Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2014, Page 9

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2014, Page 9
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 2. tbl. 90. árg. 2014 5 Tímarit hjúkrunarfræðinga lýsir því eftir greinum um klínísk efni. Ritnefnd óskar sérstaklega eftir að fá stutta pistla um afmörkuð efni en lengri greinar eru einnig vel þegnar. Margir lesendur hafa kynnt sér sérstaklega ákveðið efni og kunna aðferðir sem eru ekki á allra færi. Það er einmitt eitt af hlutverkum sérfræðingsins að fræða og þannig auka þekkingu og færni annarra. Umfjöllunarefnið getur verið eitthvað sem er tiltölulega einfalt í framkvæmd og tekur fljótt af, eins og að gefa sprautu í vöðva, eða mjög flókin langtímameðferð. Greinin getur til dæmis fjallað um sjúklingatilfelli, hjúkrunargreiningu eða hjúkrunarmeðferð. Hún getur verið 200 orða frétt eða 2.000 orða yfirgripsmikil umfjöllun. Benda má á að grein í Tímariti hjúkrunarfræðinga getur verið gott að eiga í ferilskránni þegar sótt er um framgang. Lesendur eru hvattir til þess að hafa samband hafi þeir hugmynd að grein. Ritstjóri blaðsins hjálpar gjarnan til við að móta greinina og getur komið höfundi í samband við sérfræðinga á sviði greinarefnis, yfirlesara og aðra sem geta tekið þátt í að búa til áhugaverða grein. Í haust verður einnig boðið upp á námskeið um að skrifa grein en aukin færni í því getur nýst á mörgum sviðum lífsins. Nú er nýlokið aðalfundi félagsins og félagsmenn farnir að framkvæma ákvarðanir sem þar voru teknar. Um það má lesa í blaðinu en hér vil ég sérstaklega hvetja lesendur til þess að taka virkan þátt í tveimur verkefnum – að umbreyta félaginu og að undirbúa næstu kjarasamninga. Stjórn félagsins hefur ákveðið að móta stefnu í ýmsum nýjum og gömlum málum og til stendur einnig að fara rækilega yfir lög félagsins. Allt er það gert til þess að efla þátttöku félagsmanna og styrkja mátt félagsins. Ljóst er samt sem áður að erfitt verður að ná markmiðum félagsins í næstu kjarasamningum nema allir, sem á annað borð hafa áhuga á launum sínum, leggi sitt af mörkum. Næsta tölublað kemur í október en þá verður talsvert fjallað um heimilisofbeldi og kynferðislegt ofbeldi. Þetta eru mál sem hafa gríðarlegar heilsufarslegar afleiðingar og kominn tími til að heilbrigðisstarfsfólk segi hingað og ekki lengra. En áður en að því kemur viljum við öll njóta sumarsins. Það er von ritstjóra og ritnefndar að lesendur fái tækifæri til þess að hvílast vel og safna kröftum fyrir næsta vetur. Tímarit hjúkrunarfræðinga Suðurlandsbraut 22 108 Reykjavík Sími 540 6405 Bréfsími 540 6401 Netfang christer@hjukrun.is Vefsíða www.hjukrun.is Útgefandi: Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga Sími skrifstofu 540 6400 Ritstjóri og ábyrgðarmaður Christer Magnusson Tekið er á móti efni til birtingar á netfanginu christer@hjukrun.is. Leiðbeiningar um ritun fræðslu­ og fræðigreina er að finna á vefsíðu tímaritsins. Ritnefnd Ásta Thoroddsen Bergþóra Eyólfsdóttir Dóróthea Bergs Kolbrún Albertsdóttir Oddný S. Gunnarsdóttir Vigdís Hrönn Viggósdóttir Þórdís Þorsteinsdóttir Fréttaefni Aðalbjörg Finnbogadóttir, Christer Magnusson o.fl. Ljósmyndir Christer Magnusson, Jóhannes Long, Lárus Sigurðarson, Magna Björk Ólafsdóttir o.fl. Próförk og yfirlestur Ragnar Hauksson Auglýsingar Guðrún Andrea Guðmundsdóttir, sími 540 6412 Hönnun Þór Ingólfsson, grafískur hönnuður FÍT Prentvinnsla Litróf Upplag 4000 eintök Pökkun og dreifing Póstdreifing SKRIFA ÞARF ÞAÐ SEM LESA MÁ Það hefur alltaf verið verkefni blaðsins að birta greinar um það sem lesendur vilja lesa. Nú leggur ritstjóri og ritnefnd aukinn þunga á að birta stuttar klínískar greinar en margir lesendur hafa lýst eftir þannig efni. Christer Magnusson. Ritstjóraspjall Ertu með ofnæmi? Lóritín® – Kröftugt ofnæmislyf án lyfseðils Þekkir þú helstu einkenni ofnæmiskvefs? · Kláði í augum og nefi · Síendurteknir hnerrar · Nefrennsli/stíflað nef · Rauð, fljótandi augu Einkennin geta líkst venjulegu kvefi og margir þjást af „kvefi” á hverju sumri áður en þeir átta sig á að um ofnæmiskvef er að ræða. Lóritín er ætlað til meðferðar á einkennum ofnæmiskvefs og langvarandi ofsakláða af óþekktum toga. H V ÍT A H Ú SI Ð / S ÍA - A ct av is 4 14 08 2 Notkun: Lóritín inniheldur virka efnið lóratadín 10 mg og er ætlað til meðferðar á einkennum ofnæmiskvefs og langvarandi ofsakláða af óþekktum toga. Skömmtun: Fullorðnir og börn yr 12 ára aldri: 1 taa á dag. Börn 2-12 ára: Með líkamsþyngd meiri en 30 kg: 1 taa (10 mg) á dag. Börn með líkamsþyngd undir 30 kg: 1/2 taa (5 mg) á dag. Lyð er ekki ætlað börnum yngri en 2 ára. Töuna má taka hvenær sem er, án tillits til matmálstíma. Hea ætti meðferð hjá sjúklingum með verulega skerta lifrarstarfsemi með minni skammti. Frábendingar: Ofnæmi fyrir virka efninu eða hjálparefnum. Varúðarreglur: Gæta skal varúðar ef Lóritín er geð sjúklingum með mikið skerta lifrarstarfsemi. Lyð inniheldur laktósa. Langvarandi notkun getur leitt til aukinnar hættu á tannskemmdum vegna munnþurrks. Notkun Lóritíns á meðgöngu og við brjóstagjöf er ekki ráðlögð. Í einstaka tilfellum nnur fólk fyrir syu sem getur haft áhrif á hæfni þeirra til aksturs eða notkunar véla. Aukaverkanir: Lóritín þolist almennt vel en algengustu aukaverkanirnar hjá börnum á aldrinum 2-12 ára eru höfuðverkur, taugaveiklun og þreyta. Algengustu aukaverkanirnar hjá 12 ára og eldri eru svefnhöfgi, höfuðverkur, aukin matarlyst og svefnleysi. Lesið vel leiðbeiningar sem fylgja lynu. Texti síðast endurskoðaður í mars 2013.

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.