Þjóðmál - 01.03.2011, Side 13
Þjóðmál VOR 2011 11
hans . Honum þykir til dæmis nokkuð til
um að geta lýst sig anarkista, stjórnleysingja,
án þess að segjast vera það .
Ögmundur lagðist gegn því að stjórn laga
þingsmönnum, sem valdir voru í ógildum
kosn ingum, yrði breytt í stjórnlagaráðs
menn . Hann sagði á vefsíðu sinni 26 . febrúar
2011 að með því að skipa stjórnlagaráð á
þennan hátt væri gerð tilraun til að fara
fjalla baks leið til að „komast framhjá niður
stöðu“ hæstaréttar . Hann sagðist mundu
greiða atkvæði gegn þingsályktunartillögu
um stjórnlagaráð . „Enda er það svo að
orð skulu standa og grundvallarreglur skal
virða!“ sagði hann .
Ögmundur Jónasson ber ábyrgð á ógild
um kosningum til stjórnlagaþings . Hann
situr í ríkisstjórn undir forsæti Jó hönnu
Sigurðardóttur sem fól helsta lög fræði
ráðgjafa sínum að semja tillögu til þings
ályktunar sem Ögmundur hafnar af því
að með henni sé farið á svig við ákvörð un
hæstaréttar .
Síðsumars 2009 sagði Ögmundur Jón
as son af sér ráðherraembætti vegna þess að
honum misbauð framganga ríkis stjórn ar
innar í Icesavemálinu . Nú situr hann sem
fastast í ríkisstjórn þar sem lagt hefur verið
á ráðin um að komast framhjá ákvörðun
hæstaréttar og þrátt fyrir að kosningar á
hans pólitísku ábyrgð hafi verið ógiltar .
Réttarríkið byggist á virðingu fyrir lögum
og rétti . Í því felst stjórnleysi að grafa undan
þessari virðingu .
Spyrja má: Hve lengi er unnt að þola
slíka stjórnarhætti án þess að veruleika skyn
brenglist? RÚV og fjölmiðlar hollir ríkis
stjórninni og ömurlegum stjórnar hátt um
hennar ýta til dæmis undir þá skoðun að
beita megi bolabrögðum í þágu stjórnar
skrárbreytinga af því að rætt hafi verið um
þær í 64 ár .
Fullyrðingin um að ekkert hafi breyst í
stjórnarskránni síðan 1944 er í fyrsta lagi
röng, í öðru lagi er þetta losaralega tal til
marks um leti í opinberum umræðum og
vaxandi vilja til að skauta hratt yfir mikilvæg
og djúpstæð viðfangsefni, neita að íhuga
þau og segja einfaldlega: „Mér finnst bara
best að klára þetta .“
Hafi eitthvað eitt stuðlað að því að
þjóðin flaut sofandi að feigðarósi á tím
um útrásarinnar var það einmitt þetta
við horf . Þegar menn hrökkva síðan upp
með andfælum, vilja þeir finna sökudólga
og staldra helst við að skort hafi eftirlit,
vekjara klukku fyrir þá sjálfa .
Á árunum 2002 til 2008 snerust fréttir
oft mest um tilraun lögreglu og ákæruvalds
til að koma böndum á Baugsmenn sem
töldu sig besta í útrásinni – viðkvæðið við
því máli var gjarnan á þennan veg: „Er ekki
bara best að hætta þessu? Til hvers er verið
að eyða öllum þessum peningum í að rann
saka og ákæra þessa menn?“
IV .
A ð óathuguðu máli mætti ætla að engum úr stjórnarandstöðu á alþingi dytti í hug
að taka þátt í því með Jóhönnu Sigurðardótt
ur og félögum að vinna að endurskoðun
stjórnarskrárinnar á þann skammarlega veg
sem hér er lýst . Því er hins vegar ekki að
heilsa . Birgitta Jónsdóttir úr Hreyfingunni
er einn þriggja flutningsmanna tillögunnar
um stjórnlagaráð og Jóhanna veðjar á að
nokkrir þingmenn Framsóknarflokksins
leggi henni lið í málinu .
Frá því að ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðar
dóttur var mynduð hafa þingmenn úr
stjórnarandstöðunni hvað eftir annað veitt
henni stuðning í erfiðum og viðkvæmum
málum og þannig lengt líf hennar .
Ríkisstjórnin er þegar komin í hóp verstu
ríkisstjórna Íslandssögunnar . Engu að síður
leggur stjórnarandstaðan sig fram um að
lengja líf hennar . Er það vegna þess að þing