Iðjuþjálfinn - 01.06.2015, Blaðsíða 12

Iðjuþjálfinn - 01.06.2015, Blaðsíða 12
12 Allt þetta í 100 % starfi! Eins og gefur að skilja eru áherslur allt aðrar en ég vandist á Droplaugarstöðum. Hér felst starfið mikið í mati á hjálpartækjaþörf og að prófa og skrifa út hjálpartæki. Einstaka ADL mat er gert og þá yfirleitt á skammtímadeildinni. Matstækið sem notað er við færnimat er FIM (Functional Independence Measure). Þeir sem eru á skammtímadeildinni hafa verið inni á sjúkrahúsinu og sjúkrahúsið hefur gert sitt en einstaklingurinn er samt ekki tilbúinn til að útskrifast heim. Ástæðurnar geta verið af ýmsum toga, en oft er um að ræða einstaklinga sem kannski áttu erfitt með að hugsa um sig sjálfir áður en þeir veiktust og eftir veikindin gengur það alls ekki. Einnig eru dæmi um að einstaklingar, sem geta ekki hugsað um sig sjálfir, komi inn þar sem makinn, sem fram að þessu var einnig umönnunaraðilinn, veikist skyndilega. Auk þess eru nokkur rými notuð fyrir hvíldarinnlagnir og einstaklinga, sem bíða eftir að komast inn á hjúkrunarheimili. Á skammtímadeildinni er endurhæfing í boði, þar sem sjúkra­ og iðjuþjálfi koma reglulega auk þess sem allt starfsfólk stuðlar að endurhæfingu og er meðvitað um mikilvægi þess að fólk fái að gera sjálft það sem það getur í endurhæfingarskyni. Einnig eru fundir þar sem þjónustan við heimkomu er skipulögð. Þar mætast einstaklingurinn, teymið kringum hann og aðstandendur og meta stöðuna saman. Svo er ákveðinn heimferðardagur. Svona fundur getur líka leitt til umsóknar um hjúkrunarheimili, allt eftir því hver þörfin er. Að öllu öðru jöfnu hafa iðjuþjálfi og sjúkraþjálfari gert heimilisathugun fyrir fundinn. Einstaklingur, sem ekki sækir um hjúkrunarheimili, á rétt á styrk til breytingar á eigin húsnæði til að geta búið áfram heima. Þessar breytingar geta verið allt frá því að fjarlægja þröskulda til þess að fá lyftu milli hæða, allt eftir því hver þörfin er. Ef einstaklingurinn velur að sækja um breytingu á húsnæði er það iðjuþjálfinn sem metur færni einstaklingins og skerð inguna sem um- hverfið veldur. Iðju þjálfinn skrifar vottorð sem ein stakl ingurinn send ir með umsókninni til sveitar félagsins. Svona ferli getur tekið tíma og þá er mögu- leiki á að fá framlengda dvöl á skamm- tímadeildinni þangað til aðstæður heima eru viðunandi. Þann tíma sem ég hef búið í Svíþjóð hef ég verið virk í iðjuþjálfafélaginu hér í Blekinge. Fyrst meðstjórnandi félagsins í Blekinge og svo vara formaður í fjögur ár. Sænska iðjuþjálfafélagið FSA eru landssamtök með um það bil 10.200 félagsmenn, þar af um 8.500 úti á vinnumarkaðinum. FSA skiptist niður í minni félög, eitt í hverju léni eða alls 24 félög. Um 95% félagsmanna eru konur en 5% karlar. Blekingefélagið er það þriðja minnsta í Svíþjóð með um 150 félagsmenn. Það er ekki skylda að vera í stéttarfélagi og algengt er að fólk gangi úr félaginu þegar það nálgast eftirlaunaaldur. Skýringin er oftast sú að viðkomandi telur sig ekki þurfa á félaginu að halda lengur og vill frekar nota peningana í annað. Starfið í félaginu hefur verið spennandi og lærdómsríkt. Þrátt fyrir að vera ekki lengur í stjórn þá er ég virkur félagsmaður og hef tvisvar sinnum farið sem fulltrúi Blekinge á landsfund iðjuþjálfa í Svíþjóð. Það var stórt skref að flytja til Svíþjóðar á sínum tíma en ég verð að viðurkenna að fyrir mig var þetta rétt ákvörðun. Ronneby er fallegur staður, veturinn er stuttur og sumrin ljúf. Mannfólkið er viðkunnanlegt og börnunum líður hér vel. Ég er svo heppin að eiga frábæra vinnufélaga og það er alltaf eitthvað nýtt að gerast á vinnustaðnum. Það eru auðvitað bæði kostir og gallar við að búa og starfa erlendis. Ég er og verð alltaf Íslendingur þrátt fyrir að vera farin að borða „Lussekatter” fyrir jólin og þurfa stundum að hugsa tvisvar áður en ég segi eitthvað á íslensku. Ég starfa sem arbetsterapeut en í hjartanu verð ég alltaf iðjuþjálfi. Jóhanna Rósa Kolbeins Iðjuþjálfi frá Hälsohögskolan i Jönköping 1994 B.Sc. í iðjuþjálfun frá Háskólanum á Akureyri 2005 Starfar sem iðjuþjálfi hjá Ronneby Kommun í Svíþjóð frá haustinu 2005. Sérverkefni: Árin 2007–2008 Endurhæfing – samstarfsverkefni milli Ronneby kommun og Landstinget Blekinge. 2010­2011 Undirbúningur að yfirtöku sveitarfélagsins af heimaþjónustu og heimahjúkrun. Samstarfsverkefni milli Ronneby kommun og Landstinget Blekinge. Nóvember 2014 – júní 2016 (áætlað) Gæðaþróun öldrunarþjónustu Ronneby kommun.

x

Iðjuþjálfinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.