Iðjuþjálfinn - 01.06.2015, Blaðsíða 31

Iðjuþjálfinn - 01.06.2015, Blaðsíða 31
31 útreikninga, t.d. á breytingum á ástandi (Guðrún Árnadóttir, 2008). Því miður er allt of algengt að iðjuþjálfar, eins og reyndar fleiri heilbrigðisstarfsmenn, átti sig ekki á þessum mun og því mikilvægt að draga hann fram á yfirliti sem þessu. Upplýsingarnar eru því gagnlegar í samanburði við gagnreyndar útgefnar þjónustuupplýsingar og einnig varðandi rannsóknarmöguleika á staðnum. Ef ekki væru notuð mælitæki, þá nýtist taflan sem ávísun á þá staðreynd og í framhaldinu væri hægt að afla upplýsinga um nothæf mælitæki til að bæta við þjónustuna til að mæta kröfum um fagmennsku og framþróun. Taflan nýtist einnig iðjuþjálfanemum og auðveldar allar útskýringar á þjónustunni fyrir starfsfólk og almenning. Taflan sýnir m.a. að mælitæki eru ekki notuð til að afla upplýsinga um fyrsta þrep OTIPM í matslotu um skjólstæðingssýn á Grensási. Hins vegar bendir handbók OSA (Baron, Kielhofner, Iyenger, Goldhammer og Wolenski, 2006) til að hægt sé að umbreyta upplýsingum af raðkvörðum matstækisins í mælieiningar. Því er ekki úr vegi að skoða í framhaldinu þær staðhæfingar nánar og athuga hvort henti að nýta slíka eiginleika við þetta matslotuþrep á Grensási. Einnig mætti benda á að hægt er að innleiða nýrri skjólstæðingsmiðuð mælitæki eins og ADL-Interview (ADL-I) og ADL Questionnaire (ADL-Q) sem eru byggð á ADL Taxonomy (Wæhrens, 2010). Taflan sýnir enn fremur að óformleg matstæki virðast ekki vera notuð við endurmat. Þetta mun orsakast af því að tilgangur með fyrirlögn flestra þessara matsaðferða á Grensási er einungis að afla upplýsinga fyrir ákvarðanatöku, ekki til að meta breytingar á ástandi. Það er umhugsunarefni fyrir iðjuþjálfa að sum þeirra mælitækja sem skráð eru í töflunni, t.d. Box and Block og Purdue Pegboard, nota ekki iðju sem mælieiningu heldur tíma. Hafa ber í huga að yfirlitstaflan er til þess ætluð að taka saman upplýsingar sem gætu m.a. leitt til úrbóta á verklagi og þjónustu. Hún ætti því að vera gagnvirkt yfirlit sem krefst stöðugrar endurskoðunar í takt við breytingar, þróun matstækja og íhlutunaraðferða, því að öll þróun kemur til með að hafa áhrif á reynslu iðjuþjálfa með tilheyrandi breytingum á þjónustu. Yfirlitstaflan er takmörkuð við þjón­ ustu iðjuþjálfa á Grensási. Töfluna mætti útfæra síðar í undirtöflur með upplýsingum um sérstaka þjónustuþætti fyrir mismunandi skjólstæðingshópa út frá sjúkdómsgreiningum, s.s. höfuð- áverka, heilablóðfall, mænuskaða, gigt eða aflimun. Slíkar töflur eru þegar í vinnslu. Notkun yfirlitstöflunnar á Grensási síðastliðið ár hefur þegar gefið vísbendingar um hvernig útvíkka megi íhlutunarlotu hennar. Þannig væri gagnlegt til útskýringa á þjónustu iðjuþjálfa að kljúfa út úr aðferðadálkinum upplýsingar um þau iðjusvið, sem lýst er í AOTA flokkunarkerfinu (AOTA, 2014), og iðjuþjálfunarflokka, sbr. umfjöllun Fisher (1998). Frekari úrvinnsla íhlutunarlotu töflunnar mun haldast í hendur við upplýsingaöflun um gagnreynda þjónustu í fram- tíðarvinnusmiðjum iðjuþjálfa LSH. Hægt er að útfæra á sama hátt þjónustuyfirlit fyrir aðrar starfsstöðvar iðjuþjálfa á LSH. Ef við lítum á þrepin þrjú þá þarf að átta sig á skjólstæðingshópum þeim, sem þiggja þjónustuna, og hvaða þjónustuferli sé æskilegt að nota á hverri starfsstöð. Í framhaldi af hönnun yfirlitstöflunnar hefur fagráð iðjuþjálfa LSH staðið fyrir vinnusmiðjum iðjuþjálfa tengdum þjónustuferlum á nýliðnu ári. Áætlað er að setja saman þjónustuyfirlit fyrir hverja starfsstöð sem byggir á þjónustuferli viðkomandi starfsstöðvar, og samþætta við upplýsingar úr matsaðferða út- tektum og íhlutunarleiðum. Þakkir Þökkum iðjuþjálfum á Grensási fyrir þátttöku í upplýsingaöflun