Morgunblaðið - 11.09.2015, Page 4

Morgunblaðið - 11.09.2015, Page 4
Ljósmynd/Steinar Halldórsson Leiðangur Einn maður, þrír reiðskjótar og hafsjór af sauðfé. Réttað verður í Hrunaréttum í Hrunamannahreppi í dag eftir fjallferðir undanfarinna daga. Fyrstu fjárréttir á Suðurlandi í ár fara fram í dag þegar réttað verður í Skaftholtsréttum í Gnúpverja- hreppi og Hrunaréttum í Hruna- mannahreppi. Lengstu göngur taka marga daga. „Við höfum fengið góðveður, þokur og rok. Það hefur gengið á ýmsu,“ segir Steinar Halldórsson, fjallkóngur Hrunamanna, en þegar Morgunblaðið náði sambandi við hann viðraði einkar vel til reksturs. Og þó ekki. „Féð vill ekki heim af fjallinu núna. Það er svo gott veð- ur,“ segir Steinar kíminn í bragði áður en hann kveður. Ólafur Jónsson, trússari fyrir Gnúpverja, segir yfirstandandi ferð vera þá 97. á sínum ferli. „Ég hef farið þrjár ferðir á hausti í nokkuð mörg ár núna,“ segir Ólafur. Hann segist telja að féð komi vel undan sumri í ár. Réttastæði Skaftholtsrétta er tal- ið vera eitt það elsta á Íslandi, frá 12. öld, og eru réttin listilega hlaðin úr Þjórsárhraungrýti. Um 2.500 fjár eru í því safni sem nú er réttað í Skaftholtsréttum, en því hefur farið fjölgandi nú allra síðustu ár, samkvæmt upplýsingum frá Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Réttað eftir langar fjallferðir  Réttað í Skaftholts- og Hrunaréttum í dag  Fyrstu réttir á Suðurlandi í ár Ljósmynd/Ólafur Jónsson Glaðbeitt Helga Höeg Sigurðardóttir og Ari B. Thorarensen í leitum. Ljósmynd/Ólafur Jónsson Bringa Næsti höfði norðan Gaukshöfða kallast Bringa og gamli 100 króna seðillinn sýndi fjallsafn Gnúpverja undir henni eins og margir eflaust muna. 4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. SEPTEMBER 2015 Benedikt Bóas benedikt@mbl.is Ferðafélag Íslands (FÍ) er búið að taka vatn af, loka og læsa skálunum á Kili, við Einifell, í Hvítárnesi, Þverbrekknamúla og í Þjófadölum. Það sama á við um Valgeirsstaði, skála FÍ í Norðurfirði á Ströndum. „Um næstu helgi lokum við skál- anum í Nýjadal og í beinu fram- haldi af því erum við að gera okkur klár að loka í Hrafntinnuskeri, Álftavatni, Hvanngili og í Botnum í Emstrum,“ segir Stefán Jökull Jak- obsson hjá Ferðafélagi Íslands. Tímasetningin er engin tilviljun en flestar áætlunarferðir hætta að ganga inn í Landmannalaugar og Þórsmörk þann 15. september. „Þá er eðlilegt að fara og ganga frá. Haustveðrin eru líka aldeilis farin að láta á sér kræla. Það er lítið um bókanir þessa síðustu daga en það eru enn margir túristar hér á landi sem eru ekki skráðir í kerfið. Þeir mæta bara á BSÍ og kaupa sér rútu- ferð eitthvert og enginn skiptir sér af því. Þeir labba síðan af stað, ekki með næga þekkingu á því hvert þeir eru að fara og hvaða aðstæður eru að myndast,“ segir hann. Hundsuðu viðvaranir Í gær þurftu björgunarsveitir að sækja karlmann og konu í Land- mannalaugar sem hlustuðu ekki á viðvaranir skálavarða, samkvæmt upplýsingum Stefáns. Mátti litlu muna því karlmaðurinn var með einkenni ofkælingar. „Við höfum verið að lenda í því bæði í fyrra og árið þar á undan að útlendingar eru að reyna að kom- ast í skálana okkar eftir að við