Þjóðmál - 01.12.2010, Blaðsíða 47
Þjóðmál VETUR 2010 45
• Nauðsynlegt er að NATO við haldi
þekk ingu og skilningi á málefnum stjórn-
mála, viðskipta og umhverfis á norður-
skautssvæðinu .
• Í öðru lagi ætti NATO að styðja við þær
svæðisbundnu alþjóðastofnanir og sam-
tök sem eru nú þegar til staðar og virðast
gegna hlutverki sínu með sóma . Snerti-
fletir stjórnmála norðurskautssvæðisins og
NATO eru margir þótt einnig sé margt
sem ekki á beint erindi við bandalagið .
NATO ætti að útfæra nánar á hvaða sviði
það hefur eiginlegu hlutverki að gegna á
svæðinu og hvað sé betur til þess fallið að
láta öðrum alþjóðastofnunum eftir .
Á leiðtogafundi NATO, sem haldinn var í
Lissabon 19 . nóvember sl ., var ný grund-
vallar stefna bandalagsins samþykkt . Stefn-
unni er ætlað að gera störf NATO mark-
vissari, hagkvæmari og auka samvinnu við
alþjóðastofnanir og ríki utan bandalagsins .
Þó mikilvægi norðurslóða sé ekki áréttað
sérstaklega í stefnunni, einkum vegna and-
stöðu einstakra aðildarríkja, er ljóst að sam-
eiginlegt markmið er að norðurskautið verði
áfram vettvangur friðsamlegrar samvinnu,
ekki síst í ljósi þeirra öryggisáskorana sem
blasa við á svæðinu .
Norðurskautssvæðið hefur mikla þýð ingu
í augum NATO og líkur eru á að alþjóð-
legt mikilvægi svæðisins aukist enn frekar
þegar líður á öldina vegna hlýnunar jarðar .
Þau fimm bandalagsríki sem teljast norður-
skautsríki, þeirra á meðal Bandaríkin, gera
sér grein fyrir þessu og munu fylgjast grannt
með þróun mála .
___________________________________________
Smáfuglarnir sjá í fréttum að nú eru komin fram tilboð í Haga sem eru á bilinu 6–10 milljarðar
króna . Það er margfalt lægra virði en Baugsfeðgar héldu
fram að væri á Högum þegar þeir reyndu að fá afskrifaðar
skuldir 1998 ehf en ef söluverð verður á endanum 10
milljarðar þá verða afskriftir vegna 1998 ekki minni en
40 milljarðar .
Það vakti athygli þegar stjórn Haga ákvað skyndilega
að kaupa bréf af helstu stjórnendum félagsins, til dæmis
af Finni Árnasyni forstjóra og af framkvæmdastjórum
Haga . Var verð þeirra viðskipta miðað við ofurmat
Baugsfeðga á virði Haga? Var sagt við viðskiptin að
Hagar væru 22 milljarða virði? Hversu mikið yfirverð lét
Jóhannes Haga borga til að leysa vini sína út með bréfin í
Högum? Var þetta gert til þess að þeir töpuðu ekki þegar
hið raunverulega virði kæmi í ljós, sem nú virðist vera
6–10 milljarðar?
Hvað tapar Arion banki miklu á því að segja já og
amen við ákvörðun Jóhannesar í stjórn Haga að kaupa
bréfin af æðstu yfirmönnum á uppsprengdu verði? Hvað
segir bankinn um málið? Hvaða verðmat lág að baki því
gengi sem æðstu stjórnendur fengu? Bankinn hlýtur að
upplýsa um það .
Enn og aftur berast böndin að Sigurjóni Pálssyni,
þjón ustufulltrúa Baugsfeðga hjá Arion, en Sigurjón átti
að gæta hagsmuna Arion banka í tengslum við 1998
ehf og Haga . Hvað segir Sigurjón um kaup Jóhannesar
á bréfum stjórnenda? Sigurjón hefur vafalítið verið
inni í málinu enda yfirmaður Jóhannesar fyrir hönd
móðurfélagsins 1998 ehf .
Samkvæmt skuldum 1998 ehf og 10 milljarða virði
Haga þá verða afskriftir ekki minni en 40 milljarðar . Hvers
vegna spyrja fjölmiðlar Sigurjón Pálsson ekki út í mál ið? Fá
Baugs feðgar 40 þúsund milljónir afskrifaðar? Fá stjórn endur
Haga tvöfalt hærra verð en aðrir á bréf sín í Högum?
Hvað segir skatturinn við því að bréf stjórnenda hafi
verið keypt á yfirverði . Hjá öllum öðrum eru slíkar
kúnstir tekjuskattskildar - verður sú raunin með Finn
Árnason og félaga hjá Högum?
Fuglahvísl á amx .is 9 . desember 2010 .
Enn af spillingunni í Arion-banka