Iðjuþjálfinn - 01.06.2015, Side 43
43
• Hægt að samnýta starfsfólk.
• Stærri starfsmannahópur =
Meira hugmyndaflug til þess að
auka fjölbreytileika þjónustunnar.
• Starfsmannavelta minni og þar
með aukin stefnufesta, skipulögð
vinnubrögð og gæði þjónustunnar.
• Aukin tækifæri fyrir fagfólk okkar
til að bjóða nemum í
vettvangsnám.
• Færri tengiliðir fyrir aðstandendur.
Samfelldari þjónusta.
• Gefur tækifæri til að
útbúa samhæfðari, heildstæðari,
einstaklingsmiðaðar
þjónustuáætlanir fyrir skjólstæðinga
okkar = Aukinn sveigjanleiki í
þjónustunni. Þurfa ekki að fara á
eins marga staði.
• Betra að fylgjast með að
markmiðum í starfi með hverjum
skjólstæðingi sé náð. Færri einingar
– allir að vinna að því sama.
• Ef til vill aukin tækifæri fyrir
skjólstæðinga til að njóta meðal
annars tómstunda og félagslífs.
• Ferliþjónusta ekki eins flókin.
• Bíll Skammtímavistunar nýtist
skóla-og sumarvistuninni.
Síðastliðið sumar var unnið í útisvæði
við Skammtímaþjónustuna og þegar
þetta blað kemur út þá eru væntanlega
öll leiktæki komin á sinn stað. Mikilvægt
er fyrir okkur að hafa vel afgirt
útisvæði því fyrir suma skjólstæðinga
er útileikurinn hjá okkur eina tækifærið
sem börnin hafa til að leika sér ein og
óáreitt útivið.
Næst á dagskrá er að fá settan upp
heitan pott hér úti hjá okkur og stóð
amma eins skjólstæðings okkar fyrir
söfnun í þeim tilgangi. Í sumarvistuninni
höfum við ætíð farið nokkrum sinnum
í viku í sund með skjólstæðingahópinn,
ýmist allir saman eða í smærri hópum.
Hlutverk mitt sem iðjuþjálfa og
deildarstjóra í Skammtímaþjónustunni
eru í grófum dráttum:
• Skipulagning starfsemi
• Samstarf með öðrum
þjónustuaðilum skjólstæðinga
• Upplýsingaveita
• Þátttaka í daglegu starfi
• Markmiðssetning
• Samráðs og teymisfundir
• Ráðgjöf til starfsfólks
• Ráðgjöf til foreldra
Síðastliðið ár hefur mikill hluti af
minni vinnu snúist um sameiningu
þessara starfseininga undir einn hatt.
Mikill tími hefur farið í vinnu með
fasteignum Akureyrarbæjar og öðrum
deildum til að framkvæmdir við
endurbætur á húsnæðinu verði sem
best sniðnar að þörfum starfseminnar.
Enn erum við að vinna með
iðnaðarmönnum að ýmsum útfærslum,
bæði innanhúss og utan. Síðast, en
alls ekki síst, þarf að halda utan um
starfsfólkið og hjálpa til við að efla
góðan starfsanda og pússa þessar tvær
deildir, sem fyrr voru aðskildar, saman
í eina heild.
Starfsmannahópurinn í Skammtíma-
þjónustunni samanstendur af áhuga-
sömu, einbeittu starfsfólki sem vinnur
störf sín samviskusamlega vegna þess
að það nýtur starfsins.
Við sameininguna gætti þó nokkurs
„hrepparígs“ þar sem oft heyrðist
„við og þið“ og átti fólk þá annars
vegar við starfsfólkið sem áður vann í
Skóla- og sumarvistun í Árholti og hins
vegar við starfsfólkið sem áður vann í
Skammtímavistun á Skólastíg.
Smávægilegir árekstrar áttu sér
stað þegar starfsfólk var ekki búið
að tileinka sér þann hluta starfsins
í Skammtímaþjónustunni sem áður
tilheyrði þeirri starfsstöð þar sem það
vann ekki fyrir sameininguna. Aðeins
bar á því að starfsfólk ætlaðist til að hinir
„vönu“ leystu þau verkefni af hendi og
sinntu þeim skjólstæðingum sem áður
höfðu tilheyrt þeirra starfsstöð.
Þegar þetta er skrifað er að verða ár
síðan við fluttum á nýja staðinn. Ekki er
hægt að finna annað en allir séu ánægðir
með breytingarnar og á það bæði við
um starfsfólk og þjónustuþega. Ef ég
tala út frá mér sem deildarstjóra finnst
mér afskaplega gott að mæta í vinnuna
á einn stað og geta haft góða yfirsýn yfir
bæði starfsemi dagvistunarhlutans sem
og skammtímavistunarhlutans á sama
tíma. Áður fannst mér ég stundum
tættari og koma litlu í verk þegar ég
þurfti að geysast á milli staða. Starfsfólk
og aðstandendur þjónustuþega hafa
núna betri aðgang að yfirmönnum á
staðnum og geta frekar gengið að þeim
vísum en áður. Þetta skilar sér í betri
samskiptum, ánægðara starfsfólki og
þjónustuþegum og betri þjónustu.
Bestu kveðjur,
Sísý Malmquist