Iðjuþjálfinn - 01.06.2015, Page 11

Iðjuþjálfinn - 01.06.2015, Page 11
11 Eftir að hafa starfað við iðjuþjálfun á Íslandi í 11 ár tók ég þá ákvörðun að flytja til Svíþjóðar og prófa lífið þar. Haustið 2005 pökkuðum við fjölskyldan búslóðinni og hófum líf á nýjum stað. Ég fékk starf sem iðjuþjálfi hjá Ronneby–kommun í Blekinge, næstminnsta léni Svíþjóðar. Blekinge er staðsett í Suður-Svíþjóð, austan við Skán. Ronneby-kommun liggur að Eystrasaltinu, með fallegan skerjagarð og um 800 smáeyjar. Íbú ar í Ronneby kommun eru um 28 þúsund, þar af tæplega helmingur í Ronne by sjálfri, restin (hinn hlutinn) í smábæjunum og sveitunum í kring. Það fyrsta sem þarf að gera til að fá vinnu sem iðjuþjálfi í Svíþjóð er að fá sænska löggildingu, eða legiti- mation. Einnig er mikilvægt að kunna tungumálið. Atvinnu leysi meðal iðju- þjálfa er mjög lítið og er reiknað með að eftirspurnin aukist á komandi árum. Síðustu árin á Íslandi vann ég á Droplaugarstöðum í Reykjavík og verð ég að viðurkenna að oft á tíðum sakna ég starfsins þar. Sem iðjuþjálfi í Ronneby kommun er starfið mjög frábrugðið því sem var á Droplaugarstöðum í Reykjavík, þrátt fyrir að skjólstæðingahópurinn sé nánast sá sami. Hér eru iðjuþjálfar ráðnir hjá sveitarfélaginu en ekki á einstaka heimili eins og venjan er á Íslandi. Í dag eru 10 iðjuþjálfar fastráðnir á öldrunarsviði Ronneby kommun og einn á hæfingar­ og geðsviði. Í Ronneby kommun eru sjö hjúkrunarheimili. Heimahjúkrun og heimaþjónusta eru einnig á vegum sveitarfélagsins þannig að iðjuþjálfarnir sinna einstaklingum í heimahúsum líka. Einn iðjuþjálfi er þá kannski með eitt hjúkrunarheimili og svo hverfið í kring og jafnvel eitt hverfi til. Þetta þýðir að hvert hjúkrunarheimili er bara með iðjuþjálfa í hlutastarfi, aldrei meira en 50%. Starfið felst mikið í mati á hjálpartækjaþörf, útprófun á hjálpartækjum og stuðningi við starfsfólk i umönnun. Oft snýst sá stuðningur um vinnutækni og aðlögun vinnuaðstöðu. Teymisfundir eru reglulega á hverri deild og í hverjum heima þjónustu hóp, þar sem allt teymið hittist. Teymið skipa iðjuþjálfi, sjúkraþjálfari, hjúkrunar­ fræð ingur, deildarstjóri, sjúkra liðar og í heima þjónustu hópunum er einn ig verið með svo kallaður „bistånds handläggare” sem er sá aðili sem úrskurðar um hlutfall heimaþjónustu fyrir hvern og einn. Á fundinum er farið yfir stöðu mála varðandi skjólstæðingana og ýmislegt annað í starfseminni. Skoðaðar eru tilkynningar um fall, þ.e. um einstaklinga sem hafa dottið. Starfsfólk er skyldugt að skrifa skýrslu fyrir hvert einstakt fall sem það verður vitni að eða kemur að. Teymið metur í sameiningu alvarleika þessa tiltekna falls og hættuna á að það gerist aftur. Eftir það er ákveðið hvort einhverra aðgerða sé þörf eða ekki og þá hverra. Allir iðjuþjálfar eru skyldugir að skrifa skýrslur um allt sem snýr að skjól- stæðingum. Alltaf þarf að framkvæma mat áður en nokkur íhlutun er gerð. Sem dæmi má nefna ferlið við hjálpartæki. Fyrst er gert mat á færni einstaklingsins og skerðingu og þörf fyrir hjálpartæki, eftir það skráð hvaða tæki eru prófuð og hvers vegna. Að lokum er skrifuð svokölluð „ordination” þar sem fram kemur hvaða hjálpartæki einstaklingurinn fær, hvernig tækið skal notast og hvenær. Einnig er skráð hvenær endurmat skal gert. Sama á við um þjálfun, heimilisathuganir og allt annað sem snýr að skjólstæðingnum. Reglan er sú að það, sem ekki er skráð, hefur ekki verið framkvæmt. Allir iðjuþjálfar, sjú kra þjálfarar og hjúkrunar fræðingar sveitar félagsins hafa skrifstofu- og matar aðstöðu í sama húsi, þar sem fólk skrif ar skýrslur og sinnir annarri skrifborðsvinnu og drekkur morgun kaffið áður en haldið er út á hin ýmsu hjúkrunarheimili og til að sinna sjúkum í heimahúsum. Frá því í nóvember síðast- liðnum hefur starf mitt ekki verið hið hefðbundna iðjuþjálfastarf heldur vinn ég við gæða- þróunarverkefni ásamt hjúkr unar fræð- ingi og sjúkraþjálfara. Þetta er tíma- bundið verkefni sem er áætlað að standi fram til sumarsins 2016. Markmiðið er að skoða öldrunarþjónustu sveitarfélagsins alveg niður í kjölinn og auka gæði þjónustunnar fyrir einstaklinginn. Ekki verður fjallað nánar um það verkefni núna enda stutt á veg komið. Fram að þessu verkefni var stafs- vettvangur minn eftirfarandi: Eitt hjúkrunarheimili eingöngu fyrir fólk með heilabilun (42 íbúar), annað blandað hjúkrunarheimili (48 íbúar), ein deild fyrir eldri geðfatlaða (6 íbúar), líknardeild með fjórum plássum og skammtímadeild með 14 plássum. Íslenskur iðjuþjálfi í Svíþjóð Jóhanna Rósa Kolbeins Reglan er sú að það, sem ekki er skráð, hefur ekki verið framkvæmt.

x

Iðjuþjálfinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.