Þjóðmál - 01.12.2010, Side 10
8 Þjóðmál VETUR 2010
Enn ein ástæðan fyrir því að Ragnar vill
losna við höftin sem fyrst er sú að fljótt
fari menn að laga sig að höftunum, haga
rekstri sínum og skipulagi í kringum þau
og þannig fái þeir ákveðna hagsmuni af því
að þau séu við lýði sem lengst . Strax heyrist
frá fjármálafyrirtækjum að þau vilji ekki að
höftunum sé aflétt hratt og vel . Þar með
víki þjóðarhagur fyrir haftastefnu .
Ég studdi það á sínum tíma, haustið
2008, þegar ákveðið var að innleiða gjald-
eyrishöft við aðstæður, sem sköpuðust eftir
bankahrunið . Á hitt benti ég á fundum
þingflokks sjálfstæðismanna, að menn yrðu
að gera sér grein fyrir því að síðan tækju
embættismenn við að framfylgja hafta-
reglunum . Þá yrðu settar fram kröfur um
sífellt meira og þyngra eftirlit . Mesta hættan
væri sú að litið yrði á þetta sem varanlegt
bjargráð . Gegn því yrði að vinna .
Orð Ragnars Árnasonar sýna að varn-
aðarorð í þessa veru áttu rétt á sér . Már
Guðmundsson, seðlabankastjóri, efndi til
blaðamannafundar 25 . nóvember, sama
dag og viðtalið við Ragnar birtist . Seðla-
bankastjórinn talaði á þann veg að þjóðin
skyldi búa sig undir langvinn höft . Már er
stjórnlyndur maður, enda gamall marxisti-
lenínisti, og hann áttar sig á því að höftin
veita honum meira vald sem seðlabanka-
stjóra en ella væri . Í stað þess að helga
sig því að leggja stóru línurnar við stjórn
peningamála situr hann yfir hlut fyrirtækja
og ein stakl inga eins og sannaðist, þegar
hann brá fæti fyrir sölu ríkisins á Sjóvá .
Þegar salan á Sjóvá var á lokastigi og Már
skyldi rita undir sölusamning, sem hafði
verið um hálft ár í smíðum, greip hann
til þess ráðs að veifa gjaldeyrisreglunum
og haftavaldi sínu samkvæmt þeim . Hann
hótaði einum kaupanda lögreglurannsókn
til að fæla hann úr kaupendahópnum .
Fram ganga Más varð til þess að tilboðsgjaf ar
drógu sig í hlé . Ríkið varð af 11 milljörðum
króna og situr uppi með tryggingar félag .
Ríkis rekið tryggingarfélag spillir trygg inga-
markaðnum á skömmum tíma .
Barnaskapur er að halda að Már Guð-
mundsson muni ótilneyddur sleppa þessu
skömmtunarvaldi . Eitt er víst, að ekki
verð ur hann knúinn til þess af Stein grími
J . Sigfússyni, sem beitir valdi fjár mála ráð-
herra til að deila og drottna eins og sann-
aðist í svonefndu Árbótarmáli . Þar hótaði
hann barnaverndarstofu að frysta til hennar
fjárveitingar nema farið yrði að vilja hans .
Hafði ráðherrann síðan í heitingum við
stjórnendur Barnaverndarmála fyrir að fara
að upplýsingalögum við miðlun upp lýs-
inganna, sem afhjúpuðu hótun Stein gríms .
Orð Ragnars Árnasonar um hve fljótir fé-
sýslumenn og aðrir eru að laga sig að höft um
og finna leiðir til að njóta sín innan þeirra
beina athygli að dapurlegri stað reynd .
Hvar heyrum við markviss og skýr and-
mæli gegn gjaldeyrishaftastefnu ríkis stjórn-
ar og seðlabanka? Ekki úr bönk un um . Það-
an heyrist hvorki hósti né stuna, þótt seðla -
banka stjórinn segi þjóðina ekki búa við
„nægi lega heilbrigt bankakerfi“ til að það
geti staðið á eigin fótum . Það er stutt leið
frá mikil mennsku bankastjórnenda fyrir
hrun til þýlyndis við valdfreka embættis- og
stjórn mála menn eftir hrun .
Þótt Ólöf Nordal, varaformaður Sjálf-
stæð isflokksins, gagnrýndi framgöngu
Stein gríms J . í Árbótarmálinu, leið ekki
á löngu þar til Tryggvi Þór Herbertsson,
flokks bróðir hennar á þingi, lagði blessun
sína yfir verk Steingríms J . í Kastljósi (24 .
nóv ember 2010) . Fleiri hafa siglt í kjölfar
hans . Undrun vekur að um leið og menn
telja að réttmætt hafi verið að greiða 30
milljón ir króna til Árbótar-bænda láta þeir
hjá líða að gagnrýna forkastanleg vinnu-
brögð Steingríms J . Skal því seint trúað að
þau verði talin samrýmast góðum stjórn-
sýslu háttum .