Iðjuþjálfinn - 01.06.2015, Blaðsíða 10
10
Iðju sem er dagþjónusta fyrir fatlað fólk
í Skagafirði og er í fjarnámi í stjórnun frá
Bifröst með vinnu.
Dagný Þóra Baldursdóttir er búsett
á Akureyri og sumarið eftir útskrift stýrði
hún sumarúrræði fyrir fötluð börn hjá
búsetudeild Akureyrarbæjar. Árið 2005
fór hún að vinna sem iðjuþjálfi og var
með yfirumsjón með sérkennslumálum
á leikskólanum Álfasteini. Í dag vinnur
Dagný hjá Búsetudeild Akureyrarbæjar
sem deildarstjóri í búsetuúrræði fyrir
geðfatlaða, auk þess hefur hún sinnt
stundarkennslu við HA.
Bergþóra Guðrún Þorsteinsdóttir
hóf störf á æfingastöð Styrktarfélags
lamaðra og fatlaðra. Hún fór svo að
vinna á verkjasviði Reykjalundar en
starfar nú hjá Hjálpartækjamiðstöð
Sjúkratrygginga Íslands. Þar sér hún um
almenna afgreiðslu hjálpartækja ásamt
því að sinna hjálpartækjamálum fyrir
sérútbúnar bifreiðar fyrir fatlaða.
Sandra Rún Björnsdóttir hóf störf
í Hjálpartækjamiðstöð Sjúkratrygginga
Íslands. Árið 2011 flutti hún á Reykhóla
og starfar nú á hjúkrunarheimilinu
Barmahlíð og í Reykhólaskóla.
Anna Kristrún Sigurpálsdóttir er
búsett á Akureyri. Hún hóf störf á
geðdeild Sjúkrahússins á Akureyri og
starfar þar í dag sem yfiriðjuþjálfi og
vinnur á dag- og göngudeild geðdeildar
sjúkrahússins. Anna hefur lokið eins árs
diplómanámi í hugrænum atferlisfræðum
og hefur sinnt stundakennslu við HA.
Guðbjörg Guðmundsdóttir býr
í Borganesi og hóf sinn starfsferil
sem iðjuþjálfi á Reykjalundi og vann
svo á Klúbbnum Geysi. Guðbjörg
hefur unnið hjá Gigtarmiðstöð
Gigtarfélagsins í Reykjavík, síðan 2006.
Hún hefur verið í verktakavinnu hjá
Virk starfsendurhæfingarsjóði við vinnu
staðaathuganir og ráðgjöf, ásamt því að
sinna stundarkennslu í HA.
Sonja Stelly Gústafsdóttir býr á Akur-
eyri og byrjaði að vinna sem iðjuþjálfi á
Geðdeild LSH við Hringbraut. Árið
2007 flutti hún til London þar sem hún
tók meistaragráðu í heilsueflingu og
lýðheilsu. Í dag starfar hún sem aðjúnkt
á heilbrigðisvísindasviði Háskólans á
Akureyri.
Áshildur Sísý Malmquist býr
einnig á Akureyri og byrjaði sín störf
á endurhæfingardeild FSA á Kristnesi.
Á árunum 2004 til 2007 vann hún sem
deildarstjóri hjá Búsetudeild Akur-
eyrarbæjar á heimili fyrir fötluð börn
og á sambýli í Helgamagrastræti, síðar í
þjónustuíbúðum í Klettatúni. Árið 2007
hóf hún störf sem forstöðumaður hjá
skóladeild Akureyrarbæjar í skóla- og
sumarvistun fyrir fötluð börn í Árholti.
Í dag starfar hún sem deildarstjóri í
skóla- og sumarvistun fatlaðra barna og
skammtímavistun fatlaðra.
Af þessari yfirferð má sjá að þriðji
útskriftarárgangur iðjuþjálfa við HA
hefur komið víða við og samt er
upptalningin ekki tæmandi. Við höfum
starfað vítt og breitt í samfélaginu, og
margar hafa farið í framhaldsnám, eða
eru í því núna. Við teljum þennan hóp
hafa skilað miklu til samfélagsins m.a.
vegna þess hve margar okkar námu
nýjar lendur. Námið við HA undirbjó
okkur vel og kenndi okkur að horfa á
ákveðinn hátt á lífið og tilveruna. Við
erum iðjuþjálfar með ákveðna hugsjón
sama á hvaða vettvangi við störfum eins
og Milla kemst svo vel að orði:
„Ég er oft spurð að því hvort ég sakni
þess ekki að vera iðjuþjálfi. Ég verð alltaf
jafn hissa því ég starfa sem iðjuþjálfi,
við tómstundaiðju fólks. Ferðaþjónusta
reynir mikið á samskiptahæfni og við
erum að vinna með fólki þar sem við
reynum að meta og koma til móts við
væntingar og þarfir fólks, en í því erum
við iðjuþjálfar sérfræðingar.“
Íslenskur iðjuþjálfi
í Svíþjóð
Jóhanna Rósa Kolbeins