Iðjuþjálfinn - 01.06.2015, Blaðsíða 27

Iðjuþjálfinn - 01.06.2015, Blaðsíða 27
Líkön í iðjuþjálfun Áður en lengra er haldið skal minnt á að það eru notaðar þrjár mismunandi tegundir af líkönum innan iðjuþjálfunar og er tilgangur þeirra ólíkur. Í fyrsta lagi eru svonefnd fræðilíkön (conceptual models). Slík líkön koma skipulagi á, tengja og afmarka þá fræðilegu þætti sem skipta máli varðandi mat, íhlutun og rannsóknir. Líkanið um iðju mannsins eða The Model of Human Occupation (MOHO), upphaflega þróað af meistaranámsnemum við Suður- Kaliforníu háskóla (Kielhofner, 1985; Kielhofner og Burke, 1980), og líkanið um iðju-aðlögun eða Occupational Adaptation (OA) þróað við Kvennaháskólann í Texas í tengslum við uppbyggingu doktorsnáms þar (Schkade og Schultz, 1992; Schultz, 2014), eru dæmi um fræðilíkön. Bæði þessi líkön eru þróuð út frá hugmyndum og þjónustu iðjuþjálfa og byggð á sál- félagslegum grunni. Einnig má nefna vistfræði tengdu fræðilíkönin Ecology of human performance (Brown, 2014; Dunn, Brown og McGuigan, 1994) og kanadísku iðjulíkönin (Law o.fl., 1996; Law, Polatajko, Baptiste og Townsend, 1997; Polatajko, o.fl., 2007). Auk fræðilíkana eru þjónustulíkön (process model) sem rekja ferli þjónustuþátta frá upphafi til enda. Slík líkön eru oft nefnd þjónustuferli á íslensku. Það er einmitt þessi tegund af líkönum sem fjallað verður nánar um í þessari grein. Hægt er að tengja t.d. ofantalin fræðilíkön við ákveðin þrep sumra þjónustulíkana. Einnig hafa nokkrir höfundar fræðilíkana eins og t.d. Kielhofner (Forsyth o.fl., 2014; Forsyth og Kielhofner, 2002; Kielhofner og Forsyth, 2008) síðar þróað þjónustuferli fyrir sínar kenningar eftir að hafa byggt upp fræðilíkan. Þriðji flokkur líkana innan iðjuþjálfunar er það sem kalla mætti vettvangs- eða starfsstéttarlíkön. Slíkt líkan The model of an integrated profession (Yerxa, 1994) sem e.t.v. mætti þýða sem „samspil vettvangsþátta“ á íslensku hefur m.a. verið notað til að athuga, útskýra og flokka upplýsingar sem hafa áhrif innan stéttar, eins og t.d. áhrif A-ONE matstækisins á hugsanagang iðjuþjálfastéttarinnar (Guðrún Árnadóttir, 2010, 2014; Gillen, 2013). Fisher birti sitt þjónustuferli árið 1998 í Eleanor Clarke Slagle fyrirlestri sínum. Þegar OTIPM þjónustuferlið er notað til að leiða þjónustu iðjuþjálfa er byrjað á að koma á tengslum og skjólstæðingsmiðuðu umhverfi til að þróa gagnkvæmt traust milli þjónustuþega og iðjuþjálfa. Í því tilefni er m.a. aflað skjólstæðingsmiðaðra upplýsinga um iðju, aðstæður og forgangsröðun. Í framhaldi af þess ari upplýsingaöflun er gerð fram kvæmda greining (performance analy sis) til að afla upplýsinga um þá framkvæmdaþætti (í hreyfingu, verkferli, boð- og samskiptum) sem viðkomandi framkvæmir. Það er nauðsynlegt að nota áhorf við þessa greiningu. Í framhaldi af framkvæmdagreiningu er gerð athafnagreining (task analysis) þar sem reynt er að skilgreina þá þætti sem orsaka takmörkun framkvæmdar. Þetta geta t.d. verið bæði líkams­ og umhverfisþættir ef mið er tekið af flokkunarkerfi Alþjóða heilbrigðismálastofnunarinnar (WHO, 2001). Einnig geta þetta verið persónuþættir. Skjólstæðingsmiðuð mark - mið eru síðan skrásett. Í framhaldinu eru valdar ein eða fleiri leiðir af fjórum mögulegum sem byggja á líkönum til íhlutunar. Leiðirnar eru nefndar: Jöfnunarlíkan (compensatory model), Leiknilíkan (model of occupational skills train- ing), Lagfæringalíkan (model for enhancement of person factors and body functions), og Fræðslulíkan (model for education and teaching). Í töflu 1 er líkönunum gerð nánari skil. Eftir að íhlutun hefur átt sér stað er framkvæmd endurmetin (Fisher, 2009, 2013; Fisher og Griswold, 2014). Mynd 1 (bls. 28)sýnir alla þætti OTIPM þjónustuferlisins og samhengið Mynd 1. OTIPM þjónustuferlið. Fengið frá Center for innovative OT solutions, http://www.innovativeotsolutions. com/content/wp-content/uploads/2014/01/Icelandic-OTIPM-handout.pdf. Birt með leyfi höfundar. Mynd 1. OTIPM þjónustuferlið. Líkan Leið Nálgun Jöfnunarlíkan Aðlöguð iðja í þjálfunarskyni (breyttar aðferðir, aðlögun áhalda, notkun hjálpartækja og tæknilegra hjálpartækja). Breytingar á hvers konar umhverfi að meðtöldu félagslegu umhverfi viðkomandi.* Endurhæfingarlíkan. Leiknilíkan Iðja til að endurheimta, þróa eða viðhalda leikni.* Lífaflfræði líkan. Atferlismótun. Líkanið um taugastarfsemi (Giles, 2005). Lagfæringalíkan Iðja til að flýta fyrir eða hafa áhrif á endurheimt, þróun eða viðhald persónuþátta (venjur, vani, gildi) og líkamsþætti (s.s. áhugahvöt). Áhersla á að hafa áhrif á þá líkamsþætti sem eru forsendur framkvæmdar.* Víxlverkunarnálgun (Toglia, 2005). Kvartettalíkan (Abreu, og Peloquin, 2005). Líkanið um taugastarfsemi (Giles, 2005). Lífaflfræði líkan Fræðslulíkan Skipulag og framkvæmd kennslu (fyrirlestrar, vinnusmiðjur) fyrir stærri hópa. Fræðslan tekur mið af daglegum þörfum viðkomandi skjólstæðinga og framkvæmd tilheyrandi iðju. Iðjumiðuð fræðsla. Aðstandendafræðsla fyrir mismunandi sjúklingahópa. Kennslufræði líkön Tafla 1. Yfirlit yfir íhlutunarlíkön og leiðir OTIPM auk mögulegra nálgana * Skjólstæðingsmiðuð ráðgjöf (collaborative consultation), áætlun um þjálfunaraðferð, ráðleggingar og þjálfun felst að auki alltaf í leiðinni.

x

Iðjuþjálfinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.