Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2014, Side 54
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 2. tbl. 90. árg. 201450
Aðstandendur sjúklinga, sem fara í gerviliðaaðgerð á mjöðm
og hné, höfðu miklar væntingar til fræðslu en hjá rúmlega 70%
voru væntingar ekki uppfylltar. Hjúkrunarfræðingar þurfa því að
bæta fræðslu og upplýsingagjöf til aðstandenda. Aðgengi að
upplýsingum frá heilbrigðisstarfsfólki, meðan á sjúkrahúsdvöl
sjúklings stóð, gegndi veigamiklu hlutverki varðandi það
hvernig fræðsluþörfum var sinnt en það bendir til að ekki sé
nóg að fræða aðstandendur fyrir aðgerð heldur sé mikilvægt
að fylgja fræðslunni eftir á sjúkrahúsinu. Einnig var samband
við einstaklingsbundna þætti, svo sem menntun aðstandenda.
Ekki fundust erlendar rannsóknir um þetta efni.
Sjúklingur og aðstandandi hans í þessari rannsókn höfðu
sambærilegar væntingar til fræðslu fyrir aðgerðina en
fræðsluþarfir aðstandanda voru síður uppfylltar en sjúklings.
Hugsanleg skýring er sú að fræðsla til sjúklinga er gjarnan veitt
um leið og meðferð fer fram, til dæmis hjúkrunarmeðferð, þjálfun
hjá sjúkraþjálfurum eða skoðun hjá læknum, og aðstandendur
eru þá sjaldan viðstaddir. Einnig má vera að aðstandendum sé
ekki nógu oft boðið að taka þátt í fræðslu, hvort sem er formlegri
eða óformlegri. Í rannsókn Suhonen og félaga (2005) kom til
dæmis fram að af 928 skurðsjúklingum sögðu einungis 4% að
aðstandendum hefði verið boðið að sækja fræðslu.
Væntingar og fengin fræðsla
Aðstandendur hafa mestar væntingar til fræðslu á sviðum
lífeðlisfræði og færni og þeim er jafnframt best sinnt, því næst
væntingum á sviði reynslu, siðfræði og félagslega sviðinu og
síst því fjárhagslega. Þessar niðurstöður eru í samræmi við
fyrri rannsóknir, til dæmis fundu Almborg og félagar (2009) að
aðstandendur sjúklinga, sem höfðu fengið heilablóðfall, fengu
minnstar upplýsingar um félagslega þætti og endurhæfingu.
Rannsóknir meðal aðgerðasjúklinga, þar sem notuð voru sömu
mælitæki og í þessari rannsókn (Heikkinen o.fl., 2007; Montin
o.fl., 2010; Rankinen o.fl., 2007) og fleiri (Boer o.fl., 2013), hafa
sýnt svipaðar niðurstöður og hér komu fram.
Umhugsunarvert er að hér kemur í ljós, eins og í öðrum
rannsóknum, að væntingum sjúklinga og aðstandenda um
fræðslu á fjárhagslega sviðinu er síst sinnt (Árún K. Sigurðardóttir
o.fl., 2013; Heikkinen o.fl., 2007; Montin o.fl., 2010). Hlutur
íslenskra heimila í heildarútgjöldum til heilbrigðismála fer
vaxandi, var 17,5% árið 2007 en 19,6% 2012 (Hagtíðindi, 2013)
og oft hefur verið bent á að sjúklingar eigi erfitt með að kynna
sér og sækja rétt sinn í sjúkratryggingakerfinu. Niðurstöður
rannsóknarinnar ættu því að hvetja heilbrigðisstarfsfólk til að
íhuga eigin þekkingu á sjúkratryggingakerfinu og hvernig það
miðlar henni til sjúklinga og aðstandenda.
Hér kom í ljós að þótt karlar og konur hefðu sambærilegar
væntingar til fræðslu fyrir aðgerð sjúklings voru væntingar
kvenna síður uppfylltar en karla og konur töldu aðgengi sitt að
upplýsingum lakara. Ætla má að konur þurfi meiri upplýsingar enda
algengara að konur taki að sér umönnunarhlutverk í fjölskyldum
(Almborg o.fl., 2009). Þeir sem yngri voru og höfðu meiri menntun
fengu fræðsluþörfum sínum síður sinnt en aðrir og töldu aðgengi
að upplýsingum einnig lakara og er það sambærilegt við aðrar
rannsóknir (Hafsteinsdóttir o.fl., 2011; Rankinen o.fl., 2007). Þetta
gæti skýrst af meiri þekkingu á heilbrigðiskerfinu og úrræðum
þess, eða að þessir einstaklingar búi yfir meiri eflingu og vænti því
og geri meiri kröfur til þjónustunnar.
