Þjóðmál - 01.12.2010, Page 13

Þjóðmál - 01.12.2010, Page 13
 Þjóðmál VETUR 2010 11 522 frambjóðendur í kjöri . Aðeins þrír sem náðu kjöri á stjórnlagaþing búa utan höfuðborgarsvæðisins eða 12% þingfulltrúa en 37% landsmanna búa utan höfuð- borgarsvæðisins . Yngsti þingfulltrúinn er 24 ára en sá elsti sjötugur . Samkvæmt upplýsingum á vefsíðu stjórn- lagaþings er skipting 25 fulltrúa á þinginu eftir starfsstéttum þessi: Fjöl miðlamenn 4, læknar 3, stjórnmála fræðingar 3, nemar 3, prófessorar 2, stærðfræðingar 2, lögmenn 3, forstöðumenn 2, sóknarprestur 1, bóndi 1, leikstjóri 1, deildarstjóri 1, stjórnarformaður 1, framkvæmdastjóri 1, formaður stéttar- félags 1, talsmaður neytenda 1 . Á þinginu sitja 15 karlar og 10 konur . Birgir Guðmundsson, stjórnmála fræð- ingur á Akureyri, sagði við RÚV, þegar hann var spurður álits á úrslitunum: Þetta er fyrst og fremst fræga fólkið á höfuð- borgarsvæðinu og menntafólk sem mun ráða mestu þarna . Það má kannski segja að nýi kon ungur stjórnlagaþingsins sé Egill Helga- son, því flestir frambjóðandanna hafa verið áberandi í Silfri Egils . Miðað við þessa skýringu er þetta einskonar 101 stjórnlagaþing . Þessi skipting á þing- full trúum eftir byggðarlögum er vís bending um, hvernig menn myndu raðast á alþingi, ef landið yrði eitt kjördæmi . Hugmyndin um slíka kjördæmaskipan sýnist þó ofar lega í hugum margra sem náðu kjöri á stjórn- lagaþingið . Um stjórnlagaþing gilda lög, þar sem meðal annars er markaður rammi fyrir störf þingsins og hlutverk . Lýsti Þorvaldur Gylfa son yfir strax og rætt var við hann eftir kjörið, að alþingi hefði sett stjórnlagaþingi of miklar skorður . Mátti helst skilja hann á þann veg, að ekki yrði farið eftir þessum reglum . Lofar ekki góðu ef menn á stjórnlaga- þingi telja að sjálfumgleði þeirra eða frekja Saga einstakrar hugsjónakonu og friðarverðlaunahafa Nóbels sem á fáeinum vikum varð sameiningartákn þjóðar sinnar andspænis grimmilegri kúgun allsráðandi herforingjaklíku. Eftir ritstjóra Þjóðmála. „ ... tvímælalaust ein af perlunum í útgáfunni þetta árið [2009].“ Jón Þ. Þór, DV Bókafélagið Ugla www.bokafelagidugla.is

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.