Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2014, Blaðsíða 58

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2014, Blaðsíða 58
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 2. tbl. 90. árg. 201454 sem beindust að skilgreiningum, markmiðum og ávinningi af samþættingu. Hins vegar var greinum um samstarf fagstétta sleppt þar sem sú umfjöllun er umfangsmikil og á vissan hátt annað viðfangsefni (Hildur Elísabet Pétursdóttir, 2011). Við greiningu gagna var stuðst við aðgreiningu Leutz (1999) á þremur stigum samþættrar þjónustu. Fyrsta stig samþættrar þjónustu nefndi hann tengda þjónustu (e. linkage) sem felur í sér samvinnu milli stofnana sem veita þjónustuna þar sem hver stofnun starfar sjálfstætt, hefur sína starfsmenn og engin sameiginleg fjárhagsábyrgð er á milli stofnana. Í tengdri þjónustu eru oft notaðir ákveðnir vinnuferlar og leiðbeiningar um hvað skuli gera og hver skuli gera hvað (Kodner, 2009; Leutz,1999; MacAdam, 2008). Annað stig samþættrar þjónustu nefndi hann samhæfða þjónustu (e. coordination). Þá starfa þjónustuaðilar í aðskildum stofnunum eða deildum en samvinna er mikil. Reynt er að búa til sameiginlegar verklagsreglur til að samhæfa mismunandi þjónustuaðila og fjarlægja hindranir í kerfinu. Sameiginleg upplýsingaöflun, gott upplýsingastreymi milli starfsmanna og teymisvinna eru mikilvæg í samhæfðri þjónustu. Markmiðið er að allir aðilar starfi að sama markmiði til hagsbóta fyrir einstaklinginn (Kodner, 2002; Kodner, 2009; Leutz,1999; MacAdam, 2008). Fullsamþætt þjónusta (e. full integration) er þriðja stig samþættrar þjónustu. Á þessu stigi er nýjum úrræðum beitt, ný stofnun með nýjum einingum hefur myndast. Þar er allt starfsfólk og öll þjónusta, sem nauðsynleg er fyrir umönnun aldraðra, sameinuð. Þessi stofnun sér um stjórnun mannafla og fjármálastjórnun og markmiðið er að skapa heildræna þjónustu fyrir ákveðinn hóp (Kodner, 2009; Leutz,1999; MacAdam, 2008). Umfjöllun okkar um skilgreiningar á stefnumörkun og helstu markmiðum samþættingar byggðist á þeim 49 ritverkum, þar sem fjallað var um samþættingu, frá löndum Evrópu, Tafla 1. Niðurstöður rannsókna á árangri samþættingarverkefna. PRISMA SIPA PACE WPP SHMO ROVERETO The Silver Network Project Innlagnir á sjúkrahús – legudagar Fjölgaði í viðmiðunarhópi en stóð í stað í PRISMA 50% fækkun legudaga. Enginn munur á komufjölda Færri innlagnir Enginn munur Innlögnum fækkaði Innlögnum og legudögum fækkaði Komur á bráðamóttöku Fjölgaði í viðmiðunarhópi en stóð í stað í PRISMA Enginn munur Enginn munur Innlagnir á hjúkrunarheimili Seinkaði innlögnum Enginn munur 40% færri innlagnir Seinkaði innlögnum Kostnaður og hagkvæmni Enginn munur PACE dýrara – svipaður kostnaður og fyrir hjúkrunarheimili Minni kostnaður Minni kostnaður Ánægja skjólstæðinga Aukin ánægja Aukin ánægja Enginn munur Álag á aðstandendur/ ánægja aðstandenda Álag jókst í viðmiðunarhópi en stóð í stað í PRISMA Aukin ánægja/ minnkað álag Aukin ánægja/ minnkað álag Lifun Enginn munur Lifðu lengur Enginn munur Enginn munur Uppfylltar þarfir Betur uppfylltar Enginn munur Heilbrigði og starfsgeta Virkni hélst betur hjá PRISMA og aukin heilsuefling Enginn munur PACE­ skjólstæðingum hrakaði síður Aukin líkamleg virkni
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.