Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2014, Blaðsíða 31
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 2. tbl. 90. árg. 2014 27
Nýir eða endurkjörnir fulltrúar í stjórn eru:
Arndís Jónsdóttir, fagdeild
krabbameinshjúkrunarfræðinga
Birgir Örn Ólafsson, fagdeild
skurðhjúkrunarfræðinga
Guðbjörg Pálsdóttir, fagdeild
bráðahjúkrunarfræðinga
Gunnar Helgason, fagdeild
gjörgæsluhjúkrunarfræðinga
Gyða Ölvisdóttir, fagdeild um
viðbótarmeðferð í hjúkrun
Herdís Gunnarsdóttir, fagdeild um
upplýsingatækni í hjúkrun
Hrönn Håkansson, fagdeild
heilsugæsluhjúkrunarfræðinga
Díana Dröfn Heiðarsdóttir
Jóhanna Kristófersdóttir
Ragnheiður Gunnarsdóttir.
Kjörtímabil þriggja nefndarmanna í ritnefd
rann út á þessu ári en þeir buðu sig allir
fram aftur þannig að ritnefnd starfar
óbreytt til næsta aðalfundar. Skoðunar
menn reikninga eru áfram þeir sömu og
verið hefur undanfarin ár.
Ályktanir og gleðskapur
Tvær ályktanir voru samþykktar. Önnur
fjallaði um forvarnir og heilsueflingu og
hin um hugsanlegar afleiðingar þess að
fækka starfandi hjúkrunarfræðingum á
heilbrigðisstofnunum. Nokkur umræða
varð um orðalagsbreytingar í ályktunum
en fundinum lauk samt fyrir tilsettan tíma.
Nánari upplýsingar um aðalfundinn má
finna í fundargerð aðalfundar á vefsvæði
félagsins. Eftir fundinn var boðið til veislu
þar sem fundarmenn gátu notið góðra
veiga, hitt gamla vini og talað saman vel
og lengi.
Ályktun aðalfundar Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga um forvarnir og
heilsueflingu
Aðalfundur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (FÍH), haldinn í Hörpu föstudaginn 9.
maí 2014, hvetur heilbrigðisráðherra til að efla heilsugæsluna í landinu með því að
leggja áherslu á heilsuvernd, forvarnir, heilsueflingu og heimahjúkrun.
Hjúkrunarfræðingar hafa frá upphafi verið í forystu í heilsuvernd og frumheilsugæslu
og gegna meginhlutverki á þeim vettvangi um allan heim. Þekking hjúkrunarfræðinga
og nálægð þeirra við almenning er grundvöllur markvissra forvarna og heilsueflingar.
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) hefur ítrekað bent á nauðsyn þess að efla
þjónustu hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra og Alþjóðaráð hjúkrunarfræðinga (ICN)
bendir á að fjárfesting í hjúkrunarfræðingum og hjúkrun geti skipt sköpum varðandi
bætt heilbrigði þjóðar, þar sem öflug heilsugæsla er lykilatriðið.
FÍH ítrekar að öflug heilsugæsla er forsenda þess að ná betri árangri í að efla heilsu
í samfélaginu. Með aukinni áherslu á að nýta betur þekkingu, færni, reynslu og
sjálfstæða þjónustu hjúkrunarfræðinga má sinna betur þörfum skjólstæðinganna og
auka gæði, skilvirkni og hagkvæmni heilsugæslunnar.
Ályktun aðalfundar Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga um afleiðingar þess að fækka starfandi hjúkrunarfræðingum
Aðalfundur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (FÍH), haldinn í Hörpu föstudaginn 9. maí 2014, lýsir yfir þungum áhyggjum vegna
fækkunar starfandi hjúkrunarfræðinga á heilbrigðisstofnunum.
FÍH ítrekar mikilvægi fullnægjandi mönnunar hjúkrunarfræðinga fyrir öryggi sjúklinga og gæði þjónustunnar og bendir á að sífellt
fleiri erlendar rannsóknir sýna tengsl milli fjölda hjúkrunarfræðinga og afdrifa sjúklinga. Nýlegar rannsóknir sýna einnig að auka má
hagkvæmni í rekstri þar sem mannað er með vel menntuðum og reyndum hjúkrunarfræðingum því þá fækkar óvæntum atvikum
og mistökum og legutími styttist.
Fáni félagsins blakti fyrir utan Hörpu allan
aðalfundardaginn.
Vel var veitt eftir fundinn.