Þjóðmál - 01.12.2010, Page 49
Þjóðmál VETUR 2010 47
hlutum .“ Um einn besta vin sinn, Pál
Ísólfsson, sem þótti manna skemmtilegastur
og var hrekkjalómur mikill, sagði Árni eitt
sinn: „Ég sagði honum Páli Ísólfssyni þetta .
Þá þarf ekki að borga undir það .“ Þegar
Árni heyrði, að Þórbergur Þórðarson væri
að skrá ævisögu séra Árna Þórarinssonar,
mælti hann: „Það verður góð bók, þegar
trúgjarnasti maður á Íslandi fer að skrifa
ævisögu lygnasta mannsins á Íslandi .“
Sum tilsvör Árna lifa enn . Sigurður Eggerz
hafði boðið sig fram á móti Knud Zimsen
í embætti borgarstjóra 1920 . Árni studdi
Knud . Á kjósendafundi í Reykjavík 7 . maí
sagðist Sigurður geta verið borgarstjóri,
úr því að hann hefði verið ráðherra . Árni
kallaði þá fram í: „Rétt er það, Sigurður,
að þitt var ríkið, en hvorki mátturinn né
dýrðin .“ Í annað skipti átti Árni tal við
kven frelsissinna, sem kvað konur hvergi
njóta neinna forréttinda . Árna varð þá að
orði: „Hvenær hefur það heyrst, að konu
væri kenndur krakki, sem hún á ekki?“
Ólafur Thors
Ólafur Thors fæddist 1892 og lést 1964 . Hann var af hinni kunnu Thors-ætt,
sonur stórútgerðarmannsins Thors Jens-
ens . Ólafur var formaður Sjálfstæðisflokks-
ins lengst allra manna, frá 1934 til 1961,
og forsætisráðherra fimm sinnum . Margar
tilvitnanir eru í hann í bók Hannesar
Hólm steins . Sumar sýna, hversu hlýr og þó
hress hann var í viðmóti . Þrír kommúnistar
settust á þing eftir kosningarnar 1937 . Var
þeim fálega tekið, og virtu sumir þingmenn
þá ekki viðlits . Ólafur gekk hins vegar til
þeirra með útrétta hönd og sagði: „Ekki
vildi maður nú fá ykkur hingað inn, en fyrst
þið eru komnir, þá verið þið velkomnir!“
Átta árum síðar, haustið 1944, myndaði
Ólafur stjórn með kommúnistum, sem nú
gengu fram undir merki Sósíalistaflokksins .
Þegar erindreki Bandaríkjastjórnar fann
að því, að hann hefði tekið kommúnista
í stjórn, svaraði hann: „Þeir höfðu svo
góð meðmæli .“ Erindrekinn hváði: „Frá
hverjum?“ Ólafur gall við: „Frá Roosevelt
og Churchill .“ Leiðtogar Bandaríkjanna
og Bretlands höfðu ekki hikað við að gera
bandalag við Stalín í stríðinu .
Ólafur gerði oft gys að sjálfum sér .
Hann sagði eitt sinn við Sigurgeir biskup
Sigurðsson: „Alltaf hefur mér þótt vænst um
þig, Sigurgeir, af öllum okkar skólabræðrum,
— vegna þess að það var þér að þakka, að
ég var ekki neðstur í bekknum!“ Í annað
skipti sagði Ólafur: „Ég ræð mestu, þegar
ég er núllið!“ Þegar Ólafur hitti Harold
Macmillan, forsætisráðherra Breta, að máli
1961 vegna þorskastríðsins, sagði hann:
„Hvað er nú til ráða? Við erum báðir í
vanda: Þið þorið ekki að skjóta; við getum
ekki skotið .“
Ólafur Thors kunni að setja ofan í við
menn án þess að móðga þá . Hann varð fyrst