Iðjuþjálfinn - 01.06.2015, Page 25

Iðjuþjálfinn - 01.06.2015, Page 25
25 Vísindastarf iðjuþjálfa Frá 2012 hefur fagráðið haldið utan um vísindastarf innan iðjuþjálfunar LSH. Á þessum þremur árum hafa iðjuþjálfar haldið 77 fræðsluerindi fyrir samstarfsfólk sitt á spítalanum og 29 erindi á öðrum vettvangi, þ.e. utan spítalans. Iðjuþjálfar LSH hafa verið með 38 erindi/veggspjöld, bæði á innlendum sem og erlendum vettvangi/ ráðstefnum á tímabilinu. Má þar nefna heimsráðstefnu iðjuþjálfa (WFOT) í Japan 2014, Evrópuráðstefnu iðjuþjálfa (COTEC) í Svíþjóð 2012, Vísindi á vordögum á Landspítala og á sérstökum málþingum iðjuþjálfa í Hollandi og Suður-Kóreu, tengdum A-ONE matstækinu. Einnig hafa iðjuþjálfar LSH verið duglegir að sækja sér sí- og endurmenntun á námskeiðum/ fyrirlestrum, bæði innanlands sem og erlendis. Þeir hafa fengið birtar greinar í Scandinavian Journal of Occupational Therapy, OT Practice (blað klínískra iðjuþjálfa á vegum bandaríska iðju- þjálfafélagsins) og Iðjuþjálfanum, auk bókakafla í Handbók í aðferðafræði rannsókna. Að auki hafa iðjuþjálfar LSH unnið að ýmsum kynningarbæklingum um iðjuþjálfun sem og þjónustu þeirra. Á þeim þremur árum sem fagráðið hefur gert samantektir hafa 59 nemar frá Háskólanum á Akureyri verið í vettvangsnámi á hinum ýmsu starfsstöðvum spítalans og nokkrir iðjuþjálfar tekið að sér stundakennslu við skólann. Guðrún Árnadóttir hefur á tímabilinu auk þess haldið A-ONE námskeið á Ítalíu, í Japan og Bandaríkjunum og verið með umsjón kennslu og kennsluefnis á endurmenntunarnám skeiðum í Danmörku, Hollandi og Kanada. Heimsráðstefna iðjuþjálfa Tveir iðjuþjálfar frá LSH sóttu sextándu heimsráðstefnu iðjuþjálfa, sem haldin var í tengslum við árlegt þing japanskra iðjuþjálfa. Þessi ráðstefna var sú fjöl- mennasta sem haldin hefur verið hingað til eða 6.893 þátttakendur og sjálfboðaliðar, þar af 7 iðjuþjálfar frá Íslandi. Fyrirlestrarnir voru 971 í 12 mismunandi flokkum, 1.499 veggspjöld, 57 vinnusmiðjur ásamt fleiru og yfir 70 sýningabásar. Framlag Íslendinga á heimsráðstefnunni voru tveir fyrirlestrar og eitt veggspjald og öll tengdust þau starfsemi iðjuþjálfa á LSH. Guðrún Árnadóttir flutti erindið „Contribution to inte grated occupational thera- py profession: Model based examination of the A-ONE” eða þróun A-ONE í ljósi líkansins um samspil vettvangsþátta, eins og fram hefur kom ið. Hún var einnig með höfundur erindis um „Neuroanatomy and body functions in occupation-based edu- cation”, sem flutt var af Valerie Harris yfiriðjuþjálfa Sjálfs bjargar heimilisins. Guðrún og Valerie áttu einnig veggspjald á ráð- stefnunni sem bar titilinn „The Activity-focused Occu pat ion -based Neuro- behav ioral Evaluation (A-ONE): Diverse utiliz- ation possibilities”. Margir fyrirlestrarnir í undir flokk­ num „hamfarir” fjöll - uðu um aðkomu og þjón- ustu iðjuþjálfa í kjölfar jarðskjálftans mikla í Japan í mars 2011. Japanskeisari og keisaraynja heiðruðu ráðstefnugesti með nær- veru sinni á opnunarhátíðinni. Til gamans má geta þess að iðjuþjálfar frá LSH hafa verið með innlegg á öllum heimsráðstefnum iðjuþjálfa, flestum Evrópuráðstefnum, auk nokkurra norr ænna ráðstefna (bæði iðjuþjálfa og þverfaglegra) frá 1988. Auk þess hafa þeir verið með erindi á árlegum ráðstefnum bandarísku, japönsku og þýsku iðjuþjálfafélaganna á sama tímabili. Eins og fram kemur hér að ofan er mikil gróska í þróunar- og Fulltrúar Íslands á WFOT 2014: Inga, Bára, Hulda, Guðrún, Ósk, Valerie og Sigrún Valerie og Guðrún við veggspjaldið: The Activity-focused Occupation- based Neurobehavioral Evaluation (A-ONE): Diverse utilization possibilities Sharon Britnell forseti WFOT tekur á móti Japanskeisara og keisaraynju við komu á opnunarhátíðina. gæðastarfi iðjuþjálfa á LSH sem hefur aukist ár frá ári. Einnig má nefna rannsóknarsamvinnu við aðrar stofnanir, s.s. iðjuþjálfunarfræðideild Háskólans á Akureyri, háskóla í Bandaríkjunum, Danmörku, Japan og Svíþjóð. Auk þess hefur verið rannsóknarsamvinna við ítalska iðjuþjálfafélagið. Sum samvinnuverkefnin hafa tengst erlendum meistara- og doktorsverkefnum í iðjuþjálfun.

x

Iðjuþjálfinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.