Iðjuþjálfinn - 01.06.2015, Síða 14
14
skjólstæðingar hafi virkt hlutverk og hafi
eitthvað uppbyggilegt fyrir stafni eftir
útskrift. Misjafnt er eftir skjólstæðingum
hvaða endurhæfingarleiðir þeir velja
sér en það fer eftir áhugasviði og
framtíðarsýn skjólstæðings. Margir vilja
fara í skóla og fara þá jafnvel í Hringsjá
eða Janus á meðan aðrir fara í almenna
framhaldsskóla og fá þá stuðning til
að sinna því hlutverki. Þá er samstarf
við Vinnumálastofnun og þá sérstaklega
AMS (Atvinna Með Stuðningi) mikilvæg
þar sem fólk fær tækifæri til að aðlagast
vinnumarkaði á eigin forsendum með
stuðningi. Aðrir þurfa á áframhald andi
endurhæfingu að halda í formi endur
hæfingarbúsetu þar sem þeir fá frekari
stuðning til að takast á við athafnir
daglegs lífs. Þeir skjólstæðingar, sem búa
í eigin húsnæði en þurfa á þjónustu að
halda, tengjast við þjónustumiðstöðvar í
sínu hverfi.
Deildir
Endurhæfingardeild 5 daga og 7 daga
er fyrir einstaklinga 18 ára og eldri með
alvarlega og langvinna geðsjúkdóma.
Deildin hefur rými fyrir 23 einstaklinga,
þar af eru 12 rými fyrir 5 daga þjónustu
og síðan eitt til tvö dagrými. Tímalengd
meðferðar er metin eftir þörfum hvers
og eins. Hugmyndafræði meðferðar
lýtur að uppfyllingu á grunnþörfum
einstaklings þar sem aðstoð til
sjálfshjálpar er höfð að leiðarljósi og að
hver einstaklingur geti notið hæfileika
sinna og styrkleika. Því er lögð áhersla
á sjálfstæði einstaklings og hann
virkjaður til að takast á við athafnir
daglegs lífs. Dæmi um meðferðarúrræði
eru t.d. einstaklingsviðtöl, hugræn
atferlismeðferð, hreyfing, fræðsla um
heilbrigða lífshætti og sjúkdómseinkenni,
þjálfun og efling félagslegrar færni.
Göngudeild Klepps sinnir sérhæfðri
eftirfylgd fyrir einstaklinga með
langvinnar geðraskanir, bæði í formi
göngudeildarþjónustu, vitjana í heimahús
og eftirfylgd útskrifaðra einstaklinga.
Tímalengd og markmið meðferðar
eru skil greind við upphaf þjón ustu
og stefnt að því að einstaklingar úts-
krifist að lokum yfir til heilsugæslunnar,
sam félags teymis eða félags þjónustu
sveitarfélaga. Faglegur stuðningur
er veittur frá göngudeildinni við
búsetukjarna og sambýli í samvinnu
við velferðarsvið Reykjavíkurborgar.
Iðjuþjálfi göngudeildar sinnir einnig
FMB-teymi sem er meðferð í tengsla-
eflandi vinnu með ungbörnum og
foreldrum þeirra þegar um alvarlegan
geðsjúkdóm, fíknivanda eða tengsla-
vanda er að ræða. FMB teymið er
sérhæft viðbótarúrræði við þjónustu
geðsviðs og kvenna- og barnasviðs
við ofangreindan markhóp. Markmið
vinnunnar er að efla tengsl móður/
föður og barns, draga úr einkennum
og minnka skaða vegna undirliggjandi
geðsjúkdóms, en jafnframt er unnið í
að hindra flutning vandamála frá einni
kynslóð til annarrar. Meðferð getur
hafist á meðgöngu og getur varað í allt
að eitt ár eftir fæðingu barns.
Sérhæfð endur hæfingar geð deild er
lokuð deild fyrir einstaklinga með geð-
rofssjúkdóma með eða
án fíkniraskana sem ráða
ekki við að vera á opinni
deild. Deildin hefur rými
fyrir 10 einstaklinga og
er tímalengd meðferðar
að meðaltali 3-6 mánuðir
en lengdin er oft háð því
að búsetuúrræði séu til
staðar fyrir einstaklinga
við útskrift. Markmið
meðferðar er að draga úr
geðrofseinkennum, auka
virkni, draga markvisst úr
fíkn og tengja einstaklinga
við önnur úrræði innan LSH eins og
Laugarásveg 71 eða úrræði á vegum
sveitarfélaga. Hver ein stak l ingur nýtur
þjónustu deildarteymis þar sem ábyrgur
hjúkrunarfræðingur og ráðgjafi halda
utan um starfið. Meðferðarsamningar
og virknistundaskrár eru gerðar í
samvinnu við einstaklinga og saman-
stendur deildarmeðferð m.a. af
áherslum á heilbrigða daglega virkni,
hópmeðferð, stuðningsviðtöl, félags-
færni, vitræna þjálfun og ýmiss konar
tómstundameðferð. Á deildinni er einnig
veittur markviss fjölskyldustuðningur.
