventunni kalla hljómar kirkju-klukknanna eðlilega meira á mann en
á öðrum árstímum. Allt jólastússið gerir það
líka að verkum að margir þrá að eiga kyrrláta
stund í kirkju. En finna menn frið í kirkjum
núorðið? Það er alltaf einhver starfsemi sem
þar fer fram, tónleikar, æfingar fyrir tónleika
o.s.frv. — og svo eru þær nú ekki alltaf
opnar nema við kirkjuathafnir. Ég sakna
stundum kirkjulífsins sem ég kynntist þegar
ég var við nám í útlöndum. Þar stóðu
kirkjurnar jafnan opnar og
það var hluti af daglegu
lífi margra að ganga þar
inn, eiga stund með
sjálfum sér og Guði
og kveikja á kerti til
minningar um látna
ástvini.
Í nokkur ár hef ég
velt því fyrir mér hvort
ég eigi nú ekki að fara
að sækja messur með
reglubundnum
hætti. En
þetta er dá-
lítið átak
fyrir mann
sem ekki hefur
verið kirkjurækinn
um dagana. Í þau fáu skipti
sem ég hef verið kominn á fremsta hlunn
með því að láta af þessu verða hef ég heyrt
einhvern prestinn segja eitthvað í útvarps-
messunni sem mér mislíkar og hætt við.
Sumir prestanna okkar af vinstri vængnum
eru því miður svo uppteknir af því að koma
stjórnmálaskoðunum sínum á framfæri
við þjóðina að sjálfur guðdómurinn sýnist
stundum falla í skuggann. Og ég fer ekki í
kirkju til að hlusta á pólitískan áróður.
Með næsta hefti Þjóðmála hefst þriðji árgangur tímaritsins. Einungis tvö
hefti voru í fyrsta árgangi, 2005, og er
þetta hefti því hið sjötta í röðinni. Óhætt
er að segja að Þjóðmál hafi fest sig í sessi
á íslenskum umræðuvettvangi. Það má
m.a. sjá af góðri lausasölu ritsins og þeirri
athygli sem efni þess hefur jafnan vakið.
Þótt heftin hafi vafalítið verið misjöfn
að gæðum hefur ritstjóri Þjóðmála ekki
fengið nema góð viðbrögð frá lesendum.
Flestum ber saman um að rík
þörf hafi verið fyrir tímarit
af þessu tagi. Ekki
er síður ánægjulegt
hve margt fólk og úr
ólíkum áttum hefur
viljað skrifa í Þjóðmál.
Enginn hörgull hefur
sem sagt verið á efni
og hefur það meðal
annars orðið til þess
að ritstjórinn hefur
skrifað sjálfur
minna í ritið en
hann gerði
upphaflega
ráð fyrir.
Ja fnf ramt
hefur þetta
gert það að verkum
að fjölbreytni hefur ráðið ríkjum á
síðum Þjóðmála fremur en stíf ritstýring.
Allar ábendingar um efnisval og stefnu
ritsins er vel þegnar, því Þjóðmál þrífast
ekki nema lesendur þess séu sæmilega sáttir
og greiði áskriftargjaldið glaðir í bragði.
Að svo mæltu óska ég lesendum gleðilegra
jóla og farsældar á nýju ári.
4-rett-2006.indd 6 12/10/06 10:07:00 PM