Iðjuþjálfinn - 01.06.2015, Síða 36
36
Niðurstöður og ályktun:
Vinnan við gerð þjónustuyfirlitsins var
bæði skemmtileg og krefjandi og kom
af stað áhugaverðum umræðum. Við
lögðum áherslu á að allir iðjuþjálfar á
Landakoti tækju virkan þátt til þess að
reynsla og þekking hvers og eins nýttist
sem best. Þegar við tókum þjónustuna
saman í yfirlitstöflu varð okkur ljóst
hversu fjölbreyttar aðferðir við notum.
Það eru bæði þarfir skjólstæðinga og
bakgrunnur iðjuþjálfa sem hefur áhrif
á það hvaða aðferð er valin hverju
sinni. Í þessari vinnu áttuðum við
okkur líka á að við myndum vilja gera
ákveðnar áherslubreytingar varðandi
forgangsröðun. Við vorum sammála
um að við myndum vilja auka áherslu
á íhlutun þar sem leiknilíkanið, og þar
með iðjan, er í forgrunni. Þróunin hefur
hins vegar verið sú að mikil áhersla hefur
verið á mat og útvegun hjálpartækja.
Einnig teljum við að framkvæma mætti
endurmat með formlegri hætti og nýta
matstæki betur en gert er í dag. Í þessu
samhengi mætti leggja meiri áherslu á
samstarf og samræmingu aðferða milli
starfsstöðva iðjuþjálfa innan Land-
spítalans.
Þjónustuyfirlitið veitir ekki bara
góða yfirsýn yfir þjónustuna heldur
nýtist auk þess sem verkfæri til að
tengja saman fræði og starf. Gerð
þjónustuyfirlits hefur myndað vettvang
til þess að fara yfir þjónustu mismunundi
skjólstæðingshópa, samræma aðferðir
og fá umræðu um notkun nálgana upp á
yfirborðið, t.d. hvaða nálganir er verið að
nota og mögulegar nýjungar. Verkefnið
hefur undið upp á sig, eins og oft vill
verða, og teljum við þörf fyrir það að
gera enn nákvæmara þjónustuyfirlit fyrir
helstu skjólstæðingshópa á Landakoti.
Af framangreindu má sjá að reynsla
okkar af því að taka saman þá þjónustu,
sem við erum að veita og horfa á hana
með gagnrýnum augum, er mjög góð.
Við mælum með því að sem flestir
iðjuþjálfar gefi sér tíma til þess að staldra
við og skoða hvaða þjónustu þeir eru að
veita. Leiðir til þess eru fjölmargar og
gerð yfirlitstöflu er bara ein af þeim.
Elín, Eyrún og Jóhanna Page 3
þess að fara yfir þjón stu mismunundi skjólstæðingshópa, samræma aðferð r og fá umræðu
um notkun nálgana upp á yfirborðið, t.d. hvaða nálganir er verið að nota og mögulegar
nýjungar. Verkefnið hefur undið upp á sig, eins og oft vill verða, og teljum við þörf fyrir það
að gera enn nákvæmara þjónustuyfirlit fyrir helstu skjólstæðingshópa á L ndakoti.
A framangreindu má sjá að reynsla okkar af því að taka saman þá þjónustu, sem við erum að
veita og horfa á hana með gagnrýnum augum, er mjög góð. Við mælum með því að sem
flestir iðjuþjálfar gefi sér tíma til þess að staldra við og skoða hvaða þjónustu þeir eru að
veita. Leiðir til þess eru fjölmargar og gerð yfirlitstöflu er bara ein af þeim.
Þættir OTIPM
Þjónustulíkan Fisher
Aðgerðarlýsing
Matsaðsferðir/iðjugreining
Óformleg Matstæki Mælitæki
Matslota
1. Iðja - aðstæður
Skjólstæðingssýn
Styrkleikar/erfiðleikar
Mat á þörf fyrir
hjálpartæki
Óformleg viðtöl
(COPM/OSA til hliðsjónar)
Hluti iðjumyndar
Iðjuhjól
COPM (nemar)
MOHOST (nemar)
Matslota
2. Framkvæmdagreining
(e. performance analysis)
Framkvæmdagreining
Ökumat
Áhorf
A-ONE (ADL-
kvarði)
Modified Barthel
Index
AMPS
Matslota
3. Athafnagreining
(e. task analysis)
Gátlisti við
heimilisathuganir
Klukkupróf
A-ONE (NB- kvarði)
MMSE
Dynamometer
Liðmælingar
Tafla 1. Matslota
Matsaðferð/iðjugreining
Óformleg Matstæki Mælitæki
Endurmatslota
(Eftir að mat hefur farið
fram á Landakoti eða á
bráðasviði LSH)
Framkvæmdagreining
Óformleg viðtöl
Áhorf
Klukkupróf
A-ONE (ADL-kvarði)
A-ONE (NB-kvarði)
Modified Barthel
Index
MMSE
Dynamometer
Liðmælingar
Tafla 2. Endurmatslota