Iðjuþjálfinn - 01.06.2015, Blaðsíða 15

Iðjuþjálfinn - 01.06.2015, Blaðsíða 15
15 hefur deildin tekið ákvörðun um að vinna eftir hugmyndafræði valdeflingar (Empowerment) og þjónandi leiðsagnar (Gentle Teaching) (Soffía Lárusdóttir, 2015). Hugmyndafræðin - valdefling Upphaf hugmyndafræði valdefl ingar má rekja til starfa notendahreyfinga, hagsmunahreyfinga og sjálfshjálparhópa. Valdefling leggur áherslu á að einstaklingar nái tökum og stjórn á eigin lífi. Notendur geðheilbrigðisþjónust- unnar vildu hafa áhrif á hvaða þjónusta væri til staðar og með hvaða hætti hún væri framkvæmd (Lára Björnsdóttir, Halldór S. Guðmundsson, Kristín Sigursveinsdóttir og Auður Axelsdóttir, 2011). Vinna sam kvæmt valdeflingarmódelinu var lítt rannsökuð í fyrstu en á undanförnum árum hafa verið gerðar fjölmargar eigindlegar rannsóknir sem miða að því að finna út hvað það er sem ýtir undir bata. Niðurstöður hafa sýnt að vinna á jafningjagrunni samkvæmt valdeflingarmódelinu skilar þar hvað mestu (Elín Ebba Ásmundsdóttir, 2009). Judi Chamberlin var ein af hugmyndasmiðum valdeflingar. Hún fæddist í Bandaríkjunum árið 1940. Hún lagðist inn á geðdeild í fyrsta skipti 1961 en hennar síðasta innlögn í hefðbundnu sjúkrahúskerfi átti sér stað 1966. Eftir þá innlögn var Judi afar reið yfir þeirri meðhöndlun sem hún fékk og ákvað í framhaldinu að helga sig baráttu fyrir bættri þjónustu og valmöguleikum fólks með geðraskanir. Hún var æ síðan ötul baráttumanneskja fyrir réttindum geðsjúkra, lagði ríka áherslu á virðingu og að hafa vald yfir eigin lífi. Í samráði við notendur, sem allir höfðu reynslu af geðheilbrigðisþjónustu, setti Judi fram 15 v innu sk i lg re in ing ar valdeflingar, sem helstu áhrifaþætti í bata þeirra (Judi Chamberlin, 2015). Judi kom til Íslands árið 2006 og talaði sem heiðursgestur á ráðstefnunni Bylting í bata - raunhæfur möguleiki, sem haldin var af félagasamtökunum Hugarafli. Judi sagði frá valdeflingu og var með vinnusmiðju á ráðstefnunni. Hún vildi styðja okkur hér á landi til jákvæðra breytinga á okkar kerfi. Koma hennar hingað til lands blés samtökunum Hugarafli krafti í brjóst, Búsetudeild Akureyrarbæjar – valdefling og þjónandi leiðsögn varðar veginn Dagný Þóra Baldursdóttir, Kristinn Már Torfason, Pálína Sigrún Halldórsdóttir, Ólafur Örn Torfason, Soffía Lárusdóttir Soffía Lárusdóttir Dagný Þóra Baldursdóttir, Ólafur Örn Torfason Pálína Sigrún Halldórsdóttir Kristinn Már Torfason Talsverðar breytingar hafa á undan-förnum árum orðið á reglu verki og opinberum viðmiðum sem mynda ramma utan um þjónustu við fatlað fólk á heimili sínu. Kröfur hafa aukist og breyst, sérstaklega með tilkomu reglugerðar um þjónustu við fatlað fólk á heimili sínu (Reglugerð nr. 1054/2010), framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks (Þingsályktun nr. 43/140), svo og laga um réttindagæslu fyrir fatlað fólk (Lög nr. 88/2011) þar sem m.a. er kveðið á um ráðstafanir til að draga úr nauðung í þjónustu við fatlað fólk. Reglugerð um persónulega talsmenn fatlaðs fólks (Reglugerð nr. 972/2012) hafa einnig áhrif. Í þessari grein verður fjallað um hlutverk búsetudeildar Akureyrarbæjar, þá hugmyndafræði sem unnið er eftir og á hvern hátt unnið er að innleiðingu hennar meðal starfsfólks og notenda í þeim tilgangi að vera í stakk búin til að mæta áskorunum í nútíð og framtíð. Búsetudeild Hlutverk búsetudeildar Akureyrarbæjar er að veita fólki á öllum aldri, sem er með skerta færni, margvíslega aðstoð og þjónustu í þeim tilgangi að styðja við búsetu þess og skapa því aðstæður til að lifa sjálfstæðu lífi jafnt á heimili sínu sem utan þess. Í þeim tilgangi að vera betur í stakk búin til að styðja við sjálfstætt líf fatlaðra einstaklinga Starfs fólkið legg­ ur áherslu á að skapa aðstæður fyrir notendurna til að geta komið í framkvæmd eigin hugmyndum svo þeir fái notið sín sem best og upplifað sig sem virka þátttakendur í samfélaginu.

x

Iðjuþjálfinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.