Öryggisgeðdeild er lokuð deild sem
sérhæfir sig í langtímameðferð fyrir
alvarlega geðsjúka einstaklinga, oft með
tvígreiningar, sem hafa takmarkaða
meðferðarheldni og sjúkdómsinnsæi.
Deildin hefur 8 legupláss og fer inn-
lagnartími eftir þörfum hvers og eins en
er að meðaltali 6-12 mánuðir og er oft háð
því að búsetuúrræði séu til staðar fyrir
einstaklinga við útskrift. Einstaklingar
vistast sjálfræðissviptir á deildina og
er markmið meðferðar að viðkomandi
öðlist færni í að búa í samfélaginu með
viðeigandi stuðningi. Á réttargeðdeild
vistast þeir sem eru ósakhæfir, en það
eru þeir einstaklingar sem dæmdir eru
af dómstólum svo alvarlega veikir
á verknaðarstund að þeir hafi ekki
getað borið ábyrgð á gjörðum sínum.
Deildin hefur rými fyrir 9 einstaklinga,
þar af tvö kvennarými. Til þess að
einstaklingur útskrifist af deildinni
þarf að fá úrskurð frá héraðsdómi um
rýmkun. Dæmi um meðferðarúrræði
á réttar- og öryggisgeðdeild eru t.d.
einstaklingsmiðuð viðtöl, viðtals með-
ferð, fræðsla, þjálfun og efling í athöfnum
daglegs lífs, félagslegri færni og daglegri
virkni, líkamsrækt, hópmeðferð og
fjölþætt fjölskylduþjónusta.
Lokaorð
Starf iðjuþjálfa á Kleppi hefur breyst
mikið í gegnum tíðina og hefur
endurhæfingin að miklu leyti færst frá
því að eiga sér stað innan spítalans
og út í nærumhverfið. Handverk
hefur að miklu leyti verið lagt niður
á Kleppi og áhersla í
endurhæfingu færst yfir
á þátttöku skjólstæðings
í samfélaginu og
endurhæfingu varð
andi eigin umsjá. Einnig
hafa miklar breyt-
ingar á innra starfi átt
sér stað undanfarin ár
þar sem leitast er við
að efla faglega vinnu
iðjuþjálfa. Iðjuþjálfar
hafa tekið virkan þátt
í ýmsum verkefnum,
s.s. endurbótum á
heimasíðu LSH, vinnu á verklagi deilda,
upplýsingaritum varðandi iðjuþjálfun á
LSH, innleiðingu Bata stefnu og vinnu
varð andi þjónustuferli iðjuþjálfa. Þá
hefur verið lögð aukin áhersla á aukna
notkun matstækja í vinnu iðjuþjálfa
ásamt rannsóknarvinnu í samstarfi við
Háskólann á Akureyri.
Framtíðarsýn iðjuþjálfa í geð endur-
hæfingu á Kleppi er að efla enn betur
samstarf við úrræði í samfélaginu.
Einnig að auka samvinnu við endur-
hæfingarbúsetuúrræði og kalla eftir
fjölbreyttari búsetuúrræðum til að mæta
flóknum vanda skjólstæðinga sem t.d.
glíma við tvíþættan vanda.
Heimildir
Auður Hafsteinsdóttir og Erna
Sveinbjörnsdóttir. (2014). Lýsing á
starfsvettvangi iðjuþjálfa
(óútgefið efni).
Fagteymi Endurhæfingargeðdeildar 5 daga og 7
daga. (2015). Inntökuviðmið og tilvísanir
(óútgefið efni).
Fagteymi FMB teymis. (2015). Inntökuviðmið
og tilvísanir (óútgefið efni).
Fagteymi Réttar – og Öryggisgeðdeildar. (2015).
Inntökuviðmið og tilvísanir (óútgefið efni).
Fagteymi Sérhæfðrar endurhæfingargeðdeildar.
(2015). Inntökuviðmið og tilvísanir
(óútgefið efni).
Kielhofner, G. (2008). Model of Human
Occupation: Theory and Application.
Fourth Edition.
Philadelphia, PA: Lippincott, Williams and
Wilkins.
Landspítali Háskólasjúkrahús (2014).
Batamiðuð þjónusta. Sótt 30. janúar 2015,
frá http://www.landspitali.is/sjuklingar-
adstandendur/klinisk-svid-og-deildir/
batamidud-thjonusta/
LSH Kleppur
Endurhæfing
á Kleppi er
markvisst ferli
sem byggir á
samvinnu milli
skjólstæðings,
fjölskyldu/
aðstandenda
og heilbrigðis
starfsfólks.