Þjóðmál - 01.12.2010, Qupperneq 14
12 Þjóðmál VETUR 2010
vegi þyngra en lög og reglur sem um þingið
gilda . Lét Þorvaldur eins og stjórn laga-
þingmenn gætu bundið hendur al þingis-
manna með tillögum sínum . Þing menn
Sjálfstæðisflokksins stöðvuðu vorið 2009
að alþingi framseldi vald sitt sem stjórn ar-
skrárgjafi til stjórnlagaþings . Þess vegna er
of seint fyrir Þorvald Gylfason að láta nú
eins og hann eða aðrir stjórnlaga þingmenn
geti sett alþingi stólinn fyrir dyrnar .
Þorvaldur fór einnig inn á skrýtna braut
þegar hann sagðist vona að stjórnlagaþingið
markaði endalok „sjálftökusamfélagsins“,
hvað sem það nú er . Útlistun hans á hlut-
verki stjórnlagaþingsins hefði að vísu mátt
kenna við „sjálftöku“ . Þá sagðist hann hafa
lært það á nýlegri ferð til Suður-Afríku að
stjórnlagaþing ætti að gera „tillögu um nýja
stjórnarskrá til bráðabirgða“ . Þessi hug-
mynd er ekki frumleg, því að 1944 litu
smiðir stjórnarskrárinnar þannig á, að þeir
hefðu tekið saman texta til bráðabirgða .
Þá var yfirlætið ekki minna hjá öðrum há-
skóla manni, Evrópufræðingnum á Bifröst,
Eiríki Bergmann Einarssyni, sem náði kjöri
á stjórnlagaþingið . Hann sagði við dv.is að
„niðurrifsstarfsemi sumra stjórnmála manna
í garð stjórnlagaþingsins“ hefði verið nokk-
uð merkileg, án þess að rökstyðja orð sín
nánar . Þá sagði hann:
Stjórnmálamenn samkvæmt skilgreiningu
vilja ekki framselja völd sín, eins og hér er
verið að gera, og mér sýnist þetta sum part
vera örvæntingarfull tilraun sumra stjórn-
málamanna til að klóra til baka aftur þetta
vald sem þeir misstu frá sér í hruninu .
Eiríkur Bergmann sýnist ekki átta sig á því
að hlutverk hans á stjórnlagaþingi er ráð-
gefandi . Alþingismenn framseldu ekki
annað en tillöguréttinn til stjórnlagaþings .
Þá sagði hinn nýkjörni stjórnlagasmiður, að
sér þætti þetta „brjálæðislega skemmtilegt
og spennandi verkefni“ og það væri „auð-
vitað áskorun fyrir þetta þing að haga sér
með ögn skárri hætti heldur en það sem
starfar niður við Austurvöll“ .
Minnimáttarkennd háir ekki þessum
tveim ur stjórnlagaþingmönnum . Hitt er
verra ef oflætið leiðir þá í ógöngur, af því að
þeir virða ekki reglur, sem þeim eru settar .
Á tímum Rómverja höfðu menn þann sið
að láta mann standa við hlið sigurvegarans,
þegar hann ók á vagni sínum um götur
borgar innar . Hlutverk fylgdarmannsins var
að minna hinn sigurglaða á að hann væri
mannlegur og hvísla þeim orðum í eyra
hans . Ætli slíkra hvíslara sé þörf á stjórn-
lagaþingið?
V .
Hér hafa verið nefnd fjögur mál: Ákæra á hendur Geir H . Haarde, gjald eyr is-
höft, landflótti og stjórnlagaþing, sem end-
urspegla hvert með sínum hætti, hvern ig
ríkisstjórnin og meirihluti hennar hefur
tekið á málum eftir hrun bankanna .
Ekkert af þessum málum sýnir að ríkis-
stjórnin hafi einsett sér að verja kröftum
sínum til að takast á við hin raunverulegu
við fangsefni, að marka stefnu til að bæta
hag þjóðarinnar og hrinda henni í fram-
kvæmd .
Hugur Samfylkingar og vinstri-grænna
stend ur fyrst og síðast til þess að etja kappi
við pólitíska andstæðinga . Við afsögn ríkis-
stjórnar Geirs H . Haarde varð að megin-
máli að halda sjálfstæðismönnum frá völd-
um . Það verður þjóðinni dýrkeypt . Kostn-
aðurinn felst ekki aðeins í þyngri skatt byrði
samhliða efnahagslegum samdrætti . Hann
birtist jafnframt í lélegum stjórnar hátt-
um, þar sem virðing fyrir lögum og rétti
dvínar .
Það er mál að linni og markviss stefna
verði tekin út úr hruninu í stað þess að velta
sér stöðugt upp úr því í von um vinsældir .