Morgunblaðið - 11.09.2015, Síða 24
24 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. SEPTEMBER 2015
Arvo Pärt, fæddist þann 11.
september, árið 1935 í Paide í
Eistlandi. Paide er lítill bær sem
hefur lítið breyst frá barnæsku
Arvos. Hann hefur lýst því sjálfur
sem þorpi þar sem lífið leið áfram
á rólegan og einfaldan hátt. For-
eldrar Arvo skildu þegar hann var
þriggja ára og mamma hans flutti
með hann til Rakvere, nokkuð
stærri borgar í norð-austurhluta
Eistlands, miðja vegu milli Tallinn
og St. Pétursborgar. Rakvere er
dæmigerð eistnesk borg með lág-
reistum timburhúsum og miðborg
frá miðöldum ásamt rústum af
kastala þar sem börnum þykir
gaman að leika sér. Til er falleg
saga af Arvo frá því hann var lítill
strákur í Rakvere. Í miðju þorpinu
var torg og á miðju torginu var lít-
ill turn þar sem útvarpað var tón-
list. Arvo hjólaði hring eftir hring í
kringum turninn og hlustaði.
1953 flutti Arvo til Tallinn þar
sem hann lærði tónsmíðar í
konservatoríinu hjá Heino Eller,
sem sjálfur hafði stundað nám í St.
Pétursborg, á fiðlu hjá Leopold
Auer og tónsmíðar hjá Alexander
Glazunov. Aðgangur að upplýs-
ingum var mjög takmarkaður í
Sovétríkjunum og það gilti líka um
tónlist. Heino Eller, sem fylgdist
alla tíð með því sem hann komst
yfir af nýrri tónlist, líka úr vestr-
inu, komst yfir bækur Herberts
Eimerts og Ernsts Kreneks um
tólftóna tónsmíðatækni. Arvo gat
því lesið bækur sem voru strang-
lega bannaðar í Sovétríkjunum og
þannig lært um hluti sem flestum
voru huldir. Þannig hófst hans
fyrsta tónsmíðaskeið sem kennt er
við þessa tónsmíðatækni. Sú tón-
list er í engu lík þeirri sem við eig-
um að venjast frá Pärt í dag. Arvo
sagði síðar um þetta tímabil að
honum þætti erfitt að tala um hluti
sem gerðust fyrir svo löngu: „En
ég get fullvissað þig um að sálarlíf
mitt á þessum tíma var svo
sprungum brostið að þegar maður
ber það saman við andrúmsloft og
tónmál tólftónatónlistar virkar hún
vinsamlegri.“
Tilraunir Pärts með vestræn
áhrif á tónlist sína leiddu hann
strax í ónáð hjá stjórnvöldum en
það var ekki fyrr en hann samdi
Credo (trúarjátningu) að steininn
tók úr. Verkið var frumflutt við
gríðarlega góðar undirtektir
áheyrenda en síðan var hann boð-
aður í yfirheyrslu, honum varð
ljóst að hann væri kominn út í
horn. En fleira hvíldi á Pärt. Hann
var hvorki ánægður með tónlistina
sem hann samdi né líf sitt á þess-
um tímapunkti. Hann var í tónlist-
ar- og tilvistarlegu öngstræti.
Næstu átta árin leitaði Arvo að
sínu eigin tónmáli, þetta var ekki
einungis tónlistarleg
leit heldur líka and-
leg.
Arvo og kona hans,
Nora, snerust til
rússnesku rétttrún-
aðarkirkjunnar og má
segja að andlegt inn-
tak tónlistar Pärts
komi síðan úr þeirri
átt. Einn af upphafs-
punktum leitarinnar
var þó þar sem hann
var staddur í bókabúð
í Harju stræti í Tall-
inn. Þar var verið að
spila gregoríska tón-
list. Hann komst svo
að orði: „Lífið var svo
fátækt og tilgangs-
laust. Hvílík fegurð
sem ég uppgötvaði í
gegnum gamla tón-
list! Ég átti alla
þessa vini allt um
kring en síðan heim-
sótti ég af tilviljun þessa bókabúð í
Harju stræti... tónlistin hlýtur að
búa yfir einhverjum kröftum fyrst
að hún getur hrifið mann svona. …
Þetta byrjaði dropa fyrir dropa.
