Iðjuþjálfinn - 01.06.2015, Blaðsíða 13
13
Geðsvið Landspítala Háskóla-sjúkra húss (LSH) sinnir megin-
starfsemi sérhæfðrar geð heil br igðis -
þjón ustu á Íslandi og er í samvinnu við
heilsugæslu og aðra velferðarþjónustu
utan sjúkrahúsa. Fjölbreyttur hópur
fag aðila á geðsviði sinnir göngu- og
legudeildum, samfélagsgeðþjónustu, er
leiðandi í geðheilbrigðisþjónustu fyrir
bráðveikt fólk 18 ára og eldri og kemur að
sérhæfðum verkefnum og endurhæfingu
geðfatlaðra. Í þessari grein er ætlunin að
greina frá geðendurhæfingu og aðkomu
iðjuþjálfa á Kleppi.
Hugmyndafræði
Iðjuþjálfar í geðendurhæfingu á LSH
Kleppi styðjast við hugmyndafræði
Líkansins um iðju mannsins (MOHO),
valdeflingu (Empowerment) og reynslu
náms (Experiental learning). Algengustu
skjólstæðingshópar, sem fá þjónustu
iðjuþjálfa, eru einstaklingar sem glíma við
þunglyndi, kvíðaraskanir, tvígreiningar
(geð– og fíkniröskun), geðrofssjúkdóma
og persónuleikaraskanir. Einstaklingar
með geðsjúkdóma eiga oft sögu um
að einangra sig og ráða illa við athafnir
daglegs lífs. Hugmyndafræði MOHO
leggur áherslu á að vinna með vilja, vana,
umhverfi og getu til að framkvæma til
að vera virkur þátttakandi í samfélaginu
og hentar því vel til íhlutunar í
geðendurhæfingu.
Batastefna
Árið 2012 hóf vinnuhópur, í umboði
framkvæmdastjóra geðsviðs LSH, að
kynna sér Batastefnuna (Recovery
approach). Aðalmarkmið hennar er
að efla samstarf milli skjólstæðings
og starfsfólks, ásamt því að styðja
skjólstæðinga við að draga úr geðrænum
einkennum og auka lífsgæði þeirra
með áherslu á að skjólstæðingurinn
sjálfur sé sérfræðingur í eigin lífi.
Starfsfólkið er til staðar til að leiðbeina
og styðja skjólstæðinginn til að ná þeim
markmiðum sem hann hefur sett sér.
Iðjuþjálfar á Kleppi hafa tekið virkan
þátt í innleiðingu Batastefnunnar á
Kleppi, s.s. í vinnuhópi, gerð bæklinga
og veggspjalda um Batastefnuna og
þýðingar á efni tengdu stefnunni.
Einnig hafa iðjuþjálfar átt þátt í
stofnun Bataskóla þar sem haldin
eru fræðsluerindi og námskeið tengd
bataferli. Bataskólinn er miðstöð fyrir
Batastefnuna þar sem skjólstæðingar,
aðstandendur og starfsfólk getur komið
saman, átt góðar stundir og fræðst um
leiðir að bata.
Geðendurhæfing
Geðdeildir LSH eru staðsettar á fjórum
stöðum: við Hringbraut, á Kleppi,
Laugarásvegi 71 og Samfélagsgeðteymi
á Reynimel 55. Endurhæfing geð
sviðs LSH er staðsett á Kleppi og
Laugarásvegi 71, en einnig er réttar- og
öryggisgeðdeild á Kleppi. Í dag starfa
5 iðjuþjálfar á Kleppi og sinna öllum
deildum; endurhæfingardeild 5 og 7
daga, sérhæfðri endurhæfingargeðdeild,
réttar- og öryggisgeðdeild, göngudeild
og í FMB teymi (Foreldri, Meðganga,
Barn).
