Iðjuþjálfinn - 01.06.2015, Blaðsíða 39

Iðjuþjálfinn - 01.06.2015, Blaðsíða 39
39 ekki inn fyrr en búið er að meta, þ.e. á íhlutunarstigi. Rökleiðsla kemur á forstigi matslotu í MOHO, en er í bakgrunni allan tímann í OTIPM, þó einnig sé talað um síðar að MOHO hugsunarháttur eigi að eiga sér stað í gegnum allt ferlið (Forsyth o.fl., 2014). Áhorf er mjög mikilvægt í OTIPM en ekki eins í MOHO og alls ekki skilyrði. Orsök iðjuvanda er tekin fyrir sem sér þrep í OTIPM en ekki MOHO. Einnig leiðir OTIPM íhlutun þjónustuna miklu ákveðnar en þjónustuferlið sem tengt er MOHO. Að öðru leyti eru þættir svipaðir. Í síðustu línu töflu 1 má sjá upplýsingar sem nýta má við samanburð þessara tveggja ferla við þjónustuferli AOTA (AOTA, 2014), ferlið sem þjónustuferli MOHO byggir á, og ferli sem nýtt hefur verið til hliðsjónar við þjónustu iðjuþjálfa á minnismóttöku LSH Landakoti. Í OTIPM er sérstök áhersla á fram- kvæmdagreiningu og að líkanið nýtist til að leiða þjónustuna áfram með íhlutunarstefnum. Tekist hefur að skila þessum þáttum inn í líkanið sem er ætlað öllum skjólstæðingum. Þjón ustu ferli MO HO endurspeglar ekki sér- kennandi MOHO hugtök hugmyndafræðinnar að öðru leyti en því að vísað er til rökleiðslu tengda hugmyndafræði MOHO á undirbúningsþrepi. Það er því ekki eins leiðandi varðandi íhlutun og OTIPM ferlið er. Þjónustuyfirlitstöflur Nokkur orð um yfirlitstöflur áður en lengra er haldið. Við val á þjónustuferlum er mikilvægt að velta fyrir sér hvað hið útvalda ferli hefur umfram önnur. Einnig er mikilvægt að skoða hvort verið er að nota öll þrep ferlisins í þjónustu. Tekur ferlið til allra þátta þjónustunnar? Veitir það nothæfar upplýsingar um mat og leiðandi íhlutunarupplýsingar? Ef ekki, hverju þarf þá að bæta við, t.d. í yfirlitstöflu byggða á viðkomandi þjónustuferli til að fá betra yfirlit? Ef eitthvað vantar af ofannefndum þáttum mætti velta fyrir sér hvort annað þjónustuferli gæti hentað betur. Út frá slíkum upplýsingum sem fást með yfirlitstöflum má velta fyrir sér nokkrum þáttum í ákvarðanatöku um næstu skref. Aðgerðabinding OTIPM lotna í yfirlitstöflu Yfirlitstafla tengd OTIPM þjónustu­ ferlinu og sem fjallað er um í greininni „Þjónustuyfirlit sem grundvöllur gæða­ þróunar innan iðjuþjálfunar“ annars staðar í þessu blaði hefur verið notuð til að taka saman upplýsingar yfir almenna þjónustu iðjuþjálfa á LSH Grensási. Þjónustuloturnar eru þrjár (mat, íhlutun og endurmat). Þjónustuferlið (OTIPM) sjálft endurspeglast í dálknum yst til vinstri á þjónustuyfirlitstöflunni (sjá töflu 2). Ég útvíkkaði síðan töfluna yfir til hægri til að hægt væri að veita nánari upplýsingar um eðli þeirra matstækja sem eru í notkun á hverri starfsstöð. 11 Tafla 1. Samanburður þjónustuferla. Ferli Fræði stýrt Rök- leiðsla Iðju- mynd Mat Skilyrði um áhorf Orsök Markmið Íhlutunar- leiðir Íhlutun Endur- mat MOHO Bak- gunnur Spurningar á forstigi Já Já Nei Nei Já Nei Já Já OTIPM Nei* Bak- grunnur Já Já Já Já Já Já Já Já AOTA Nei* Bak- grunnur Já Já Nei Nei Já Nei Já Já *Fræðilíkön koma ekki við sögu fyrr en í íhlutunarlotu. Tafla 1. Samanburður þjónustuferla. *Fræðilíkön koma ekki við sögu fyrr en í íhlutunarlotu. 12 Tafla 2. Þjónustuyfirlit byggt á þjónustuferli OTIPM, próffræðiþáttum og iðjusviðum AOTA ÞÆTTIR OTIPM: þjónustulíkans Fisher: AÐGERÐALÝSING MATSAÐFERÐ ÓFORMLEG MATSTÆKI MÆLITÆKI MATSLOTA 1. Iðja - aðstæður Skjólstæðingssýn Styrkleikar/erfiðleikar MATSLOTA 2. FRAMKVÆMDA- GREINING (PERFORMANCE ANALYSIS) MATSLOTA 3. ATHAFNA- GREINING (TASK ANALYSIS) MARKMIÐ 1. 2. 3. 4. ÍHLUTUNARLOTA VELJA LÍKAN NÁLGUN IÐJUFLOKKUR /IÐJUSVIÐ AÐFERÐ 4A. JÖFNUNARLÍKAN 4B. LEIKNILÍKAN 4C. LAGFÆRINGA- LÍKAN 4D. FRÆÐSLULÍKAN: 5.ÍHLUTUNARLOTA ÍHLUTUN ÍHLUTUN ÍHLUTUN 6. ENDURMATSLOTA MATSAÐFERÐ ÓFORMLEG MATSTÆKI MÆLITÆKI 7. MARKMIÐ / ÚTSKRIFT 1. 2. 3. Tafla 2. Þjónustuyfirlit byggt á þjónustuferli OTIPM, próffræðiþáttum og iðjusviðum AOTA

x

Iðjuþjálfinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.