Þjóðmál - 01.03.2011, Page 46
44 Þjóðmál VOR 2011
er sú, að starfrækslugjaldmiðill fyrirtækisins
er evra . Ef fyrirtækið gerði á hinn bóginn
upp í íslenskum krónum, líkt og raunin er
með flest íslensk sjávarútvegsfyrirtæki4, liti
málið allt öðruvísi út . Þá myndu erlend
lán í bókum fyrirtækisins hækka og lækka,
eftir gengissveiflum krónunnar . Verðmæti
kvótans í bókunum stæði hins vegar í stað,
þrátt fyrir aukið verðmæti í raun við gengis
fall krónunnar, þ .e . framtíðartekjuflæði
vegna kvótans eykst .5 Af þessu leiðir að
eignir geta orðið umtalsvert lægri en skuldir
og eigið fé þar með neikvætt .
Gengi krónunnar hefur þannig mikil áhrif
á afkomu greinarinnar . Tap er gjaldfært
í ársreikningum sjávarútvegsfyrirtækja
þegar krónan veikist, en hagnaður þegar
hún styrkist . Á móti kemur að framlegð
(EBITDA) eykst í kjölfar gengisfalls . Að
sama skapi lækkar framlegð greinarinnar
þegar gengið styrkist, sem veldur skerðingu á
greiðslu getu afborgana af lánum . Skuldirnar
lækka hins vegar við styrkingu krónunnar
og vegur það upp á móti .
Tökum lítið dæmi til að skilja málið
örlít ið betur . Sjávarútvegsfyrirtækið X
tekur lán árið 2006 til að kaupa kvóta, en
fyrirtækið gerir upp í íslenskum krónum .
Lánið er 100 kr . í erlendri mynt . Árið 2009
er eignin sú sama, 100 kr ., en lánið stendur
þá í 200 kr sökum gengisfalls krónunnar .
Eigið fé er að sama skapi neikvætt um
4 Stefán B . Gunnlaugsson, Ögmundur Knútsson og Jón
Þorvaldur Heiðarsson: Áhrif innköllunar aflaheimilda
á stöðu íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja. Rannsókna og
þróunarmiðstöð Háskólans á Akureyri, 2010 . 13 . bls .
5 Þannig mætti hugsanlega leiða að því rök að kvótinn væri
rangt skráður í bókum fyrirtækisins, sérstaklega ef hann
sætti virðisrýrnunarprófi, enda um óefnislega eign að ræða .
Virðisrýrnunarprófið byggir m .a . á núvirðingu sjóðsflæðis,
en ef eignin hefur sjálfstætt markaðsvirði þá gildir það
frekar til að meta hvort virðisrýrnun hefur farið fram . Sterk
rök hníga samt að því að núvirðing sjóðsflæðis ætti hér
betur við . Þannig myndi verðmæti kvótans sveiflast í takt
við tekjurnar sem stafa af eigninni, að því gefnu að leyfilegt
væri að endurmeta óefnislegar eignir til hækkunar í bókum
fyrirtækja .
100 kr . Í ársreikningi fyrir árið 2008 er
gríðarlegt tap gjaldfært vegna hækkunar
skulda í bókum félagsins . En þar með er
bara hálf sagan sögð, því tekjur fyrirtækisins
eru jafnframt í erlendum gjaldmiðlum .
Því má búast við hærri framlegð meðan
gengi krónunnar helst veikt, og jafnframt
meiri hagnaði eftir árið 2008 þegar tapið
var gjaldfært . Dæmið snýst svo við ef
krónan styrkist á ný, hagnaður myndast
vegna lánsins, en framlegð minnkar og
hagnaður um leið . Þetta kemur heim og
saman við áðurnefnda skýrslu, en í henni
kemur fram að EBIDTAhlutfall6 íslenskra
sjávarútvegsfyrirtækja hafi hæst verið 25%7
árið 2008, enda er meginþorri útgjalda
íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja í íslenskum
krónum, s .s . kaup á kvóta, laun8 og annar
rekstrarkostnaður . Veiking krónunnar
hefur því jákvæð áhrif á þessa liði, að
því gefnu að verð á þeim hækki ekki sem
sumpart er vissulega óraunhæft . Þetta má
sjá glöggt á myndinni á næstu síðuu .
Aflaheimildir eru, líkt og hlutabréf, ávís
un á vænt framtíðartekjuflæði .9 Munurinn
er hins vegar sá, að framtíðartekjuflæði
afla heimildanna eykst samhliða hækkun
skuld anna, þ .e . nær allar tekjur íslenskra
sjávar útvegsfyrirtækja eru í erlendum gjald
miðli . Þær nægja því vel til að standa undir
greiðslum á lánum vegna þeirra . Bókfært
virði eignanna hækkar þó ekki, líkt og fram
hefur komið, en við það verður eigið fé
fyrirtækisins neikvætt . Það þýðir þó ekki
að fyrirtækið geti ekki mætt fram tíðar
skuldbindingum sínum .
6 EBIDTA hlutfall er EBITDA/Tekjur .
7 Áhrif innköllunar aflaheimilda á stöðu íslenskra
sjávarútvegsfyrirtækja. 18 . bls .
8 Laun sjómanna eru reiknuð miðað við verðmæti afla, svo
þetta á augljóslega ekki við um þau .
9 Hlutabréf geta lækkað í verði og þannig getur myndast
neikvætt tekjuflæði af þeim . Líklegt er að aflaheimildirnar
skili okkur alltaf einhverjum tekjum, þó svo að verðmæti
þeirra á markaði sé breytilegt .