Rétt eins og sakleysi getur horfið
dropa fyrir dropa. Þú verður að
taka lítil skref afturábak og horf-
ast í augu við það sem áður sneri í
bak þitt.“
Arvo tók að kynna sér gamla
tónlist. Hann talaði um að það eina
sem hann vildi væri ein laglína
sem lifði og andaði sjálf, „hrein
laglína, nakin rödd sem er grunn-
ur alls annars“. Þessi eina rödd,
þessi eining sem Arvo talar þarna
um, varð miðpunktur leitar hans.
Það var ekki fyrr en hann gafst í
rauninni upp og viðurkenndi fyrir
sjálfum sér að ein rödd væri ekki
nóg að hann fann það sem hann
leitaði. Árið 1976 byrjaði hann að
prófa að setja inn aðra rödd sem
lék alltaf eina af þremur röddum
sama þríhljómsins meðan laglínan
leið frjálslega áfram. Á þessum
tímapunkti var eins og
allar flóðgáttir brystu
og tónlistin streymdi
fram. Árið 1977 samdi
hann 16 verk, mörg
þeirra eru á meðal
þekktustu verka hans
í dag, þar á meðal
Fratres (Bræður).
Árið 1980 flúði Pärt
með fjölskyldu sína
frá Sovétríkjunum.
Þau voru fyrsta árið í
Vín í Austurríki en
settust síðan að í
Berlín þar sem þau
bjuggu næstu 20 árin.
Á þeim tíma komst
Pärt í samband við
Manfred Eicher, eig-
anda ECM-hljóm-
plötuútgáfunnar, sem
er útgefandi hans enn
þann dag í dag. Árið
1984 kom út fyrsta
platan í samstarfi
þeirra, Tabula Rasa, sem hefst
einmitt á verkinu Fratres. Miðað
við flutning tónverka er Pärt vin-
sælastur núlifandi tónskálda í
heiminum.
Arvo Pärt býr ásamt konu sinni
í Laulasmaa, tæpa 40 km fyrir ut-
an Tallinn.
Kammersveit Reykjavíkur flytur
Fratres í fimm útsetningum Pärts
í Langholtskirkju að kvöldi föstu-
dags 11. september. Þetta er ekki
í fyrsta sinn sem Kammersveitin
flytur þetta verk heldur gerði hún
það einnig á sama stað árið 1998.
Pärt var sjálfur á þeim tónleikum
og má segja að koma hans hingað
þá hafi orðið kveikjan að því að
hann samdi verk fyrir Evrópukór
ungmenna sem flutt var á árinu
2000 undir stjórn Þorgerðar Ing-
ólfsdóttur. Í tilefni af því kom Pärt
hingað til lands í annað sinn og
fylgdist með æfingum kórsis í
Reykholti í Borgarfirði.
Kammersveitin hyllir
Arvo Pärt áttræðan
Eftir Pál Ragnar Pálsson
»Miðað við
flutning tón-
verka er Pärt
vinsælastur nú-
lifandi tónskálda
í heiminum.
Páll Ragnar
Pálsson
Höfundur er tónskáld.
Tónskáldið Arvo talaði um að það eina sem hann vildi væri ein laglína sem
lifði og andaði sjálf, „hrein laglína, nakin rödd sem er grunnur alls annars“.
Ljósmynd/CC: K. Kikkas
Þýsku rannsókna-
samtökin Helmholz
eru í ár 20 ára gömul
og hafa í tvö ár gefið
út vandað tímarit
annan hvern mánuð
með ágripi valinna
efna rannsóknanna.
Starfsmenn eru um
38.000 og hafa til um-
ráða um 4 milljarða
evra, að meiri hluta
opinbert fé. Af starfs-
liðinu eru um 15.000 vísindamenn,
yfir 6.000 doktorar og yfir 1.600 í
starfsþjálfun. Árið 2013 nýttu 8.534
erlendir vísindamenn sér aðstöð-
una hjá Helmholz. Í Helmholz Per-
spektiven nr. 02 2015 er yfirlits-
grein með heiti þessa pistils og
tipla ég á sumu af því sem mér
finnst áhugavert í henni.
Síðan 2008 hefur farið af stað
viðtæk rannsókn á bakteríum í og
á mannslíkamanum en talið er að
þar muni finnast nálægt 100 millj-
arðar baktería, sveppa og vírusa.
