Morgunblaðið - 26.09.2015, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 2015
Tenerife
20.nóvember í 11 nætur
Verð frá 119.900 kr.
og 12.500 Vildarpunktar
Á mann m.v. 2 fullorðna í íbúð á Tenerife Sur.
Verð án Vildarpunkta 129.900 kr.
VITA - Skógarhlíð 12 - Sími 570 4444Flogið með Icelandair
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
„Við höfum ávallt gætt að því þegar
verkefni eru flutt til sveitarfélaga að
því fylgi tekjustofnar. Að því leytinu
til ætti það ekki að eiga rætur sínar í
tilflutningi verkefna að sveitarfélög-
in telji sig þurfa að styrkja tekju-
stofnana,“ segir Bjarni Benedikts-
son fjármálaráðherra um það sem
kom fram á fjármálaráðstefnu sveit-
arfélaganna í vikunni að brýnt væri
að auka tekjurnar og fá meiri hlut-
deild í skattstofnum ríkisins.
Á fjármálaráðstefnunni voru
kynntar ýmsar hugmyndir um tekju-
öflun, m.a. að öll mannvirki yrðu háð
fasteignamati og núverandi undan-
þágur frá fasteignaskatti yrðu af-
numdar. Bjarni segist ætíð vera
reiðubúinn til viðræðna um að fækka
undanþágum og breikka skattstofna.
„Mér sýnist að það sem þrengir
einkum að sveit-
arfélögunum
núna séu þessar
miklu launa-
hækkanir sem
samið hefur verið
um. Fara þarf yf-
ir hvernig hægt
er að taka á því.
Annars slær það
mann ekkert sér-
staklega vel ef all-
ar hugmyndir eiga að ganga út á að
ríkið gefi eftir af tekjum og þær fær-
ist til sveitarfélaganna án þess að ný
verkefni komi til,“ segir Bjarni en
ítrekar að fullt tilefni sé til að ræða
hugmyndir um breikkun skatt-
stofna.
Bjarni bendir jafnframt á að sveit-
arfélögin hafi notið góðs af ýmsum
aðgerðum stjórnvalda á seinni árum.
Nefnir hann bankaskattinn sem
dæmi, sá skattur hafi skilað miklum
tekjum til sveitarfélaganna. Sama
megi segja um úttöku séreignar-
sparnaðar. Þá hafi skattar verið
hækkaðir á undanförnum árum og
sveitarfélögin fengið sína hlutdeild
af því gegnum jöfnunarsjóðinn. Það
sé því áhyggjuefni að þrátt fyrir
þetta sé víða þröngt í búi hjá sveit-
arfélögunum.
Varðandi þær hugmyndir sveitar-
félaganna að þau fái meiri tekjur af
umferð og ferðaþjónustu segir
Bjarni þau óbeint fá þátttöku í aukn-
um umsvifum í ferðaþjónustu. Hins
vegar er hann til í viðræður um end-
urskoðun opinberra gjalda í sam-
göngum. Gjaldtakan sé flókin og
þurfi heildstæða skoðun. bjb@mbl.is
Reiðubúinn í viðræður
Áhyggjuefni að þröngt sé í búi hjá sveitarfélögunum
Bjarni
Benediktsson
Sá möguleiki er fyrir hendi að flýta opnun Norð-
fjarðarganga frá því sem áætlanir gerðu ráð fyrir
en í gær var lokið við að sprengja göngin. Áætl-
anir gerðu ráð fyrir opnun ganganna árið 2017,
en Ólöf Nordal innanríkisráðherra segir að verk-
takar og Vegagerðin telji mögulegt að flýta opn-
uninni án þess að til aukins kostnaðar komi. „Ég
opna göngin fyrr. Vert sé að athuga þann mögu-
leika. Göngin verða rúmir sjö og hálfur kílómetri
að lengd og liggja í gegnum fjallgarðinn vestan
þéttbýlisins í Eskifirði að Fannardal innst í Norð-
firði. Nýir vegir verða lagðir og verða um 2 km
Eskifjarðarmegin og 5,3 km Norðfjarðarmegin.
vidar@mbl.is
hef fengið þau skilaboð að það kunni að vera
hægt að flýta opnun ganganna og jafnvel þannig
að það hafi ekki áhrif á heildarkostnað, fyrst og
fremst með því að hliðra til framkvæmdum,“ seg-
ir Ólöf. Hún segir að búið sé að setja peninga fyrir
framkvæmdunum til hliðar, en segir þó að engin
ákvörðun hafi verið tekin um hvort hægt verði að
Lokið við að sprengja fyrir Norðfjarðargöngum í gær
Ljósmynd/Austurfrétt/Gunnar Gunnarsson
Hugsanlegt að flýta opnun án kostnaðar
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Samningafundur hefur verið boðaður
hjá ríkissáttasemjara á mánudag í
kjaradeilu starfsmanna og vinnuveit-
enda í álveri Rio Tinto Alcan í
Straumsvík (ÍSAL). Er það fyrsti
samningafundurinn í deilunni síðan á
föstudag í síðustu viku.
