Þjóðmál - 01.12.2010, Síða 30
28 Þjóðmál VETUR 2010
Hagmunamál bankanna
og þar með þjóðarinnar
Núverandi stjórnkerfi fiskveiða er árangursríkt kerfi en það hefur
tekið langan tíma að ná þeim árangri
og hann er ekki sjálfgefinn . Það verður
aldrei skortur á fræðimönnum með
hið fullkomna fiskveiðistjórnunarkerfi
rökstutt með fjölda Excel-taflna og Power-
point-glæra . Það er hroki að telja sig sjá
allt fyrir og geta spáð fyrir um öll þau
áhrif sem fyrningarleiðin mun hafa á
mikilvægustu atvinnugrein Íslendinga .
Eigið fé flestra sjávarútvegsfyrirtækja mun
þurrkast út, rekstrarhagnaður mun ekki
nægja til að þjónusta lánin, þannig mun
bankakerfið einnig fá skellinn af þessari
tilraunastarfsemi . Tjón fyrningaleiðarinnar
fyrir bankakerfið getur hæglega orðið
um 250–300 milljarðar sem ég áætla að
sé bókfært virði sjávar útvegslána út frá
ársreikningum bankanna . Landsbankinn,
banki allra skattgreiðenda, er stærsti
lánveitandi sjávarútvegsfyrir tækja,
ríkisbankinn sem gaf út 275 milljarða
skulda bréf í erlendri mynt til þrota-
búsins . Hann mun aldrei geta borgað það
til baka ef fyrningarleiðin verður farin .
Þegar Landsbankinn þarf að leysa til sín
sjávarútvegsfyrirtæki á Vestfjörð um eða
í Vestmannaeyjum vegna fyrningar leið-
arinnar þá er öruggt að þingmenn Sam-
fylkingarinnar munu ekki horfa framan í
íbúa sveitarfélagsins og þylja upp röksemdir
Jóns Steinssonar um að þetta sé gott fyrir
þjóðfélagið .
Tilraunastarfsemi með
lífsafkomu Íslendinga
Þegar allt er dregið saman er ljóst að sífelldur áróður gegn núverandi
stjórn kerfi fiskveiða hefur búið til slíkar
rang hugmyndir að erfitt er að vinda
ofan af þeim . Úr þeim jarðvegi hefur
sprottið hin svokallaða fyrningarleið
eða upp boðs leið . Hún gengur út á að
gera upp tæk þau verðmæti sem urðu til
vegna mikill ar hagræðingar á tæpum 30
árum . Fyrir þann tíma voru gjaldþrot,
gengisfellingar og vandi sjávarútvegsins
fastur liður í fréttatímum Ríkisútvarpsins .
Nú er vandi þessa lands, að mati Ólínu
Þorvarðardóttur, hagnaður og árangur
greinarinnar . Við það geta vinstri menn
ekki unað og er því áformað að gera hann
upptækan . En árangurinn er ekki fullt hús
af auðseljanlegu gulli, heldur væntingar um
góðan árangur í framtíðinni . Núverandi
aflamarkskerfi hefur skilað þeim árangri .
Fyrningarleiðin er sósíalískt verkfæri til að
gera þetta fram tíðarsjóðsstreymi upptækt
en það mun leysast upp um leið og slíkt
er reynt . Það er alvarlegt þegar ungur
hagfræðingur, sem enga reynslu hefur
af sjávarútvegi, er fenginn til að koma
með útfærslur að því hvernig hægt sé að
innkalla aflaheimild irn ar . Við nánari
skoðun stendur ekki steinn yfir steini sem
frá honum kemur . Sátta nefndin komst að
allt annarri niðurstöðu . Samt vilja vinstri
menn fara þá vitfirrtu leið sem er þeim svo
kær – eignaupptaka með tilheyrandi verð-
mætarýrnun í sjávarútvegi .