um starfsemi deildarinnar. Einnig iðjuþjálfum annarra starfsstöðva LSH fyrir góða þátttöku í vinnusmiðjum. Heimildaskrá Abreu, B. C. og Peloquin, S. M. (2005). The quadraphonic approach: A holistic rehabilitation model for brain injury. Í N. Katz (ritstjóri), Cognition & occupation across the life span: Models for intervention in occupational therapy (2. útgáfa) (bls. 73–112). Bethesda, MD: AOTA Baron, K., Kielhofner, G., Iyenger, A., Goldhammer, V. og Wolenski, J. (2006). A user‘s manual for the Occupational self assessment (OSA). Chicago: Model of Human Occupation Clearinghouse, Department of Occupational Therapy, College of Applied Sciences, University of Illinois at Chicago. Brown, C. E. (2014). Ecological models in occupational therapy. Í B. A. B. Schell, G. Gillen og M. E. Scaffa (ritstjórar), Willard & Spackman’s Occupational Therapy (12. útgáfa) (bls. 494–503). Philadelphia: Lippincott Williams & Wilkins. Dunn, W., Brown, C. og McGuigan, A. (1994). The ecology of human performance: A framework for considering the impact of context. American Journal of Occupational Therapy, 48, 595–607. Fagráð iðjuþjálfa LSH. (2013). Mats- og mælitæki iðjuþjálfa LSH. Óbirt handrit. Fisher, A. G. (1998). Uniting practice and theory in an occupational framework (Eleanor Clarke Slagle Lecture). American Journal of Occupational Therapy, 50, 509–521. Fisher, A. G. (2009). Occupational Therapy Intervention Process Model: A model for planning and implementing top-down, client-centered, and occupation-based interventions. Three Star Press: Fort Collins, CO. Fisher, A. G. (2013). Occupation-centred, occupation-based, occupation-focused: Same, same or different? Scandinavian Journal of Occupational Therapy, 20, 162–173. Fisher, A. G. og Griswold, L. A. (2014). Performance skills: Implementing performance analyses to evaluate quality of occupational performance. Í B. A. B. Schell, G. Gillen og M. E. Scaffa (ritstjórar), Willard & Spackman’s Occupational Therapy (12. útgáfa) (bls. 249–264). Philadelphia: Lippincott Williams & Wilkins. Forsyth, K., Taylor, R. R., Kramer, J. M., Prior, S., Richie, L., Whitehead, J. … Melton, J. (2014). The model of human occupation. In B.A Boyt Schell, G. Gillen og E. Scaffa (ritstjórar) Willard & Spackman’s occupational therapy (12. útgáfa) (bls. 505–526). Philadelphia: Lippincott Williams & Wilkins. Forsyth, K. og Kielhofner, G. (2002). Putting theory into practice. Í G. Kielhofner (ritstjóri). Model of human occupation: Theory and application, (3. útgáfa) (bls. 325–345). Philadelphia: Lippincott Williams & Wilkins. Giles, G. M. (2005). A neurofunctional approach to rehabilitation following severe brain injury. In N. Katz (ritstjóri), Cognition & occupation across the life span: Models for intervention in occupational therapy (2. útgáfa) (bls. 139–165). Bethesda, MD: AOTA. Gillen, G. (2013). A fork in the road: An occupational hazard? (Eleanor Clarke Slagle Lecture). American Journal of Occupational Therapy, 67, 641–652. Guðrún Árnadóttir. (2003). Þróun mælitækja: Stöðlun, réttmæti og áreiðanleiki. Í Sigríður Halldórsdóttir og Kristján Kristjánsson (ritstjórar), Handbók í aðferðafræði og rannsóknum í heilbrigðisvísindum, (bls. 411–444). Akureyri: Háskólinn á Akureyri. Guðrún Árnadóttir. (2008). Árangur af iðjuþjálfun einstaklinga með taugaeinkenni: Hentug ADL matstæki. Iðjuþjálfinn,1,28–39. Guðrún Árnadóttir. (2010). Measuring the impact of body functions on occupational performance: Validation of the ADL-focused, Occupation-based Neurobehavioral Evaluation (A-ONE). (Doktorsritgerð, Háskólinn í Umeå, Svíþjóð, 2010). Medical Dissertations, New

x

Iðjuþjálfinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.