Iðjuþjálfinn - 01.06.2015, Blaðsíða 29

Iðjuþjálfinn - 01.06.2015, Blaðsíða 29
29 Ferlinu lýkur svo með endurmatslotu þar sem mið er tekið af matsaðferðum matslotu. Þetta þrep gæti leitt til markmiðsbreytinga og breytinga á íhlutunarleiðum eða aðferðum og annarrar umferðar eftir ferlinu. Aðferðin, sem notuð var til að útbúa upplýsingagrunninn, var tvíþætt. Í fyrsta lagi var aflað upplýsinga um matsaðferðir og íhlutunarleiðir í notkun í iðjuþjálfun á Grensási. Síðan voru upplýsingarnar skráðar í yfirlitstöflu samkvæmt vinnuvenjum og í samráði við alla iðjuþjálfa deildarinnar. Niðurstöður Fram kom við upplýsingaöflun að iðjuþjálfar á Grensási notast einkum við þrjár tegundir matsaðferða. Í fyrsta lagi eru notuð bæði stöðluð og óstöðluð viðtalsform. Síðan eru notuð bæði stöðluð og óstöðluð matstæki, byggð á kvörðum, og síðast en ekki síst stöðluð mælitæki. Í töflu 3 er listi yfir þær matsaðferðir sem notaðar eru í þjónustu iðjuþjálfa á Grensási. Hægt er að tengja ýmsar nálganir og sértæk fræðilíkön, sem notuð eru á Grensási, við þau fjögur líkön sem Fisher lýsir. Þar má nefna Jöfnunar- og Leiknilíkan þar sem unnið er að aðlögun um hverfis, notkun hjálpar tækja og aukinni leikni í ákveðnum þátt- um. Stund um ein- blína þjálf ararnir ein göngu á þætti Jöfnunarlíkansins við íhlutun, s.s. notkun breyttra að ferða, að - lög un áhalda, notkun hjálpartækja og aðlögun hvers konar umhverfis. Í sumum sér tækum fræði lík- önum (nefnt nálgun í OTIPM), sem notuð hafa verið við íhlutun á Grensási, er aðlögun um hverfis hins vegar hluti af um fangsmeira í hlut- unar ferli eins og t.d. í Kvart ettalíkaninu (Quad ra phonic app- roach) (Abreu og Peloq uin, 2005), og Víxl verkunarlíkaninu (Dy namic interaction approach) (Toglia, 2005). Í þessum sértæku líkönum er aðlögun umhverfis notuð, ásamt íhlutun þar sem reynt er að hafa áhrif á starfsemi og mótun taugakerfisins með því sem fl okk ast undir Lagfæringa- líkan í OTIPM. Sú atferlismótun sem Giles (2005) notar t.d. í líkani sínu um taugastarfsemi (neurofunctional approach) tengist einnig bæði Jöfnunar- og Leiknilíkaninu þar sem miðað er að því að móta atferli og hafa áhrif á leikni í gegnum aðlögun umhverfis. Ýmsar skynhreyfinálganir, sem koma við sögu í íhlutun þjónustuþega, s.s. þættir úr kenningum Ayres um samspil skynsviða (sensory integration), auk grundvallaratriða úr kenningum t.d. Affholter’s og Bobath, miða hins vegar að því að hafa áhrif á skynúrvinnslu og yrðu því að auki flokkaðar undir Lagfæringalíkanið. Yfirlitstaflan (sjá töflu 4), sem iðjuþjálfar skráðu upplýsingar sínar í, sýnir að allar tegundir matsaðferða (skv. próffræðilegri flokkun) og íhlutunarleiða, sem boðið er upp á í þrepum OTIPM, eru í notkun og hluti af almennri þjónustu iðjuþjálfa á Grensási. Ef litið er á matslotuna má sjá að allar aðferðir (óformleg, óstöðluð upplýsingaöflun, matstæki með kvörðum sem veita lýsandi upplýsingar, og mælitæki) koma við sögu greiningar í upphafi þjónustuferlis. Þegar litið er á endurmatslotuna kemur hins vegar fram að það eru nær eingöngu notuð matstæki sem nýtast við að lýsa breytingum og mælitæki sem mæla breytingar. Matstækin má ýmist flokka sem iðju-, skjólstæðings-, einkenna- eða