Iðjuþjálfinn - 01.06.2015, Blaðsíða 18

Iðjuþjálfinn - 01.06.2015, Blaðsíða 18
óhultur með okkur.“ Er það gert með því að sýna kærleika og vera hvetjandi í öllum aðstæðum. Öll samskipti okkar miða að því að viðkomandi upplifi frá okkur þau skilaboð: „Með mér ertu öruggur og elskaður... ekki vera hræddur... ég mun ekki skaða þig… (McGee, 1998). Hugmyndafræðin leggur áherslu á að við breytum okkur fyrir aðra. Starfsmenn verða að vera tilbúnir til að veita aðstoð á forsendum þeirra sem þeir þjóna. Slíkt gerir miklar kröfur til starfsfólks, það þarf að leggja sig skilyrðislaust fram um að vera til staðar og mæta öllum aðstæðum af skilningi, virðingu og kærleika. Til þess að ná fram grunngildunum eru notuð fjögur verkfæri, nærvera okkar, hendur, orð, augu (McGee, 1998). Farið er yfir mikilvægi verkfæranna með starfsfólki, með hvaða hætti þau eru grunnforsenda þess að árangur náist og traust, sem er grunnur að myndun góðra tengsla. Áhrif þeirra eru samofin hverjum einstaklingi og þess vegna þarf að kenna öllum sem vinna með fólki með hvaða hætti þeim er beitt. Á þeim rúmlega tuttugu árum, sem við á Akureyri höfum notað þessi grunngildi, hafa þau staðist tímans tönn og hjálpað okkur við að auka lífsgæði þeirra sem við þjónum. Innleiðing Eins og fram hefur komið þá hefur búsetudeild Akureyrarbæjar samþykkt að þjónandi leiðsögn verði önnur af leiðandi hugmyndafræðum deildarinnar og er markvisst unnið að innleiðingu hennar. Auk þess hafa öldrunarheimili Akureyrar ákveðið að innleiða hana í sína starfsemi. Sett var af stað þjálfun tuttugu og þriggja fag aðila (men torar) til að dýpka skilning á hugmyndafræðinni, fylgja því eftir að innleiðingarferlið skili sér til notenda og veita ráðgjöf og stuðning til starfsmanna. Um tveggja ára ferli er að ræða sem byrjaði með því að Michael Vincent, bandarískur sálfræðingur, sem hefur áratuga reynslu af kennslu og innleiðingu á hugmyndafræðinni hjá MORC (The Macomb-Oakland Regional Center Inc), hélt námskeið fyrir hópinn í maí 2014. Síðan hefur hópurinn hist reglulega og mun þjálfunarferlinu ljúka í maí á þessu ári með öðru námskeiði hjá Michael. Allir starfsmenn búsetudeildarinnar og öldrunarþjónustunnar munu fá fyrirlestra og þjálfun sem mentorarnir munu fylgja eftir og leiðbeina starfsmönnum með hvaða hætti markmiðum hugmyndafræðinnar verði náð í þjónustunni. Samstarf við erlenda aðila og stofnanir hafa á síðustu árum aukist mikið. Nú þegar eru nokkrir fagmenn búsetudeildar í samstarfi við marga erlenda aðila sem hafa í áratugi haft þjónandi leiðsögn sem grunnhugmyndafræði í allri sinni þjónustu og eru leiðandi á alþjóðavísu. Þannig höfum við náð að þróa og dýpka skilning okkar á hugmyndafræðinni með áherslu á að hún skili sér inn í þjónustu okkar. Við höfum einnig náð að bera okkur saman við það sem er að gerast annars staðar og erum stolt af árangrinum sem náðst hefur hér, ekki síst er varðar þjónustu við þá einstaklinga sem er með flóknar atferlisraskanir. Þegar við skoðum aðstæður og þá þjónustu, sem við veitum, getum við borið höfuðið hátt og sjáum að við höfum margt fram að færa til alþjóðasamfélagsins. Náið samstarf er við aðila í Bandaríkjunum, Kanada, Belgíu, Danmörku og Hollandi. Þess utan eru tengsl við önnur lönd, s.s. Brasilíu, Puerto Rico og Japan. Árið 2013 hélt búsetudeild málþing og fékk m.a. samstarfsaðila frá Gent í Belgíu. Tæplega 60 manns tóku þátt í skemmtilegu og fræðandi málþingi þar sem aðilar leiddu saman hesta sína og báru saman reynslu sína. Það varð ljóst, að þegar kom að þjónustu við fólk með margþættar og flóknar fatlanir, var úrlausn málanna keimlík í báðum löndum. Vandmálin voru áþekk, úrlausnin og árangurinn sambærilegur. Hugmyndafræðin virkar óháð landamærum, fötlun, menningu eða tungumáli. Grunnþarfir allra eru í raun þær sömu, óháð hvar eða hvernig við erum. Alþjóðlegar ráðstefnur Árlega er haldin alþjóðleg ráðstefna Gentle Teaching samtakanna. Bú- setudeild hefur átt fulltrúa á henni frá árinu 2012. Þátttaka okkar hefur opnað ýmsar dyr, bæði til dýpri faglegrar þekkingar auk þess að koma á samskiptum við fólk og stofnanir víðs vegar um heim. Þátttakendur frá deildinni hafa einnig haldið fyrirlestra á ráðstefnunum. Það eru spennandi tímar fram undan, ákveðið hefur verið að haustið 2016 verði alþjóðlega ráðstefnan haldin á Akureyri og mun búsetudeild, ásamt Öldrunarheimili Akureyrar, standa að henni. Aukinn áhugi er um allt land fyrir þeirri leið sem við höfum farið og hafa fulltrúar búsetudeildar kynnt og haldið fyrirlestra víða og finna greinilega fyrir miklum áhuga á þessari n á l g u n . Lífsgæði þeirra, s e m þjónustuna nota, hafa aukist til muna, það hefur komið fram bæði hjá íbúum og þeirra aðstandendum. Auk þess sem starfsmenn sjá mikinn mun á líðan og lífi íbúa. Erum við stolt að geta deilt með öðrum þeim leiðum sem við höfum farið síðastliðin 20 ár. Vert er að minnast á heimasíða G e n t l e Teaching Það eru spennandi tímar fram undan, ákveðið hefur verið að haustið 2016 verði alþjóðlega ráðstefnan haldin á Akureyri og mun búsetudeild, ásamt Öldrunarheimili Akureyrar, standa að henni.

x

Iðjuþjálfinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.