Iðjuþjálfinn - 01.06.2015, Blaðsíða 24

Iðjuþjálfinn - 01.06.2015, Blaðsíða 24
24 Fagráð iðjuþjálfunar á Landspítala (LSH) var formlega stofn að í apríl 2010. Meginmarkmið þess er að stuðla að þróun og fram förum í þeirri starf- semi, sem fer fram í iðjuþjálfun, að því er varðar þjónustu við skjólstæðinga, menntun nemenda, endurmenntun starfs fólks og vísindarannsóknir. Að auki á fagráðið að vera ráðgefandi vettvangur um fagleg málefni fyrir iðjuþjálfa á LSH og taka þátt í mótun stefnu iðjuþjálfunar spítalans og mót- un starfsþróunar iðjuþjálfa. Í fagráðinu sitja 5 iðjuþjálfar hverju sinni; fulltrúar stærstu starfseininganna, auk formanns sem í dag er yfiriðjuþjálfi LSH. Alþjóðadagur iðjuþjálfunar Einn af föstum liðum í árlegri starfs- áætlun fagráðsins er að halda upp á alþjóðadag iðjuþjálfunar með ýmsum hætti. Það var fyrst gert með vísindadegi 25. október 2013 með það að markmiði að vekja athygli á rannsóknar- og þróunarstarfsemi sem fram fer á vinnu- stöðvum iðjuþjálfa LSH. Á þessum degi kynntu iðjuþjálfar niðurstöður rann sókna sinna, rannsóknarhugmyndir og þróunarverkefni. Fyrirlestur Guð r únar Árnadóttur, sérfræðings og umsjónarmanns þjónustu- og rannsóknarverkefna í iðjuþjálfun á LSH, sem hún flutti á vísindadeginum um þjónustuyfirlit sem grund völl gæða eftirlits og kveikju að hug mynda- þróun á iðju þjálfastöðvum, varð síðan grunnurinn að fimm vinnusmiðjum um þjónustuyfirlit sem haldnar voru á vormánuðum 2014. Í framhaldi af vinnu- smiðjunum var afrakstur þeirra kynntur á mál- þingi iðjuþjálfa LSH í nóvember sama ár. Vinn- unni, sem fór fram í þess- um vinnusmiðjum, eru gerð nánari skil í blaðinu í eftirtöldum grein um: Iðjuþjálfun á Landakoti, gerð þjónustuyfirlits sem liður í bættri þjónustu og Iðjuþjálfun á bráða- deildum Landspítala. Einnig voru erindi um þjónustuferli iðju þjálfa í geðendurhæfingunni á Hring br­ aut, Kleppi og á barna- og unglinga- geðdeildinni og tilfellalýsingar með frekari útfærslu þjónustuferlis á Grensási flutt á málþinginu. Að auki voru flutt erindi um eiginleika þjónustuferla sem eru í notkun á LSH (Occupational Therapy Intervention Process Model [OTIPM] og þjónustu- ferli tengdu hugmyndafræði líkansins um iðju mannsins [MOHO]), notkunar- möguleika A-ONE og tengsl þeirra við OTIPM og þróun A-ONE í ljósi líkansins um samspil vettvangsþátta. Síðast nefnda erindið var flutt af Guð­ rúnu Árnadóttur á heimsráðstefnu iðju- þjálfa í Yokohama í Japan, í júní í fyrra. Vinnusmiðjur á vegum fagráðsins hófu göngu sína árið 2013. Þá voru haldnar tíu vinnusmiðjur tengdar matsaðferðum iðjuþjálfa á mismunandi starfsstöðvum spítal ans. Afrakstur mats tækja vinnusmiðjanna auðveldaði áfram haldandi vinnu í vinnusmiðjum um þjónustuferli. Námskeið Fagráðið hefur einnig staðið fyrir ýmsum námskeiðum. Má þar helst nefna fjögur þjálfunarnámskeið í A-ONE matstækinu á tímabilinu 2010 til 2014, sem 49 iðjuþjálfar sóttu og öðluðust um leið réttindi í notkun þess. Auk þessara námskeiða var haldið námskeið í hugrænni atferlismeðferð 2013 sem 23 iðjuþjálfar á LSH sóttu. Í janúar sl. hélt fagráðið, í samvinnu við Iðjuþjálfafélag Íslands, tvö þriggja daga námskeið. Námskeiðin sóttu 38 iðjuþjálfar víðs vegar að af landinu. Á fyrra námskeiðinu var fjallað um mælitækið Evaluation of Social Interaction (ESI) sem notað er til að meta samskipti einstaklinga við ýmis tækifæri og er það næmt fyrir breytingum samskiptaþátta. Á síðara námskeiðinu var fjallað um þjónustuferlið OTIPM. Leiðbeinandi á námskeiðunum var bandaríski iðju- þjálfinn dr. Anne G. Fisher ScD, OT, FAOTA, höfundur OTIPM þjónustuferlisins og einn af höfundum ESI mælitækisins. Auk kennslunnar vann hún að rannsóknarverkefnum með Guðrúnu Árnadóttur. Þær eiga margra ára rannsóknarsamvinnu að baki, tengda Rasch greiningu. Frá vísindadegi 25. október 2013 í tilefni alþjóðadags iðjuþjálfunar Dr. Anne Fisher á námskeiðinu um mælitækið Evaluation of Social Interaction (ESI) í janúar 2014 Sigrún Garðarsdóttir yfiriðjuþjálfi Landspítala Fagráð iðjuþjálfunar á Landspítala Þróunar- og gæðastarf Sigrún Garðarsdóttir yfiriðjuþjálfi LSH

x

Iðjuþjálfinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.