Iðjuþjálfinn - 01.06.2015, Blaðsíða 42

Iðjuþjálfinn - 01.06.2015, Blaðsíða 42
42 Skammtímavistun Akureyri Sísý Malmquist Sameining Skammtímavistunar á Akur eyri og Skóla- og sumarvistunar fatlaðra Árholti í eina einingu í Þórunnarstræti 99 (gamli Hús mæðra- skólinn) á Akureyri. Skammtímavistun Akureyri var til húsa á Skólastíg 5 frá árinu 1998 þar til í mars 2014. Skóla- og sumarvistun fatlaðra barna starfaði í Árholti við Höfðahlíð frá árinu 2004 þar til í mars 2014. Húsnæðið, sem Skammtímavistun var í við Skólastíg, er á þremur hæðum og hentaði því ekki vel fyrir starfsemina, bæði vegna aðgengis- og öryggismála. Þann 1. mars 2014 sameinuðust Skammtímavistun á Akureyri og Skóla- og sumarvistun fatlaðra barna og fluttu í nýuppgert hús í Þórunnarstræti 99 (gamla Húsmæðraskólanum) á Akureyri. Einnig tók Skammtímaþjónustan yfir lengda viðveru framhaldsskólanema sem ungmennadeild Hæfingarstöðvarinnar í Skógarlundi hafði áður séð um. Það var gert þannig að þeir sem höfðu verið á Hæfingarstöðinni voru þar áfram enda öll að verða 20 ára. Þau ungmenni, sem voru að komast á framhaldsskólaaldurinn, fóru í þjónustu hjá Skammtíma- þjónustunni. Skóla- og sumarvistun fatlaðra: Börn með mikla fötlun á aldrinum 10- 20 ára eiga möguleika á skólavistun í Skammtímaþjónustunni. Fjöldi barna er um 15 daglega og fer fjöldinn eftir samsetningu hópsins hverju sinni. Fjöldi barna og viðverutími eykst yfir sumartímann. Á sumrin er breiðara aldursbil eða 6-20 ára. Hlutverk/markmið Skóla- og sumar- vistunarinnar: Lögð er áhersla á að vistunin sé nemendum fast ur punktur í tilverunni, þar sem gott er að koma og dvelja við skapandi störf og leiki að skóladegi loknum. Hlúð er að grunnþörfum barnanna með virkri þátttöku þeirra. Með virkri þátttöku er átt við að ýtt er undir sjálfsbjargargetu barn- anna í athöfnum daglegs lífs. Veita á börnunum einstaklingsmiðaða þjón- ustu. Stefnt er að því að veita börnunum skilyrði til að efla félagsfærni sína og vera í virku samstarfi við skóla og heimili. Skammtímavistun Akureyri: Skammtímavistun fatlaðs fólks er stoðþjónusta þar sem fjölskyldur fatlaðra barna eiga kost á því að börnin njóti tímabundinnar dvalar þegar þörf krefur. Sama gildir um ungmenni og fullorðið fatlað fólk sem enn býr í foreldrahúsum. Flestir nýta sér helgarþjónustu en aðrir dvelja allt að viku í senn. Boðið er upp á neyðarvistun ef óvænt atvik koma upp í fjölskyldunni. Í skammtímavistun er lögð áhersla á að: Skapa aðstæður sem gefa fötluðum gestum kost á að kynnast og umgangast aðra gesti í gegnum leik og starf. Gestirnir séu þátttakendur í öllum störfum svo sem mögulegt er. Þjálfun fléttist inn í leik og dagleg störf og sé sem ósýnilegust. Hver og einn gestur fái notið sín á eigin forsendum. Upplyfting og skemmtun sé við hæfi hvers og eins. Í Skammtímaþjónustunni leggjum við áherslu á útivist, hreyfingu og skapandi starf eins og hægt er fyrir hvern og einn skjólstæðing okkar. Fjölmargir kostir fylgja sameiningu sumar- og skólavistunar fatlaðra og skammtímavistunar. Þar ber helst að nefna: Aukin tækifæri fyrir starfsfólk á aðlögun vinnutíma og starfshlutfalli.

x

Iðjuþjálfinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.