Þjóðmál - 01.03.2011, Page 37
Þjóðmál VOR 2011 35
[þ .e . athugasemdinni frá 6 . desember] . Af
þessu leiðir einnig að Ríkisendurskoðun
telur ekki lengur óljóst á hvaða heimild
ráðuneytið byggði ákvörðun sína, eins og
jafnframt segir í textanum .“
13. janúar 2011. Sigurður Viðarsson,
forstjóri Tryggingamiðstöðvarinnar, segir í
samtali við Viðskiptablaðið:
„Mér finnst fullkomlega fráleitt að Seðla
banki Íslands standi í samkeppnisrekstri,
sérstaklega á þeim grundvelli sem raunin
varð í tilfelli Sjóvár . Aðgerð hins opinbera,
sem að lokum leiddi til þess að Seðlabanki
Íslands er nú kjölfestueigandi Sjóvár, var
óþörf . Á þetta var ítrekað bent þegar verið
var að leita lausna á stöðu Sjóvár en fulltrúar
stjórnvalda hlustuðu ekki á sjónarmið
okkar eða annarra sem hafa besta þekkingu
á markaðnum .“
19. janúar 2011. Tilkynnt um sölu á
52,4% hlutar í Sjóvá til SF1 fyrir 4,9
milljarða króna, þótt ný stjórn Sjóvár
tilkynnti 23 . nóvember slit á söluferlinu frá
því í janúar 2010 . SF1 er fagfjárfestasjóður
í rekstri Stefnis hf ., eignastýringarfyrirtækis
Arion Banka . SF1 var í kaupendahópnum
sem sleit söluferlinu 21 . nóvember 2010 .
Kaupsamningurinn er sagður niðurstaða
söluferlis sem hafi staðið í ár, upp úr hafi
slitnað en þráðurinn hafi verið tekinn upp
að nýju í desember 2010 . Fjármögnun
kaupsamningsins sé ekki lokið og talið að
taki að minnsta kosti nokkrar vikur að afla
fjárins . Kaupin verði innsigluð á vordögum
2011, ekki verði keypt meira í Sjóvá .
Engin tilkynning kemur frá FME . Fjár
hagslegir burðir SF1 eru takmarkaðir við
rúmar 40 milljónir og óljóst hver er eigandi
og stjórnandi sjóðsins .
Seðlabankinn segir að miðað við kaupverð
SF1 nemi heildarverðmæti Sjóvár 9,4
milljörðum króna, það er 2,2 milljörðum
kr . minna en ríkissjóður lagði til Sjóvár til
að forða félaginu frá þroti vorið 2009 .
Samkvæmt tilboði kaupendahópsins
undir forystu Heiðars Guðjónssonar nam
heildarvirði Sjóvár 10,9 milljörðum, 1,5
milljörðum meira en felst í tilboði SF1 .
Sala á 52,4% hlut Í Sjóvá er því á lægra
markaðsvirði en kaupendahópurinn bauð í
janúar 2010 .
28. janúar 2011. Már Guðmundsson
seðlabankastjóri situr fund viðskiptanefnd
ar Alþingis um söluferli Sjóvár . Fram kemur
á fundinum að SF1 hafi ekki undir ritað
kaup samning vegna kaupa á 52,4% hlut í
Sjóvá, heldur sé aðeins um vilja yfir lýs ingu
að ræða . Seðlabankastjóri segist að mestu
bundinn trúnaði um söluferli Sjóvár .
1. febúar 2011. Valgerður Bjarnadóttir,
þing maður Samfylkingarinnar, segir á Al
þingi:
„Það vildi svo til í síðustu viku að einn
af æðstu embættismönnum þjóðarinnar,
seðla bankastjórinn, taldi sig ekki geta skýrt
við skiptanefnd frá atriðum er varða söluna á
Sjóvá, einhverjum atriðum eða við burðum
sem urðu til þess að eftir langar samninga
viðræður var kauptilboð dregið til baka
nokkru fyrir jól .
Í máli seðlabankastjóra kom fram að aðal
lög fræðingur Seðlabankans hefði ráðgast
við aðallögfræðing Alþingis og komist að
þeirri niðurstöðu að í þingsköpum væri ein
ungis kveðið á um trúnaðarskyldu í utan
ríkismálanefnd . Tekið er skýrt fram, virðu
legi forseti, að ég dreg ekki í efa að seðla
bankastjóri, sem aðrir starfsmenn Seðla
bankans, sé bundinn trúnaði um störf sín .
Í þessu tilfelli er til umfjöllunar sala á einu
af þeim fyrirtækjum sem komst í ríkis eigu
í efnahagshamförunum og liggur í augum
uppi að það er erfitt fyrir okkur alþingis
menn að fylgja því eftir hvort allt sé eðlilegt