Iðjuþjálfinn - 01.06.2015, Side 35
35
Á Landakot koma aldraðir til endur-hæfingar vegna sjúkdóma og
áfalla. Ástæða innlagnar er í flestum
til vikum fjölþætt og félagslegar að-
stæður hafa einnig áhrif. Algengast
er að skjólstæðingar fái þjónustu
iðjuþjálfa vegna heilabilunar, hjarta-
og lungnasjúkdóma, taugasjúkdóma,
einkenna frá stoðkerfi, geðrænna
sjúkdóma og eftir endurteknar byltur.
Iðjuþjálfar starfa í þverfaglegum
teymum á legudeildum, dagdeild og
göngudeildum. Í flestum tilvikum er
unnið eftir þjónustuferli Anne G. Fisher,
Occcupational Therapy Intervention
Process Model (OTIPM), en önnur ferli
notuð eftir þörfum.
Á síðasta ári lögðu iðjuþjálfar á
Landakoti í þá vinnu, líkt og aðrar
starfsstöðvar á Landspítalanum, að
taka saman yfirlit yfir þá þjónustu sem
þeir veita og setja upp í yfirlitstöflu.
Meginmarkmiðið var að bæta
þjónustuna sem þeir veita. Til þess að
vinna að þessu markmiði var auk þess
leitað svara við eftirfarandi spurningum:
1. Hvaða þjónusta er til staðar?
2. Hvernig er forgangsraðað?
3. Hvað stýrir þjónustunni?
4. Hvað mætti gera með öðrum
hætti og hvers vegna?
Þjónustuyfirlit
Yfirlitstaflan tekur mið af OTIPM og
skiptist í þrjá meginflokka: matslotu,
íhlutunarlotu og endurmatslotu.
Hér að neðan verður farið stuttlega
yfir þá þjónustu sem iðjuþjálfar á
Landakoti veita út frá þessum flokkum.
Yfirlitstaflan verður ekki sýnd í heild
sinni en dæmi um uppbyggingu
slíkrar töflu má sjá í grein Guðrúnar
Árnadóttur og Sigrúnar Garðarsdóttur
Þjónustuyfirlit sem grundvöllur
gæðaþróunar innan iðjuþjálfunar sem
finna má í þessu blaði.
Matslota:
Stór þáttur í starfi iðjuþjálfa á Landakoti
felst í að meta færni við daglega iðju.
Stundum lýkur þjónustu eftir að mat
hefur farið fram en í flestum tilvikum
fylgir íhlutun í kjölfarið. Við matið nota
iðjuþjálfar ýmis matstæki, greina verk og
framkvæmd, beita áhorfi og taka viðtöl.
Líkamlegir og vitrænir þættir, sem geta
haft áhrif á færni skjólstæðinga, eru
einnig metnir. Farið er yfir viðfangsefni
sem skjólstæðingurinn fæst við í sínu
daglega lífi, bæði þau sem ganga vel
og þau sem hann á erfitt með að sinna.
Iðjuþjálfar meta auk þess þörf fyrir
hjálpartæki og fara í heimilisathuganir
eftir þörfum. Mat á færni við akstur er
framkvæmt í samstarfi við ökukennara
þegar það á við. Yfirlit yfir helstu
matstæki má sjá í töflu 1.
Íhlutunarlota:
Íhlutun, sem iðjuþjálfar á Landakoti veita,
er afar fjölbreytt. Hún getur m.a. falist í
að kenna nýjar leiðir við að framkvæma
daglegar athafnir, færniþjálfun og
aðlögun á heimili. Auk þess veita þeir
fræðslu og ráðgjöf til skjólstæðinga og
aðstandenda. Endurhæfing fer bæði
fram sem einstaklingsþjálfun og í hópum.
Áhersla er lögð á að bæta andlega líðan
og félagslega hæfni með ýmiss konar
hópastarfi. Iðjuþjálfar taka einnig þátt
í umræðuhópum fyrir aðstandendur
á minnismóttöku. Útvegun, prófun
og kennsla í notkun hjálpartækja er
mikilvægur þáttur í starfi iðjuþjálfa á
Landakoti, og þá sjá þeir einnig um
spelkugerð þegar þess er þörf.
Iðjuþjálfar á Landakoti nota allar
fjórar íhlutunarleiðir OTIPM í
sinni þjónustu, þ.e. jöfnunarlíkanið,
leiknilíkanið, lagfæringarlíkanið og
fræðslulíkanið. Á heildina litið má þó
segja að megináhersla sé á aðferðir sem
falla undir jöfnunarlíkanið, þar sem
hjálpartæki og aðlögun á umhverfi gegna
þýðingarmiklu hlutverki.
Endurmatslota:
Endurmat er gjarnan gert með
óformlegum hætti á Landakoti, þ.e. með
áhorfi eða viðtölum. Í töflu 2 má sjá þau
matstæki sem notuð eru við endurmat.
Tekið skal fram að upprunalegt mat á
sér ekki alltaf stað á Landakoti. Í sumum
tilfellum fer slíkt mat fram á bráðasviði
Landspítalans og er þá um endurmat
að ræða á Landakoti. Við útskrift getur
verið þörf fyrir eftirfylgd iðjuþjálfa, t.d.
vegna hjálpartækja og áframhaldandi
þjálfunar á öðrum stöðum.
LSH- Jóhanna og Eyrún
Iðjuþjálfun á Landakoti
gerð þjónustuyfirlits sem liður í bættri þjónustu
Elín María Heiðberg, Jóhanna Elíasdóttir, Eyrún Björk Pétursdóttir
Elín María Heiðberg
iðjuþjálfi á
öldrunarlækningadeildum
Landspítala
Jóhanna Elíasdóttir
iðjuþjálfi á
öldrunarlækningadeildum
Landspítala
Eyrún Björk Pétursdóttir
iðjuþjálfi á
öldrunarlækningadeildum
Landspítala