Morgunblaðið - 11.09.2015, Síða 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. SEPTEMBER 2015
Lionsklúbburinn Víðarr færði nýlega
legudeild hjarta- og lungnaskurðdeild-
ar 12E á Landspítala Hringbraut að
gjöf brjóstholsdren af nýjustu gerð.
Á deildinni liggja sjúklingar eftir
hjarta- og brjóstholsskurðaðgerðir og/
eða brjóstholsáverka. Stór hluti sjúk-
linganna fær brjóstholsdren og eru
þessi tæki því stöðugt í notkun, segir í
frétt frá Landspítalanum. Brjósthols-
dren af þeirri tegund sem nú var gefið
er með hleðslurafhlöðu sem gerir
sjúklingum kleift að komast fyrr á
fætur en ella og flýtir þannig fyrir
bata þeirra.
Hópur félagsmanna í Lions-
klúbbnum Víðarr afhenti gjöfina form-
lega á hjarta- og lungnaskurðdeild
12E þriðjudaginn 2. september síðast-
liðinn. Voru þeim færðar þakkir fyrir
þessa höfðinglegu gjöf. Við það tæki-
færi var meðfylgjandi mynd tekin af
Lionsmönnum og starfsfólki deildar-
innar.
Heildarverðmæti tækisins er nærri
700.000 krónur.
Flýtir fyrir bata
hjartasjúklinga
Ljósmynd/Landspítali
Dómnefnd hefur skilað umsögn um
umsækjendur um embætti dómara
við Héraðsdóm Reykjavíkur. Emb-
ættið var auglýst þann 12. júní sl.
og bárust alls sjö umsóknir.
Samkvæmt lögum um dómstóla
fór innanríkisráðuneytið þess á leit
við dómnefnd að hún léti í té um-
sögn um hæfni umsækjenda og skil-
aði hún umsögn sinni þann 1. sept-
ember sl. Niðurstaða dómnefndar-
innar var sú að þrír umsækjenda
væru hæfastir til að hljóta skipun í
embættið og að ekki væru efni til að
gera upp á milli hæfni þeirra, segir
í frétt frá ráðuneytinu.
Þeir eru: Arnar Þór Jónsson,
lektor við Háskólann í Reykjavík,
Lárentsínus Kristjánsson hæsta-
réttarlögmaður og Pétur Dam
Leifsson, dósent við lagadeild Há-
skóla Íslands. Auk þeirra sóttu um
embættið þau Berglind Bára Sigur-
jónsdóttir, skrifstofustjóri umboðs-
manns Alþingis, Hafsteinn Dan
Kristjánsson, aðstoðarmaður um-
boðsmanns Alþingis, Stefanía G.
Sæmundsdóttir, settur saksóknari,
og Stefán Erlendsson, héraðsdóms-
lögmaður og lögfræðingur hjá
Vegagerðinni.
Þrír taldir hæfastir
til að gegna emb-
ætti héraðsdómara
Morgunblaðið/Þorkell
Í dag, föstudag-
inn 11. sept-
ember kl. 16.00,
verður kaflinn
Eiði-Þverá á
Vestfjarðavegi
formlega opn-
aður á hefðbund-
inn hátt. Ólöf
Nordal
innanríkisráð-
herra mun þá klippa á borða með
aðstoð Hreins Haraldssonar vega-
málastjóra. Athöfnin fer fram við
áningarstað sem er rétt austan
brúarinnar yfir Mjóafjörð.
Vestfjarðavegur (60) er aðal-
samgönguæð sunnanverðra Vest-
fjarða. Hinn nýi vegur sem nú er
formlega tekinn í notkun liggur frá
Eiði í Vattarfirði að Þverá í Kjálka-
firði. Nýi vegurinn er 16 km langur
og leysir af hólmi 24 km langan
malarveg og styttir því leiðina um 8
km. Vegurinn þverar Mjóafjörð og
Kjálkafjörð. Kostnaður var í upp-
hafi áætlaður 3,6 milljarðar króna
og stefnir í að lokakostnaður verði
3,7-3,8 milljarðar á sambærilegu
verðlagi, segir í frétt frá Vega-
gerðinni.
Nýr vegur opnaður
formlega í dag
Ólöf Nordal