Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2014, Blaðsíða 20
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 2. tbl. 90. árg. 201416
einstaklingsmiðaða meðferð í gang. Ef
vissir umhverfisþættir eru hamlandi fyrir
notanda þjónustunnar er líklegt að fljótt
fari í sama far og jafnvel endi fljótt í annarri
innlögn ef engu er breytt. Má þar nefna
t.d. einstakling sem hefur tilhneigingu til
að einangra sig, á erfitt með að sinna
persónulegu hreinlæti, á erfitt með að
halda heimili hreinu og kaupa inn. Þar er
hægt að óska eftir félagslegri liðveislu fyrir
viðkomandi og heilbrigðisstarfsmaður og
liðveisla setja í samvinnu við notandann
markmið sem unnið er markvisst að. Fyrir
notandann hefur það mikla þýðingu að
fá stuðning í nærumhverfi sínu, notendur
finna fyrir meira öryggi, þeir hafa auðveldan
aðgang að fagmanneskju, fá fræðslu,
stuðning og einstaklingsmiðaða meðferð.
Auk þess er á flestum stöðum boðið upp
á fjölskylduviðtöl og þannig reynt að styðja
við aðstandendur og styrkja tengslanet
notanda. Góð samfélagsgeðþjónusta
bætir lífsgæði og dregur úr þörf fyrir
innlagnir.
Tilgangurinn með stofnun
geðteymis á heilbrigðisstofnun
Suðurnesja
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS)
þjónar ríflega 21.000 íbúum í 5 sveitar
félögum. Fram hefur komið í áfanga
skýrslum velferðar vaktar að svæðið
sker sig úr í saman burði við önnur
landsvæði, sér staklega hvað varðar
atvinnu leysi, menntunarstig og fjölda
örorkulífeyrisþega. Þessir þættir eru
þekktir fyrir að hafa neikvæð áhrif á
geð heilsu. Einnig var vitað að hópur geð
fatlaðra einstaklinga á svæðinu þurfti betri
þjónustu og vitnuðu tíðar komur á bráða
móttöku LSH og innlagnir um það. Því var
ljóst að bæta þurfti geðheilbrigðisþjónustu
á svæðinu. Skýrsla velferðarvaktar frá
í fyrra (Velferðarráðuneytið, 2013) sýnir
að hlutfall öryrkja á Suðurnesjum hefur
aukist frá 2007 og er nú 10% einstaklinga
á aldrinum 1666 ára á örorkulífeyri, næst
kemur Suðurland með 9,1%.
Markmið með samfélagsgeðteymi HSS
• Að bjóða betri geðheilbrigðisþjónustu í
heimabyggð.
• Að bæta lífsgæði einstaklinga með
geðsjúkdóma á svæðinu.
• Að byggja brú á milli heilsugæslu, félags
þjónustu og sérhæfðrar geð þjónustu.
• Að fækka innlögnum á geðsvið Land
spítala og stytta meðallegutíma ef
innlagnar var þörf.
Framkvæmd
HSS fór í undirbúningsvinnu 2010 með
upplýsingasöfnun. Í febrúar 2011 var
samráðsteymi stofnað með aðilum frá
geðsviði Landspítala, félagsþjónustu og
HSS. Teymið áætlaði þörf á svæðinu og
styrkur fékkst frá velferðarráðuneytinu
til að ráða hjúkrunarfræðing til starfa.
Geðteymið tók formlega til starfa í
júlí 2011 og byrjaði að bjóða viðtöl
þeim sem metnir voru í mestri þörf fyrir
þjónustu, ásamt því að taka við nýjum
tilvísunum. Þess má geta að í byrjun
voru í teyminu tveir hjúkrunarfræðingar
í 1,5 stöðugildum. Í maí 2014 eru í
teyminu tveir hjúkrunarfræðingar, einn
sálfræðingur og einn heimilislæknir í
samtals 2,8 stöðugildum. Hugmyndafræði
geðteymisins byggist á valdeflingu og
batahugmyndafræði.
Nú er í samráðsteyminu geðteymi
HSS, aðilar frá heimahjúkrun HSS og
fulltrúar frá öllum félagsþjónustustöðvum
á Suðurnesjum, auk forstöðumanns
Bjargar innar, geðræktar miðstöðvar
Suður nesja. Fundað er mánaðar lega og
Dæmisaga um hvernig samfélagsgeðteymi starfar
Jón er 24 ára og nýgreindur með geðrofssjúkdóm. Hann leggst inn á LSH í
geðrofsástandi. Lögregla hafði verið kölluð til þar sem Jón stóð úti og hrópaði
og talaði við sjálfan sig. Var hann mjög illa hirtur og húsnæðið, sem hann bjó í,
ekki íbúðarhæft.
Jón hafði einangrað sig í marga mánuði. Hann lagðist inn sjálfviljugur á
bráðageðdeild Landspítala og var fljótur að lagast af geðrofseinkennum á
lyfjameðferð. Hann fór í framhaldinu á endurhæfingardeild Kleppsspítala.
Við útskrift komu aðilar frá samfélagsgeðteymi HSS og félagsþjónustu
Reykjanesbæjar og var þjónusta við Jón skipulögð í samráði við hann.
Var sett upp endurhæfingaráætlun þar sem hann mætir vikulega í viðtöl í
samfélagsgeðteymi auk þess að fá forðalyfjasprautur þar. Þar fyrir utan mætir
hann daglega í geðræktarmiðstöð þar sem hann fær heitan mat í hádegi,
iðjuþjálfun, aðstoð félagsráðgjafa o.fl. Meðan Jón lá inni var íbúðin hans tekin í
gegn og gerð íbúðarhæf.
Þessi saga sýnir að mikil og góð samvinna milli þjónustuaðila er lykillinn að því
að vel gangi.