Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.09.2015, Side 21
6.9. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21
Mikill uppgangur hefur verið í kvennaknattspyrnu hér á landi síðustu miss-
eri og kvennalandsliðið skaut karlalandsliðinu ref fyrir rass þegar það
tryggði sér í fyrsta skipti í sögunni sæti í lokakeppni Evrópumeistaramóts-
ins sem fram fór í Finnlandi sumarið 2009.
Liðið tapaði öllum leikjum sínum gegn firnasterkum andstæðingum en
tónninn var eigi að síður gefinn og fjórum árum síðar var liðið aftur mætt
á EM, að þessu sinni í Svíþjóð. Þar vann það sinn fyrsta leik á stórmóti,
gegn Hollendingum, og komst áfram í útsláttarkeppnina, þar sem það laut
í gras gegn gestgjöfunum.
Á UNDAN KÖRLUNUM Á EM
Það sætir ekki eins miklum tíðindum að íslenska karlalandsliðið í hand-
bolta komist á stórmót og körfubolta- og knattspyrnulandsliðið en „strák-
arnir okkar“ hafa nánast verið áskrifendur að slíkum mótum í áratugi. Síð-
ast tók liðið þátt í Heimsmeistaramótinu sem fram fór í Katar í byrjun
þessa árs og fylgdi nokkur fjöldi stuðningsmanna því þangað. Og líkaði víst
vel í hitanum meðan hver lægðin rak aðra við Íslandsstrendur.
Næsta stórmót, Evrópumeistaramótið, verður haldið í Póllandi í janúar
á næsta ári og verður Ísland meðal þátttökuþjóða. „Strákarnir okkar“ eru
í riðli með Króötum, Hvít-Rússum og Norðmönnum og leikið verður í
Katowice. Komist liðið upp úr riðlinum liggur leiðin í milliriðil í Kraków.
„STRÁKARNIR OKKAR“ TIL PÓLLANDS
Kvennalandsliðið í hand-
bolta þreytti frumraun sína
á stórmóti á Evrópumeist-
aramótinu í Danmörku og
Noregi árið 2010. Liðið
náði ekki að vinna leik á
mótinu en fjöldi Íslendinga
studdi dyggiilega við bakið á
því.
Liðið var aftur á fjölunum
þegar Serbar voru gest-
gjafar 2012 en tapaði aftur
öllum sínum leikjum.
Liðið gerði mun betur á
heimsmeistaramótinu í
Brasilíu 2011, komst upp úr
riðli sínum en tapaði fyrir
Rússum í sextán liða úrslit-
um.
GERÐI BETUR
Á HM EN EM
Umferðarmiðstöðin BSÍ • 101 Reykjavík • 580 5400 • main@re.is • www.re.is
VIÐ
SKUTLUM
ÞÉR! Alltaf laus sæti
Frí þráðlaus internet-
tenging í öllum bílum
Hagkvæmur kostur
Alltaf ferðir
Ferðatími u.þ.b.
45 mínútur
Umhverfisvænt
Kauptu miða núna á
www.flugrutan.is
Áætlunarferðir Flugrútunnar eru í tengslum við allar
komur og brottfarir flugvéla um Keflavíkurflugvöll.
OR
*Miðast við að keyptur sé miði fram og til baka frá BSÍ eða Keflavíkurflugvelli á 3.500 kr.
1.750 kr.*
FYRIR AÐEINS