Þjóðmál - 01.12.2010, Qupperneq 13
Þjóðmál VETUR 2010 11
522 frambjóðendur í kjöri . Aðeins þrír
sem náðu kjöri á stjórnlagaþing búa utan
höfuðborgarsvæðisins eða 12% þingfulltrúa
en 37% landsmanna búa utan höfuð-
borgarsvæðisins . Yngsti þingfulltrúinn er
24 ára en sá elsti sjötugur .
Samkvæmt upplýsingum á vefsíðu stjórn-
lagaþings er skipting 25 fulltrúa á þinginu
eftir starfsstéttum þessi: Fjöl miðlamenn 4,
læknar 3, stjórnmála fræðingar 3, nemar 3,
prófessorar 2, stærðfræðingar 2, lögmenn 3,
forstöðumenn 2, sóknarprestur 1, bóndi 1,
leikstjóri 1, deildarstjóri 1, stjórnarformaður
1, framkvæmdastjóri 1, formaður stéttar-
félags 1, talsmaður neytenda 1 . Á þinginu
sitja 15 karlar og 10 konur .
Birgir Guðmundsson, stjórnmála fræð-
ingur á Akureyri, sagði við RÚV, þegar
hann var spurður álits á úrslitunum:
Þetta er fyrst og fremst fræga fólkið á höfuð-
borgarsvæðinu og menntafólk sem mun ráða
mestu þarna . Það má kannski segja að nýi
kon ungur stjórnlagaþingsins sé Egill Helga-
son, því flestir frambjóðandanna hafa verið
áberandi í Silfri Egils .
Miðað við þessa skýringu er þetta einskonar
101 stjórnlagaþing . Þessi skipting á þing-
full trúum eftir byggðarlögum er vís bending
um, hvernig menn myndu raðast á alþingi,
ef landið yrði eitt kjördæmi . Hugmyndin
um slíka kjördæmaskipan sýnist þó ofar lega
í hugum margra sem náðu kjöri á stjórn-
lagaþingið .
Um stjórnlagaþing gilda lög, þar sem
meðal annars er markaður rammi fyrir
störf þingsins og hlutverk . Lýsti Þorvaldur
Gylfa son yfir strax og rætt var við hann eftir
kjörið, að alþingi hefði sett stjórnlagaþingi
of miklar skorður . Mátti helst skilja hann
á þann veg, að ekki yrði farið eftir þessum
reglum .
Lofar ekki góðu ef menn á stjórnlaga-
þingi telja að sjálfumgleði þeirra eða frekja
Saga einstakrar hugsjónakonu
og friðarverðlaunahafa Nóbels
sem á fáeinum vikum varð
sameiningartákn þjóðar sinnar
andspænis grimmilegri kúgun
allsráðandi herforingjaklíku.
Eftir ritstjóra Þjóðmála.
„ ... tvímælalaust ein af perlunum
í útgáfunni þetta árið [2009].“
Jón Þ. Þór, DV
Bókafélagið Ugla
www.bokafelagidugla.is