Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2014, Blaðsíða 51

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2014, Blaðsíða 51
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 2. tbl. 90. árg. 2014 47 Ritrýnd fræðigrein SCIENTIFIC PAPER 59 ára og yngri (tafla 1). Aðstandendur voru flestir makar sjúklings (72%) og börn voru 23%, en aðrir 5%, flestir í þeim hópi voru barnabörn eða systkini. Flestir voru aðstandendur sjúklinga á Landspítala eða tæp 55% (n=116), tæp 30% (n=63) sjúklinga á FSA og rúm 15% (n=33) sjúklinga á HVE. Af aðstandendum sjúklinga á FSA og HVE sögðust 18% hafa tekið þátt í einstaklingsfræðslu fyrir aðgerð sjúklings og hópfræðslu höfðu 21% aðstandenda sjúklinga á Landspítala sótt sér. Konur voru fleiri í yngri aldurshópnum en karlar (p<0,001). Væntingar og fengin fræðsla Væntingar aðstandenda til fræðslu (HPKE­S) voru að meðaltali 1,3 (sf 0,5) fyrir heildarlistann. Aðstandendur höfðu mestar væntingar um fræðslu á sviði lífeðlisfræði og færni en minnstar um fjárhag (tafla 2). Einhliða dreifigreining sýndi að aðstandendur með stúdentspróf höfðu minni væntingar til fræðslu en aðstandendur með grunnskóla­ eða gagnfræðapróf á tveimur undirsviðum, siðfræði (p=0,039) og reynslu (p=0,047). Aðrar bakgrunnsbreytur reyndust ekki hafa áhrif á væntingar til fræðslu. Fengin fræðsla aðstandenda (HPRK­S) var að meðaltali 2,2 (sf 1,1) á T2 og 2,3 (sf 1,1) á T3, mest á sviðum lífeðlisfræði og færni en minnst á því fjárhagslega, bæði á T2 og T3. Á T2 töldu konur sig fá minni fræðslu en karlar á félagslega sviðinu (p=0,016). Á T3 er marktækur munur eftir kynjum á heildarlista (p=0,021) og öllum undirsviðum nema því félagslega. Við samanburð á yngri og eldri aldurshópum kemur í ljós að fengin fræðsla er minni hjá 59 ára og yngri en þeim sem eru 60 ára og eldri, bæði á T2 og T3. Aðstandendur með stúdentspróf mælast með minni fengna fræðslu en þeir með grunnskólapróf (p=0,018) og gagnfræðapróf (p=0,038) á T2, en slíkur munur kemur ekki fram á T3. Aðstandendur, sem þátt tóku í einstaklingsfræðslu á FSA og HVE, mælast með meiri fengna fræðslu en þeir sem ekki sóttu fræðslu á T2 á sviðum reynslu (p=0,04), félagslegra þátta (p=0,019), fjárhags (p=0,004) og heildarlista (p=0,04). Á T3 var slíkur munur á sviðum félagslegra þátta (p=0,036) og fjárhags (p=0,004). Ekki fannst munur á fenginni fræðslu hjá þeim sem sóttu og sóttu ekki hópfræðslu á LSH. Mismunur á væntri og fenginni fræðslu Aðstandendur telja sig hafa fengið marktækt minni fræðslu en þeir væntu að fá, bæði þegar bornir voru saman heildarlistar og undirsviðin. Dreifigreining endurtekinna mælinga sýndi að breyting, að teknu tilliti til tíma, er í öllum tilvikum marktæk. Áhrifastærðin var frá 0,38 til 0,56 (eta2), sjá töflu 2. Þátttakendur sögðust fá minni fræðslu um öll þekkingarsviðin en þeir væntu að fá á T2 og munurinn eykst þegar þeir meta fengna fræðslu aftur, sex mánuðum eftir aðgerð sjúklings. Við útskrift sjúklings af sjúkrahúsi (T2) er 71% aðstandenda með meiri væntingar til fræðslu en þeir telja sig hafa fengið, og þegar spurt er aftur eftir sex mánuði er það hlutfall 78% aðstandenda. Kí­kvaðratpróf sýndi ekki tengsl við bakgrunnsbreytur á T2 en á T3 voru konur með meiri óuppfylltar væntingar til fræðslu en karlar og aðstandendur 59 ára og yngri með meiri væntingar en þeir sem eldri voru. Tafla 3 sýnir samband bakgrunnsbreyta og mismunar á væntri og fenginni fræðslu á T2 og T3 þar sem marktækur munur fannst. Munur á væntingum og fenginni fræðslu var meiri hjá aðstandendum 59 ára og yngri en þeim sem eldri eru, bæði á T2 og T3, einnig var munurinn meiri hjá konum en körlum. Á T2 voru aðstandendur með stúdentspróf með marktækt meiri mun á væntri og fenginni fræðslu en þeir aðstandendur sem einungis voru með grunnskólapróf. Annar munur fannst ekki eftir menntun. Samanburður á svörum aðstandanda og sjúklings á fræðslulistum Svör sjúklings og aðstandanda hans á fræðslulista voru borin saman með pöruðu t­prófi. Tafla 4 sýnir að ekki reyndist munur á væntingum sjúklings og aðstandanda hans til fræðslu en væntingar aðstandanda eru marktækt síður uppfylltar en væntingar sjúklings. Aðgengi að upplýsingum Aðgengi aðstandenda að upplýsingum frá hjúkrunarfræðingum, sjúkraliðum og læknum við útskrift sjúklings mældist að Tafla 1. Lýsandi tölfræði úrtaks aðstandenda gerviliðasjúklinga á tíma 1, n=212. n % Aldur 60 ára og eldri 106 51 59 ára og yngri 104 49 Tengsl við sjúkling Maki 153 72 Barn 48 23 Annað 11 5 Kyn Kona 134 64 Karl 76 36 Sjúkrahús Landspítali (LSH) 116 55 Sjúkrahúsið á Akureyri (FSA) 63 30 Heilbrigðisstofnun Vesturlands (HVE) 33 15 Grunnmenntun Grunnskólapróf/fullnaðarpróf 70 34 Gagnfræðapróf/landspróf 87 43 Stúdentspróf 47 23 Atvinna Í starfi 129 61 Á eftirlaunum 52 25 Annað 26 14 Hefur starfað innan félags-/heilbrigðisþjónustu? Já 73 35 Nei 133 65
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.