Kurr er komin í stéttarfélög starfs-
manna álversins eftir bréf sem Sam-
tök atvinnulífsins, fyrir hönd ÍSAL,
sendu félögunum í vikunni. Þar er því
haldið fram að atkvæðagreiðsla um
yfirvinnubann í álverinu, sem hefur
verið í gildi frá 1. ágúst sl., hafi verið
ólögleg. Félögin hafa svarað þessu
bréfi, með aðstoð lögfræðings ASÍ,
Magnúsar M. Norðdahl, en þar kem-
ur fram að yfirvinnubanninu hafi ver-
ið aflýst. Jafnframt er lýst óánægju
með framkomu SA og ÍSAL og vitnað
til fundar í húsakynnum ríkissátta-
semjara 11. ágúst sl., þegar boðuðu
allsherjarverkfalli var aflýst. Þar hafi
engar athugasemdir verið gerðar af
hálfu SA og ÍSAL við boðun og fram-
kvæmd yfirvinnubannsins. Síðan þá
hafi undanþágubeiðnir ÍSAL frá yf-
irvinnubanni verið settar fram og af-
greiddar athugasemdalaust.
„Félögin mótmæla þeim lagarök-
um sem fram koma í erindi SA varð-
andi gildi atkvæðagreiðslu um boðun
yfirvinnubanns og allsherjarverkfalls
í einu lagi,“ segir m.a. í bréfi lögfræð-
ings ASÍ.
Gylfi Ingvarsson, talsmaður samn-
inganefndar verkalýðsfélaganna, er
ósáttur við framkomu SA og ÍSAL.
Engar athugasemdir hafi verið gerð-
ar við yfirvinnubannið á fyrrnefndum
fundi í ágúst með sáttasemjara.
Trúnaðarbrestur
„Mér finnst það alvarlegt þegar
menn standa ekki við heiðursmanna-
samkomulag og gefin loforð. Hér hef-
ur orðið trúnaðarbrestur og þetta
mun herða deiluna,“ segir Gylfi og
útilokar ekki að félögin íhugi ein-
hverjar aðgerðir ef samningafundur á
mánudag skili engu. Félögin sem um
ræðir eru Félag iðn- og tæknigreina,
Félag rafeindavirkja, Félag íslenskra
rafvirkja, Félag vélstjóra og málm-
tæknimanna, MATVÍS, VR og Hlíf.
Kurr í stéttarfélögunum
Starfsmenn álversins í Straumsvík hafa hætt yfirvinnubanni Óánægja með
erindi SA um að bannið hafi verið ólögmætt Samningafundur á mánudag
Morgunblaðið/Ómar
ÍSAL Kjaradeilur standa enn yfir.
Veðurstofan var-
ar við vatnavöxt-
um sem búist er
við á sunnan- og
suðaustanverðu
landinu í dag.
Hvatt er til var-
úðar við vatnsföll
og að hugað sé
að hættu á
skriðuföllum á
úrkomusvæðum.
Búist er við vindhraða upp á 18-
23 m/s sunnan- og vestantil á land-
inu og á miðhálendinu í dag. Vind
lægir með kvöldinu samkvæmt spá
en hiti verður um 6-10 stig suðvest-
antil og 4-12 stig fyrir norðan og
austan um helgina.
Búist er við úrkomu sunnan- og
vestantil yfir helgina en nokkuð
þurru og hægu veðri norðaustantil.
Varað við vatnavöxt-
um sunnan- og suð-
austanlands í dag
Rok Varað er við
stormi í dag.
Átakinu Á allra vörum bárust um 14
milljónir króna í árlegri sjónvarps-
söfnun þess í gærkvöldi. Við það
bætast tekjur af sölu gloss tengdri
átakinu en skipuleggjendur búast
við rúmlega 20 milljónum króna af
þeirri sölu. Endanlegar tölur liggja
þó ekki fyrir fyrr en eftir helgi.
Gróa Ásgeirsdóttir, ein skipu-
leggjenda söfnunarinnar, segir féð
sem safnaðist munu duga til rekst-
urs í fjögur ár á samskiptasetri fyrir
þolendur og gerendur eineltis, sem
og fjölskyldur þeirra. Félagið Erindi
mun sjá um rekstur setursins en ný-
verið bauð fasteignafélagið Reitir
fram endurgjaldslaus afnot af hús-
næði fyrir reksturinn í tvö ár.
„Það er mikil gleði meðal okkar
með afraksturinn og við teljum
markmiðinu náð,“ segir Gróa.
Geta rekið
setur í
fjögur ár
Á allra vörum safn-
aði um 35 milljónum
Söfnun Eftir útsendingu í gær.