Aðgengi að upplýsingum
Aðstandendur töldu aðgengi sitt að upplýsingum frá
heilbrigðisstarfsfólki allgott í þessari rannsókn. Aðstandendur
sjúklinga, sem lágu á FSA og HVE og fengu þar
einstaklingsfræðslu, höfðu fengið fræðsluþarfir sínar marktækt
betur uppfylltar en þeir sem ekki sóttu slíka fræðslu og aðgengi
þeirra að upplýsingum var betra. Ekki fannst slíkur munur
á þeim sem sóttu eða sóttu ekki hópfræðslu á Landspítala.
Þótt varlega verði að fara í að draga ályktanir af þessum
niðurstöðum, þar sem fjöldi þátttakenda frá hverri stofnun
var ekki mjög mikill, vekja þær upp spurningar um skipulag,
fyrirkomulag og efni sem dreift er til fræðslu á íslenskum
sjúkrahúsum.
Bent hefur verið á mikilvægi þess að einstaklingshæfa
sjúklingafræðslu og byggja hana á fræðsluþörfum sjúklings
og aðstandanda hans eins og þeir sjálfir meta þær (Suhonen
og LeinoKilpi, 2006). Í samantektargrein um áhrif fræðslu eftir
aðgerð, þar sem kannaðar voru niðurstöður 58 rannsókna,
var niðurstaðan sú að mestra áhrifa er að vænta ef fræðslan
er einstaklingshæfð, fleiri en einni aðferð er beitt og fræðslan
er veitt í mörg skipti (Fredericks o.fl., 2010). Í slembaðri
meðferðarrannsókn meðal sjúklinga, sem fóru í gerviliðaaðgerð
á mjöðm, sýndu niðurstöður að þeir sjúklingar, sem fengu bæði
skriflega fræðslu og einstaklingsfræðslu (n=62), þurftu minni
eftirmeðferð en hinir sem fengu eingöngu skriflegt fræðsluefni
(n=61) (Johansson o.fl., 2007).
Sjúklingafræðsla og fræðsla til aðstandenda hefur verið
skilgreind sem hjúkrunarmeðferð og krefst þekkingar, færni og
jákvæðra viðhorfa af hálfu hjúkrunarfræðinga. Þó niðurstöður
rannsóknarinnar bendi til að margt sé vel gert í fræðslu
aðstandenda gerviliðasjúklinga má gera betur hvað varðar
innihald og framkvæmd fræðslunnar. Hjúkrunarfræðingar hafa
jákvæð viðhorf til fjölskylduhjúkrunar og telja mikilvægt að
fjölskyldan taki þátt í umönnun sjúklinga. Þetta kom fram í
rannsókn sem gerð var á skurðdeildum Landspítala og höfðu
þeir sem voru eldri og með meiri starfsreynslu jákvæðari viðhorf
en þeir yngri (Blondal o.fl., í prentun 2013).
Með styttri legutíma á sjúkrahúsum (OECD, 2010) hafa kröfur
aukist um að aðstandendur veiti aðstoð eftir útskrift ástvina
sinna. Vert er að rannsaka frekar hvernig styttri sjúkrahúslega
kemur við aðstandendur gerviliðasjúklinga, hvaða úrræði
þeir hafa og hver sé hlutdeild heilbrigðisstarfsmanna við þær
aðstæður.
Kostir og takmarkanir rannsóknar
Kostir rannsóknarinnar eru að hún er framkvæmd á öllum þeim
sjúkrahúsum á Íslandi sem gera gerviliðaaðgerðir á hné og
mjöðm. Gallar rannsóknarinnar eru að sjúklingur valdi sjálfur hvern
hann taldi vera aðstandanda sinn og því höfðu rannsakendur
ekki stjórn á hver varð fyrir valinu en á hinn bóginn er það í anda