Iðjuþjálfinn - 01.06.2015, Blaðsíða 9

Iðjuþjálfinn - 01.06.2015, Blaðsíða 9
9 mun Kristín hefja störf við þjálf un barna og vinna fyrir félagasamtök sem aðstoða láglauna fjölskyldur í Singapúr. Kristín hefur einnig sinnt stundakennslu við HA. María Þórðardóttir hóf störf á Fjórð ungs sjúkra húsinu og heilsu gæsl - unni í Neskaupstað. Hún starfaði líka á endurhæfingardeild FSA á Kristnesi, Geðræktarmiðstöð Suðurnesja, Björg- inni og á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Einnig hefur María starfað á geðsviði Reykjalundar og sem sviðsstjóri á lungnasviði. Auk þess starfaði hún á öldrunarstofnunum í Danmörku og vinnur nú á sambýli fyrir ungt fólk með þroskaskerðingar í Noregi. María hefur lokið þverfaglegu diplómanámi í geðheilsufræðum frá Danmörku og stefnir á að ljúka meistaranámi í heilbrigðisvísindum við HA í vor. Helga Jóna Sigurðardóttir er búsett í Garðabæ og hóf störf sem iðjuþjálfi á barna- og unglingageðdeild LSH (BUGL) og starfar nú þar sem verkefnastjóri. Helga Jóna er í meistaranámi í fjölskyldu- meðferðarfræði við Endur menntun HÍ. Hún er leiðbeinandi á námskeiðum í Ljósinu sem er fyrir börn sem eiga nákominn aðstandenda sem hafa greinst með krabbamein. Harpa Guðmundsdóttir hóf störf hjá Heilbrigðisstofnun Vestfjarða á Ísafirði. Árið 2006 tók hún þátt í að stofna Geðræktarmiðstöðina Vesturafl og var á árunum 2007-2011 að vinna á báðum stöðum. Í dag vinnur hún alfarið í Vesturafli og er í meistaranámi við HA í heilbrigðisvísindum. Kristjana Milla Snorra dóttir er búsett á höfuðborgarsvæðinu og hóf sinn feril hjá barna- og unglingageðdeild LSH (BUGL). Þaðan flutti hún sig yfir í Meðferðarteymi barna í Heilsugæslunni í Grafarvogi. Sumarið 2009 tók hún við sem framkvæmdarstjóri hjá ferða skrifstofunni Vest- ur ferðum á Ísa firði. Milla er með meistaragráðu í verkefnastjórnun (MPM) og starfar í dag sem gestamóttökustjóri á Ice- landair hóteli Reykjavík Natura. Anna Guðný Guðmunds dóttir býr á Akureyri. Anna Guðný hefur unnið sem deildarstjóri á sambýli fyrir börn og sem verkefnastjóri í Alþjóðahúsi og Virk starfs endurhæfingar sjóði. Hún hefur lokið diplóma námi í Evrópufræðum og er með meistaragráðu í alþjóðaviðskiptum og stjórnun. Hún starfar í dag við verkefnastjórnun hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Alís Inga Freygarðsdóttir vann eftir útskrift í skólavistun fyrir fötluð börn í tæpt eitt og hálft ár og flutti sig svo yfir á LSH þar sem hún sinnti endurhæfingu krabbameinssjúkra. Árið 2009 útskrifað- ist Alís úr eins árs hagnýtu námi í hugrænni atferlismeðferð. Hún hefur frá árinu 2012 verið búsett í Þýskalandi. Jóhanna Líndal Jónsdóttir er búsett á Akranesi. Hún hóf störf á Kleppi, flutti sig svo yfir í Maríuhús og vinnur nú sem iðjuþjálfi hjá Akraneskaupstað. Kristín Guðmundsdóttir býr á Akur- eyri og hóf störf sín á LSH í Fossvogi, ásamt því að starfa á Vitatorgi sem er dagþjónusta fyr ir einstaklinga með heila- bilun. Í rúm tvö ár vann Kris t ín á Reykjalundi bæði á lungnasviði og í atvinnulegri endur- hæfingu. Árið 2007 flutti hún til Akureyrar og hóf störf á Kristnesi og starfar þar sem verkefnastjóri, auk þess að sinna stundarkennslu við HA. Jónína Guðrún Gunnarsdóttir býr í Skagafirði. Eftir útskrift vann hún sem ráðgjafi í málefnum fatlaðra í Skagafirði og flutti sig svo yfir á Heilbrigðisstofnun Sauðárskróks ásamt því að starfa sem ráðgjafi hjá sveitarfélaginu Skagafirði. Í dag starfar hún sem forstöðumaður Námið við HA undirbjó okkur vel og kenndi okkur að horfa á ákveðinn hátt á lífið og tilveruna.

x

Iðjuþjálfinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.