Þetta er tíu sinnum fleira en allar
frumur líkamans til samans. Án
þeirra gætum við ekki þrifist, því
þær sjá okkur fyrir næring-
arefnum og hjálpa okkur við að
melta matinn. Hætta myndast bara
þegar óboðnar gestabakteríur ná
að fjölga sér eða stöðugt jafnvægi
örvera líkamans raskast. Manns-
augað greinir ekki minna en 0,1
mm og flestar einfrumuörverur eru
smærri en það. Það er fyrst 1677
að Hollendingurinn Leeuwenhook
lýsir bakteríum með hjálp smásjár
sem er aðaltækið enn í dag. Það
var svo Frakkinn Pasteur sem á
árunum 1857-1876 skýrði gerj-
unina, eða líf án súrefnis. Þjóðverj-
inn Koch uppgötvaði síðan að bakt-
eríur yllu sjúkdómum: miltisbrandi
og berklum, 1876 og 1882. Það var
svo 1928 sem bakteríudrepandi
fúkkalyfið penisillín var þróað af
Alexander Fleming. 1983 sýndu
Ástralarnir Marshall og Warren
fram á að magabakterían Helico-
bakter pylori gæti
valdið magasári. Bara í
þörmunum eru taldar
vera 10.000 tegundir
og í ristlinum einum
eru um 2 kg af örver-
um. Mikill fjöldi mis-
munandi gerla er líka á
tönnum okkar. Við
einn tungukoss er
áætlað að um 80 millj-
ónir örvera fari á milli.
Bara 1% baktería eru
þekktar í dag. Við get-
um einfaldlega ekki lif-
að án baktería okkar sem færa
okkur vítamín og næringu, eyða úr-
gangi og vernda okkur fyrir alls
kyns sjúkdómum. Það er því unnið
að því um þessar mundir að virkja
bakteríur, genabreyttar, til að
lækna sjúkdóma. Þetta gæti notast
t.d. líkt og efna- og geislameðferð
við krabbameinslækningar. Allar
bakteríur í okkar hafa alls um 8
milljónir gena en við sjálf aðeins
rúm 22.000. Bakterían Clostridium
botulinum, sem öll niðursuða mat-
væla byggist á að eyða, er svo eitr-
uð að 1 kg eiturs hennar myndi
nægja til að útrýma mannkyninu!
Elsta lifandi vera á jörðinni er ein-
mitt baktería sem fannst árið 2000 í
Mexíkó og er talin 250 milljón ára
gömul. Bakteríur og sveppar sjá
um að brjóta niður lífrænt efni í
náttúrunni og eru ómissandi til að
viðhalda þannig hringrás lífefn-
anna. Ég hvet alla sem geta og
hafa áhuga á nýjustu vísindum og
ransóknum að skoða Helmholz Per-
spektiven á netinu (gúggla: helm-
holtz.de/perspektiven ).
Vinir okkar,
bakteríurnar
Eftir Pálma
Stefánsson
Pálmi
Stefánsson
» Örverur í og á okkur
eru tíu sinnum fleiri
en frumur okkar. Við
eigum allt undir því
komið að bakteríuflóra
okkar sé í jafnvægi.
Höfundur er efnaverkfræðingur.
Þrettán borð í Gullsmára
Góð mæting var í Gullsmára
mánudaginn 7. september. 26 pör
mættu til leiks. Úrslit í N/S:
Pétur Antonss. - Guðlaugur Nielsen 344
Ari Þórðarson - Sigurður Björnss. 313
Ragnh. Gunnarsd. - Sveinn Sigurjónss. 305
Jónína Pálsd. - Þorleifur Þórarinss. 292
Unnar Guðmss. - Guðm. Sigursteinss. 290
A/V
Kristín G. Ísfeld - Óttar Guðmss. 348
Sigr. Benediktsd. - Sigurður Þórhallss. 317
Guðbjörg Gíslad. - Sigurður Sigurðss. 298
Birgir Ísleifss. - Jóhann Ólafsson 297
Sigurður Njálsson - Pétur Jónsson 297
Sveit Lögfræðistofunnar vann
bikarkeppnina
Sveit Lögfræðistofu Íslands sigr-
aði í bikarkeppni Bridssambandsins
sem lauk um helgina. Sveitin spilaði
til úrslita gegn svein Skjanna. Loka-
tölur 175-117.
Í sigursveitinni spiluðu Jón Bald-
ursson, Sigurbjörn Haraldsson,
Sverrir Ármannsson, Steinar Jóns-
son, Aðalsteinn Jörgensen og Bjarni
H. Einarsson.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| brids@mbl.is