er- um búnir að loka og læsa. Það kom fyrir í Baldursskála að gluggar voru skildir eftir opnir og það olli talsverðu tjóni. Það voru vatns- og snjóskemmdir og kostaði okkur tvær ferðir á sérútbúnum jeppum að gera við til að koma í veg fyrir að húsið eyðilegðist endanlega. Neyðaropnanir eru allsstaðar til staðar í öllum skálum. Fólk kemst inn í anddyri og þar eru neyðar- talstöðvar. Við erum að merkja það betur því fólk hefur verið að brjóta rúður til að komast inn – svo eru dyrnar opnar,“ segir Stef- án. Hann segir að hámarksnýting sé á skálunum í rúmar fimm vikur en bókanir fari frekar hratt niður eftir verslunarmannahelgi. „Það er stundum erfitt að halda húsunum við, sem dæmi þá var vegurinn um Fjallabak ekki opnaður fyrr en 16. júlí og við rétt náðum að opna þann skála þegar við þurftum að fara að loka honum.“ Lokanir duga ekki gegn ferðamönnum  Ferðamenn brjótast inn í skála FÍ  Stórtjón í fyrra þegar gluggar voru skildir eftir opnir  Lítið bókað á haustmánuðum Morgunblaðið/Ómar Haust Stefán Jökull Jakobsson segir að nýting í skálum Ferðafélags Íslands minnki hratt eftir verslunarmannahelgi og þeim hefur nú flestum verið lokað. Ekki minna en gerðar- dómur ákvað  Trúnaðarmenn SFR fóru yfir stöðuna Ómar Friðriksson omfr@mbl.is „Tónninn er afar sterkur. Skilaboðin eru þau að menn ætla ekki að sætta sig við að fá minni launahækkanir í kjarasamningunum en búið er að semja um við hluta ríkisstarfsmanna og kom fram í niðurstöðu gerðar- dóms. Menn eru mjög fastir á því,“ sagði Árni Stefán Jónsson, formaður SFR, að loknum fundi trúnaðar- manna af öllu landinu í gær. Allt situr fast í kjaradeilu SFR, Sjúkraliðafélags Íslands og Lands- sambands lögreglumanna við ríkið og hefur ekki verið boðað til nýs fundar. Alls sátu um 120 trúnaðarmenn fund SFR sem haldinn var í gær til að ræða þá alvarlegu stöðu sem upp er komin. Ákveðið hefur verið að boða til baráttufundar í Háskólabíói á þriðjudag og segir Árni Stefán að fljótlega í framhaldi af honum verði væntanlega aftur boðað til trúnaðar- mannaráðsfundar, sem taki endan- lega ákvörðun um hvort farið verður í atkvæðagreiðslu um verkfall. Brot Forlagsins stað- fest, en sekt lækkuð Hæstiréttur hefur staðfest brot Forlagsins á samkeppnislögum og dæmt félagið til að greiða 20 millj- ónir króna í sekt. Upphæðin er fimm milljónum lægri en sú stjórn- valdssekt sem Samkeppniseftirlitið lagði á Forlagið árið 2011. Sam- keppniseftirlitið komst að þeirri niðurstöðu í ákvörðun í júlí 2011 að Forlagið ehf. hefði brotið gegn skil- yrðum í ákvörðun eftirlitsins. Fimm dómarar dæmdu í málinu og skiluðu tveir þeirra sératkvæði. Töldu þeir að einnig ætti að stað- festa niðurstöðu héraðsdóms um brot Forlagsins og 25.000.000 kr. sekt. Hluti Berlínarmúrs- ins til Reykjavíkur Borgarráð Reykjavíkur samþykkti í gær að þiggja boð listamiðstöðv- arinnar New West Berlin um að taka við hluta úr Berlínarmúrnum til eignar og varanlegrar uppsetn- ingar í Reykjavíkurborg. Í tillögu staðgengils borgarstjóra kemur fram að kostnaður er áætl- aður 1,5 milljónir króna og mun verkefnið rúmast innan gildandi fjárhagsáætlunar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.