Endurhæfing á Kleppi er markvisst
ferli sem byggir á samvinnu milli
skjólstæðings, fjölskyldu/aðstandenda
og heilbrigðisstarfsfólks. Lögð er á hersla
á að stuðla að auknum lífsgæðum
skjólstæðings, hvetja til ábyrgðar á eigin
hegðun og lífsstíl, ásamt því að tengja
skjólstæðinginn út í samfélagið eins fljótt
og auðið er. Meðferðin byggist m.a. á
fræðslu og stuðningi til að auka virkni
og ábyrgð fólks til að ná markmiðum
sínum. Þátttaka í samfélaginu, val-
frelsi og leiðir til að þroskast við
breyttar aðstæður eru mikilvæg atriði i
endurhæfingu geðsviðs.
Allar deildir á Kleppi hafa fjölbreytta
virknidagskrá sem samanstendur t.d.
af sundferðum, gönguferðum, æv in-
týragöngum, fræðslu, deildar fundum,
fótbolta í Hátúni, ferðum í Hlutverkasetur
og annars konar endurhæfingu. Dagskrá
í Bataskólanum hefur einnig aukist
með fjölbreyttri fræðslu og hópastarfi,
t.d. námskeið í Núvitund, slökun,
garðyrkjuhópur og annars konar fræðsla
sem styður við bata skjólstæðingsins.
Fagteymi hverrar deildar skipuleggur
þverfaglega þjónustu sem samanstendur
af fél ags ráðgjöfum, iðjuþjálfum, geð-
læknum, hjúkr unar fræðingum og sál -
fræð ingum. Deildar meðferð er veitt
af hjúkrunarfræðingum og stuðnings-
fulltrúum/ráðgjöfum. Einnig er greiður
aðgangur að sjúkraþjálfurum.
Skjólstæðingar eru mis munandi og
misjafnt er hvar þeir eru staddir í bataferlinu
þegar iðjuþjálfun hefst og er því stundum
þörf á að hefja íhlutun innan spítalans í
formi einstaklings- eða hópþjálfunar.
Meðferð er einstaklingsmiðuð og snýr
að: eigin umsjá, heimilishaldi, vinnu- eða
námsfærni, félagsfærni, sjálfstyrkingu,
slökun, streitustjórnun, ground ing og
jafnvægi í daglegu lífi. Fjölritun er starfrækt
í húsi iðjuþjálfunar á Kleppi og er hluti af
iðjuþjálfun. Þar skapast fjölbreytt störf
fyrir skjólstæðinga sem ekki hafa tök á/
eru tilbúnir til að hefja endurhæfingu úti í
samfélaginu. Fjölritun LSH veitir þjónustu
á fjölföldun prentefnis, s.s. ljósritun,
fjölritun, heftun, gormun og er í samstarfi
við Birgðastöð og Innkaupadeild LSH.
Meðal þjónustustarfseminnar iðju-
þjálfunar á Kleppi er ævintýrameðferð
þar sem áhersla er lögð á félagsfærni
og sjálfstyrkingu þar sem unnið er
eftir hugmyndafræði MOHO og
reynslunáms. Reynslunám byggir á því
að fólk læri mest á því að framkvæma og
að breytingar í hegðun og hugsun eigi
sér stað þegar fólk finnur fyrir ójafnvægi
og finnur sig utan þeirra marka sem
telja má þægilegt og öruggt. Tímarnir
fara alltaf fram utandyra í nærumhverfi
Klepps og víðar á höfuðborgarsvæðinu.
Misjafnt er eftir deild um hvað skjól-
stæðingar eru lengi í endurhæfingu á
Kleppi en ávallt er leitast við að tryggja
eftirfylgni við útskrift. Samstarf við Virk
starfs endur hæfingu hefur aukist mjög
þar sem ráðgjafi frá þeim kemur viku
lega á göngudeild Klepps. Iðjuþjálfar
á Kleppi leggja mikla áherslu á að
Iðjuþjálfun
í Geðendurhæfingu
á LSH á Kleppi
Ólafía Helga Arnardóttir og Erna Sveinbjörnsdóttir