Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2014, Blaðsíða 27
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 2. tbl. 90. árg. 2014 23
Árið 2005 hratt Alþjóðaráð hjúkrunar
fræðinga af stað herferð gegn fölsuðum
lyfjum til þess að berjast gegn þessari
vá. Markmiðið var að auka árvekni
hjúkrunarfræðinga um málið og kynna
þeim aðferðir til þess að koma auga á
fölsuð lyf og upplýsa samstarfsmenn og
sjúklinga um hættuna.
Í upplýsingapésa, sem dreift var í
sambandi við alþjóðadag hjúkrunar 2005,
voru kynntar aðferðir til þess að greina og
láta vita af fölsuðum lyfjum ásamt því að
auka meðvitund almennings. Árið 2010
efndi Alþjóðaráð hjúkrunarfræðinga og
samstarfsaðilar innan Alþjóðasamtaka
heilbrigðisstarfsmanna til herferðarinnar
„Be aware, take action“ en hún snýst
um lýðheilsu, öryggi sjúklinga og hlutverk
heilbrigðisstarfsmanna og samtaka þeirra.
Alþjóðasamtök heilbrigðisstarfsmanna
hafa komið þessum málum á framfæri
á fundum Alþjóðaheilbrigðismálastofn
unarinnar, haldið vinnufundi og sent frá
sér yfirlýsingar. Á heimasíðu þeirra, en
samtökin heita á ensku World Health
Professions Alliance, má finna svæði
með upplýsingum um fölsuð lyf og aðrar
falsaðar heilbrigðisvörur.
Í fyrra gekk svo Alþjóðaráð hjúkrunar
fræðinga til liðs við Fight the Fakes en
það er herferð margra aðila til þess
að auka árvekni fólks um þá hættu
sem stafar af fölsuðum lyfjum. Sérstök
áhersla er lögð á að segja sögu þeirra
sem hafa orðið fyrir barðinu á fölsuðum
lyfjum og þeirra sem berjast við þessa
lýðheilsuvá. Þannig er reynt er stofna til
alþjóðlegrar hreyfingar fólks og stofnana
sem vilja beina kastljósinu að og draga
úr neikvæðu áhrifum þess sem fölsuð lyf
hafa á fólk alls staðar í heiminum.
Saga Victoriu Amponsah er ein af þeim
sem Fight the Fakes hefur komið á
framfæri. Daginn, sem Victoria greindist
með malaríu, uppgötvaði hún líka að hún
væri þunguð. Á sjúkrahúsinu fékk hún
lyfseðil og fór, eins og sjúklingar gera
alls staðar, í lyfjabúð þar sem hún hélt
að lyfið, sem hún keypti, væri ósvikið og
myndi lækna sjúkdóminn. Svo reyndist
ekki vera. Í staðinn versnaði henni og á
sjúkrahúsinu fékk hún seinna að vita að
lyfið, sem hún hafði keypt, var falsað.
Sem betur fer lifðu Victoria og barnið það
af og hún læknaðist af malaríunni. „Ég
vona að fólk um allan heim átti sig á að líf
okkar er mikilvægara en þær krónur sem
það getur grætt á því að dreifa fölsuðum
lyfjum,“ segir Victoria. „Minnstu hlutir,
eins og ein lítil vond tafla, geta valdið svo
miklum usla í lífi fólks.“
Hvað getum við þá gert til þess að hjálpa
til við að berjast gegn því að þannig sé
brotið á sjúklingum okkar? Í daglegu
starfi geta hjúkrunarfræðingar tekið þátt
í að bera kennsl á fölsuð lyf með því
að fylgjast með fólki og skoða vörur.
Dagur baráttu gegn fölsunum
Samtök, sem heita Global AntiCounterfeiting Network, höfðu fyrir nokkrum
árum frumkvæði að því að stofna til alþjóðlegs baráttudags gegn fölsunum. Í
ár verður hann haldinn hátíðlegur 5. júní. Ekki er einungis fjallað um lyf heldur
um alls kyns vörufalsanir. Hins vegar hafa nokkur verkefni samtakanna
snúist um lyfjamál og lyfjasölu á alnetinu.
Herferð síðan 2005
Alþjóðaráð hjúkrunarfræðinga og stök félög hjúkrunar
fræðinga hafa lengi barist gegn fölsuðum lyfjum. Á
alþjóðadegi hjúkrunarfræðinga 12. maí 2005 var til
að mynda hér á Íslandi haldinn velheppnaður fundur
á Grand hóteli undir heitinu „Fölsuð lyf geta valdið örkumlun og dauða“.
Hjúkrunarfræðingar um allan heim helguðu 12. maí það árið baráttunni gegn
notkun falsaðra og gagnslausra lyfja með því meðal annars að vekja athygli
almennings á hinni ógnvænlegu aukningu á fölsuðum lyfjum á markaði.
Áætlað var að það árið hafi gróði af sölu svikinna lyfja í heiminum numið allt
að 32 milljörðum dollara.
Sérstaklega má hafa auga með vörum
sem eru ekki í upprunalegum umbúðum,
hefur verið breytt, eru skemmdar eða
eru ekki innsiglaðar. Hjúkrunarfræðingar
geta upplýst sjúklinga og hvatt þá til
þess að láta vita ef þeir hafa efasemdir
um lyfin, hafa spurningar um verkun eða
aukaverkun lyfsins eða ef lyfin virðast
ekki verka.
Hjúkrunarfræðingar ættu einnig að taka
þátt í að auka árvekni fólks og berjast við
fölsuð lyf í heimalandi sínu. Einnig ættu
þeir að stuðla að nauðsynlegri löggjöf,
lyfjaeftirliti og lögregluaðgerðum gegn
fölsuðum lyfjum. Það má einnig gera
með því að taka þátt í starfi Fight the
Fakes en nánari upplýsingar er að finna á
heimasíðu herferðarinnar.
David C. Benton er breskur hjúkrunar fræðingur
og síðan 2008 framkvæmdastjóri Alþjóðaráðs
hjúkrunar fræðinga. Lindsey Williamson, upp
lýsinga fulltrúi samtakanna, er frá Írlandi en hún
hefur unnið í Genf síðan 2004.
Fölsuð lyf geta valdið
dauða og örkumlum