Þjóðmál - 01.12.2010, Qupperneq 18

Þjóðmál - 01.12.2010, Qupperneq 18
16 Þjóðmál VETUR 2010 skránni hefur verið breytt nokkrum sinn- um og veigamiklum ákvæðum var bætt í hana 1995 þegar mannréttinda ákvæðin komu til skjalanna . Það er því ekki rétt að halda því fram, eins og því miður hefur oftlega heyrst, að engu hafi verið breytt . Álitamál hafa svo komið upp á síðustu árum um túlkun á stjórnarskránni, eins og t .d . um málskotsrétt forseta Íslands, en sú túlkun sem forseti hefur beitt í tvígang gengur í berhögg við það sem fram til þessa hefur verið skoðun fræðimanna í lögfræði . Víst er, að þetta tiltekna ákvæði þarfnast endurskoðunar . Einnig hafa verið sjónarmið uppi um hvort rétt sé að breyta 79 . gr . stjórnarskrárinnar og gera breytingar á henni þar með einfaldari . Meginatriðið er, að það er ekki skynsam- legt að hefja stórfelldar breytingar á stjórnar- skrá lands sem er í miðju efnahagslegu fár viðri og á nóg með að halda sjó í þeim verk efnum sem fram undan eru . Það verður að ígrunda vel þetta grundvallarskjal sam- félags ins og ekki vera að hræra í hlutunum er síst skyldi . Því miður hefur þessi afstaða ekki hljóm- grunn á Alþingi um þessar mundir og þegar nýtt frumvarp um stjórnlagaþing leit dags ins ljós á síðasta vetri varð fljótt ljóst að ríkis- stjórnin og sérstaklega forsætisráðherra legði mikla áherslu á að frumvarpið yrði að lögum . Helsta breytingin, sem orðið hafði á málinu frá vorinu áður, var sú, að þingið skyldi nú vera ráðgefandi í stað þess að niðurstaða þess yrði bindandi eins og þá var . Kosnir skyldu 25 til 31 fulltrúi, eftir því hvernig stæði á jafnræði milli kynja, og skyldi þingið sitja í tvo til fjóra mánuði . Gagnrýni á frumvarp um stjórnlagaþing Eins og kunnugt er, lagðist þingflokkur Sjálfstæðisflokksins einnig gegn þessu nýja frumvarpi og hafði fyrir því margvísleg rök . Margt af því sem þar var gagnrýnt hefur því miður komið á daginn í aðdraganda kosninga til stjórnlagaþings, t .d . það, að varasamt væri að landið yrði eitt kjördæmi og að kosningakerfið væri illskiljanlegt og erfitt í framkvæmd . Megingagnrýni Sjálf- stæðis flokksins var þó sú, að málið væri van búið, að nauðsynlegt væri að vinna það mun betur . Það var of mikill asi á málinu í meðferð þingsins . Í svo mikilvægu máli og ekki síður þegar til stendur að setja á fót sér staka stofnun til að gera tillögur að stjórnar- skrárbreytingum, er eðlilegt að mál fái að þroskast og ólík sjónarmið að heyrast . Það er ekki síður mikilvægt að umræða um þessi mál sé til staðar í þjóðfélaginu, bæði meðal almennings og í fræðasamfélaginu . Það er gagnrýnivert að hefja breytingar á stjórnarskránni með þessum hætti um leið og þjóðin stendur í stórræðum við að bjarga sér út úr efnahagsvandræðum . Í stað þess að fara í slíka vegferð hefði t .d . verið æskilegt að menn veltu fyrir sér hvort hægt væri að fara aðrar leiðir en þá sem hér var til umfjöllunar . Í því sambandi má nefna hvort ekki hefði verið skynsamlegt að efna til sérstakrar rannsóknar á stjórnarskránni áður en afstaða væri tekin til þess hvort og þá hvernig þyrfti að breyta henni . Það væri að sönnu til fyrirmyndar ef ríkisvaldið hefði frumkvæði að því að setja fjármuni í athugun á þessum grundvallarlögum og hvernig þau hafa staðist tímans tönn . Að slíkri rannsókn lokinni og þegar þjóðfélagið væri komið á lygnari sjó, væri heppilegra að hefja endurskoðun stjórnarskrár á vettvangi þingsins . Þá er vert að benda á, að fyrri stjórnar- skrárnefnd, undir forystu Jóns Kristjáns- sonar, fyrrverandi ráðherra, skilaði af sér umfangsmikilli áfangaskýrslu um endur- skoðun stjórnarskrárinnar í febrúar 2007
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Þjóðmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.