umhverfismiðuð út frá aðferð og tegund þeirra upplýsinga sem aflað er með þeim. Einungis AMPS og A-ONE (Rasch greind útgáfa) mæla iðju, önnur mælitæki í töflunni nota aðrar mælieiningar en iðju, s.s. tíma. Umræða og ályktun Þjónustuyfirlitstaflan, sem hönnuð var með ofangreindri aðferð, nýtist sem almennt þjónustuyfirlit fyrir þjónustuþega iðjuþjálfa á Grensási. Út frá henni má skoða gæði mismunandi þjónustuþátta t.d. í samanburði við þjónustu annarra iðjuþjálfadeilda hér- lendis eða erlendis og efla frekari framþróun þjónustu. Slíkar upplýsingar stuðla að fagmennsku innan starfs- stöðvarinnar. Í yfirlitstöflunni kem­ ur m.a. fram að verið er að nýta matsaðferðir sem bæði lýsa og mæla árangur. Slíkar upplýsingar um próf- fræðilega eiginleika matstækja eru leið- andi varðandi notkunarmöguleika því að ef matstæki byggja á raðkvörðum er einungis hægt að nýta upplýsingarnar til að lýsa ástandi eða breytingum á ástandi. Ef matstækið byggir hins vegar á jafnbilakvörðum er hægt að mæla ástand og nota stærðfræðilegar aðgerðir til Tafla 3 . Matsaðferðir iðjuþjálfa á Grensási Heiti Dæmi um notkun AMPS Iðjumiðað mælitæki, mælir framkvæmdaþætti við iðju. A-ONE Staðlað iðjumiðað matstæki til að meta ADL færni og taugaeinkenni sem draga úr framkvæmd. Einnig nothæft sem mælitæki. A-TWO verkefni: Tilgátuprófun úr A-ONE hugmyndafræðinni Óstaðlað form upplýsingaöflunar með áhorfi byggt á A-ONE hugmyndafræðinni. Til að meta færni (IADL, tómstundir, atvinnu) og taugaeinkenni sem draga úr framkvæmd. Box and Block Einkennamiðað mælitæki, mælir hraða í hreyfingum. COPM Óstaðlaður viðtalsrammi. Gefið er fyrir óstöðluð atriði á þremur raðkvörðum. Notaður til að afla skjólstæðingsmiðaðra upplýsinga fyrir færnibætandi handaraðgerðir. Dynamometer Einkennamiðað mælitæki, mælir gripstyrk. Framkvæmdagreining Óstaðlað form upplýsingaöflunar með áhorfi, byggt á hugtökum AMPS. Gátlisti fyrir heimilisathugun Óstaðlaður umhverfismiðaður gátlisti. Gátlisti fyrir setstöðugreiningu Óstaðlaður gátlisti fyrir upplýsingaskráningu. Liðmælir Einkennamiðað mælitæki til að mæla hreyfiferla. Lumosity­hugfimi: Tölvuprógram Einkennamiðað mat á vitrænum þáttum. Hefur mælieiginleika, en notað á óstaðlaðan hátt. OSA Staðlað skjólstæðingsmiðað sjálfsmatstæki. Óformlegt viðtal: Heimatilbúinn gátlisti Óstaðlaður gátlisti fyrir skjólstæðingsmiðaða upplýsingaöflun. Pinch mælir Einkennamiðað mælitæki, mælir gripstyrk. Purdue Pegboard Einkennamiðað mælitæki, mælir hraða við handfjötlun fíngerðra hluta og samhæfingu handa. Ritfinnur: Tölvuforrit Iðjumiðað matstæki notað til að meta vélritunarhraða og fjölda ritvillna. Skynpróf (snertiskyn, stöðuskyn, hreyfiskyn) Óstöðluð skoðun skynþátta. Súpupróf Staðlað form upplýsingaöflunar með áhorfi, byggt á A-ONE hugmyndafræðinni. Lýsir iðju. Sollerman Einkennamiðað matstæki til að meta gæði mismunandi gripa og hraða við handfjötlun hluta. Eingöngu notað sem upplýsingaöflun fyrir færnibætandi handaraðgerðir. Þrýstimotta Einkennamiðað mælitæki til að mæla dreifingu þrýstings á setflöt. Ökumat: Gátlisti Staðlað iðjumiðað form upplýsingaöflunar með áhorfi. Notað við að meta akstursfærni.

x

Iðjuþjálfinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.